Eyjan okkar í Smáralindinni 3. mars

Fyrirtækjum og félögum í Vestmannaeyjum býðst að taka þátt í verkefninu en á sýningardaginn verður básum dreift um Smáralindina þar sem Eyjafyrirtæki kynna vörur sínar fyrir gestum. Auk þess verður boðið upp á vestmanneyska skemmtidagskrá og hápunkturinn verður brekkusöngur Árna Johnsen um kvöldið.

Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir er verkefnastjóri sýningarinnar en hún segir sýninguna fyrst og fremst snúast um samtakamátt Eyjamanna.
�?Hann getur verið mikill þegar við tökum okkur saman og við viljum sýna landsmönnum að það er mikið að gerast á eyjunni okkar,�? sagði Ragnheiður.
�?�?að er svo mikið sem við eigum, Ísfélagið, svo ég nefni eitthvað, er elsta fiskvinnslufyrirtæki landsins, Gumma í Volare er með heildverslun fyrir allt landið og gengur frábærlega, Grímur kokkur er með frábæra framleiðslu, Framhaldsskólinn hefur upp á mikið að bjóða og svona gæti ég haldið áfram. �?etta þurfum við að sýna landsmönnum og þarna er tækifæri til þess.�?

Ragnheiður segir viðbrögð fyrirtækja í Eyjum hafa verið góð og allir mjög áhugasamir. �?En við erum ekki með nema 25 til 30 bása. �?etta kostar líka ekki svo mikið, fermetraverð á bás er 14.900 krónur og inni í verðinu er uppsetning á básnum og borð. �?á er auðvitað frjálst að kaupa fleiri en einn bás.�?

Ekki verður lögð minni áhersla á skemmtidagskrána en þar mun Árni Johnsen vera kynnir auk þess að stýra brekkusöngnum um kvöldið. �?�?ú færð auðvitað ekki reyndari og skemmtilegri mann í að kynna en Árna og það er aðeins einn sem getur verið með brekkusönginn. Við erum með fullt af vestmanneyskum skemmtiatriðum en ef einhverjir vilja komast að þá tökum við við öllum hugmyndum, smáum sem stórum,�? sagði Ragnheiður.

Nýjustu fréttir

Valur kemur til Eyja eftir viðburðaríka viku
Goslok: dagskrá laugardags
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Kristian Örn
Blíðskaparveður og líf um allan bæ á Goslokahátíð
Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu – uppfært
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.