Einn einstaklingur er í einangrun vegna Covid-19 í Vestmannaeyjum. Viðkomandi greindist við landamæraskimun og fór beint í einangrun í Vestmannaeyjum. Ekki er vitað til að aðrir hafi veirð útsettir fyrir smiti. Ekkert samfélagslegt smit hefur greinst í Vestmannaeyjum síðan í byrjun október. Sem fyrr eru bæjarbúar hvattir til að gæta áfram að einstaklingsbundnum smitvörnum og almennum sóttvörnum.
Við notum vefkökur til að gera upplifunina þína á vefnum okkar sem besta. Ef þú heldur áfram að nota síðuna, þá gerum við ráð fyrir að þú sér sátt/sáttur við það.OkPrivacy policy