Tröll og forynjur
10. janúar, 2023
Bjarni Karlsson

Eitt af mörgu góðu við Eyjamenn er sú einbeitta leikgleði sem ríkir í samfélagi þeirra. Á Heimaey tekur fólk gleðina föstum tökum og veit sem er að án leiks er ekkert líf.

Frá alda öðli hefur mannskepnan gert sér leik að tröllum og forynjum og sögur af óvættum gegna mikilvægu hlutverki hvarvetna á byggðu bóli. Það er hluti af traustu uppeldi að kynna nýja kynslóð fyrir slíku efni. Tröllið táknar það sem skelfir okkur innst og dýpst. Þess vegna á hvert byggðarlag sína trölladranga með æsilegum sögum af óvættum sem þvælst hafa úti og valdið usla. Setjum orð á ótta okkar segja þessar sagnir.

Ef þú festir heimskort upp á vegg, kastaðir svo pílu í kortið þar til hún lenti einhversstaðar í mannabyggð, fengir þér síðan far með flugvél og varpaðir þér í fallhlíf niður á ákvörðunarstaðinn og spyrðir fyrsta tólf ára barn sem þú rækist á: Hvað verður um tröllið eða forynjuna sem fer út úr fylgsni sínu einhverra erinda en lendir í töfum uns sólin rís? Tröllið verður að steini, myndi barnið samstundis svara.

Þegar Edda Falak er rigguð upp í gerfi tröllkonu og Heimir Hallgríms er orðinn að Araba-risa þá er vitaskuld verið að vinna með gömul þemu; taka það sem við óttumst, mála það upp og fífla það svo að það hætti að vera hættulegt en verði að steini. Sterkar konur og framandi menningarheimar eru og hafa alltaf verið kvíðavaldur og með því að tengja það þekktum persónum verður það sem maður óttast allt í senn nálægt, skiljanlegt og hlægilegt svo manni léttir ögn. En þótt eitthvað sé hlægilegt er ekki víst að það sé fyndið. Og þegar betur er að gáð sjáum við að það er ekkert fyndið að taka Eddu Falak, uppnefna hana Flak og gera hana að tröllkonu því það getur stutt við hugmyndina um ofbeldi sem aðferð í glímunni við óttann. Gott að á það var bent. Þótt sumt geti þótt hlægilegt er það ekki endilega fyndið. Þann greinarmun þurfum við að þekkja ef við viljum vera fallegt og öruggt samfélag.

En hér megum við ekki staðnæmast því vandinn verður ekki leystur með því að finna nýtt nafn á tröllið og kalla það ÍBV. Sagan af tröllinu sem verður að steini þegar sólin skín kennir okkur að þegar við felum hvorki skítinn og skömmina inni í helli sálarinnar né útvistum angist okkar yfir í önnur sálarlíf með tröllshætti heldur látum tilfinningar okkar óhrædd í ljósi þá verður allt í lagi. Þegar sólin skín á tröllið verður það bara að kunnuglegu kennileiti í umhverfinu. Ekkert meira.

Nú hefur sólin skinið á tröllið. Það þarf enginn að bera skömm sem kann að bera ábyrgð.

Ég bjó árum saman á Heimaey einmitt þegar börnin mín voru ung. Þar kynntist ég raungóðu og heilsteyptu samfélagi sem ber virðingu fyrir fólki og náttúru. Tvö barnabarna minna voru einmitt á Hásteinsvelli núna síðast og þessi orð eru skrifuð undir áhrifum skýlausrar hrifningar í þriggja og sex ára augum segjandi sögur af tröllum og forynjum. Skelfing megum við vera þakklát því dugandi fólki sem nennir að standa í þessu þrettánda-veseni ár eftir ár og lætur aldrei deigan síga þannig að við hin getum gengið að gleðinni vísri.

Sr. Bjarni Karlsson
visir.is

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst