Tvö stór íþróttamót í Eyjum í næsta mánuði og Þjóðhátíð enn til skoðunar

Tvö stór íþróttamót eru nú í undirbúningi í Vestmannaeyjum og þá er enn til skoðunar að halda Þjóðhátíð um Verslunarmannahelgina. Þrátt fyrir að kórónuveirufaraldurinn hafi lagst þungt á Eyjamenn horfa þeir björtum augum til sumarsins. Þetta kemur fram í frétt á vefnum visir.is.

Af þeim tæplega 4500 sem búa í Vestmanneyjum smituðust 105 af kórónuveirunni. Vegna hópsýkinga þar voru reglur harðari en annarsstaðar í samkomubanni og máttu um tíma ekki fleiri en 10 koma saman. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir veturinn hafa verið verulega erfiðan.

„En einhvern veginn æðruleysið og hvernig fólkið tók þessu hérna. Það voru allir tilbúnir að leggja rosalega mikið á sig til þess að láta þetta ganga og það gekk. En þessi tími var erfiður,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja.

Styttist í tvö stór íþróttamót

Lífið í Vestmannaeyjum færist hægt og bítandi í eðlilegt horf og horfa Eyjamenn björtum augum til sumarsins. Tvö stór íþróttamót, TM- og Orkumótið eru skipulögð núna strax í næsta mánuði og enn hefur Þjóðhátíð ekki verið aflýst.

„Við förum eftir öllu sem okkur er upp á lagt og þetta er allt í samstarfi við aðgerðastjórn og almannavarnanefnd. En við ætlum okkar að reyna að halda þessa viðburði með einhverjum hætti og einhverju formi vegna þess að ég held að við þurfum bara á því að halda að fá örlitla tilbreytingu þó að þetta verði örðuvísi en við erum vön,“ segir Íris.

Þurfa að fylgja reglum og kröfum vegna Covid-19

Formaður þjóðhátíðarnefndar og framkvæmdastjóri ÍBV segir að íþróttamótin séu fyrst og fremst hugsuð fyrir yngri börn sem iðka íþróttina og séu mótin mikil upplifun fyrir þau. Aðgerðaráætlun hafi verið í smíðum til að geta staðist þær reglur og kröfur sem séu gerðar til mótshaldara.

Foreldrar eru margir að spyrja sig hvernig skipulagið verði. Hvort þau fái og hvort tveir megi koma með hverju barni. Er skipulagið unnið út frá því að foreldrar geti komið með yngstu börnunum?

„Já, þetta er unnið þannig að við treystum okkur til að koma því fyrir að foreldrar geti í það minnsta komið og horft á leiki en við munum takmarka aðkomu foreldra að i gistingu og í mat,“ segir Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri ÍBV og formaður Þjóðhátíðarnefndar.

„Við sjáum fyrir okkur að það geti verið 200 manns saman að horfa á fótboltaleiki og við erum með þetta á fjórum stórum knattspyrnuvöllum þannig að við erum ekki að safna mikið af fólki saman á svæðið,“ segir Hörður.

Þjóðhátíð enn á teikniborðinu

Vafi hefur verið á því hvort Þjóðhátíð verði haldin í ár. En Herjólfsdalur skartar sínu fegursta þessa daganna.

„Við höfum sagt það og segjum en að við svo sem erum að bíða og þetta virðist vera að ganga vel og það er verið að létta á takmörkunum vonast var eftir og við bara fylgjumst spennt með,“ segir Hörður.

Nýjustu fréttir

Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift
Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum
Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Lífríki íslenskra hafna í hættu?
Fimleikafélagið Rán tók þátt í Vormóti Gróttu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.