Handknattleiksdeild ÍBV stendur fyrir handboltaskóla í samstarfi við Krónuna og Vestmannaeyjabæ. Skólinn verður dagana 28.-30.desember og er fyrir krakka í 3.-8.bekk. Hópnum verður skipt í tvennt, 3.-5.bekkur verða saman og 6.-8.bekkur saman. Skólinn samanstendur af 6 æfingum fyrir báða aldurshópana, 2 á dag, ásamt því að 1 fyrirlestur verður fyrir eldri hópinn. Þjálfar á námskeiðinu verða: Þjálfarar meistaraflokka kvenna og karla Siggi Braga, Hilmar Ágúst Björns, Erlingur Richardsson og Kiddi Guðmunds ásamt þjálfurum yngri flokka og leikmönnum ÍBV.

3.-5.bekkur
Dagur 1-3:
Æfing 1 kl.10:30-12:00 – Allir fara heim í mat / pizzuveisla kl.12 á miðvikudag – Æfing 2 kl.13:00-14:00

6.-8.bekkur
Dagur 1 og 3:
Æfing 1 kl.9:00-10:30 – Sturta +hressing – Hádegismatur kl.11:30 – Æfing 2 kl.14:00-15:00

Dagur 2:
Æfing 1 kl.9:00-10:30 – Sturta+hressing og fyrirlestur kl.11:00 – Pizzuveisla kl.12:00 – Æfing 2 kl.14:00-15:00

Í lok námskeiðs verður pizzuveisla fyrir alla, allir þáttakendur fá bol merktan námskeiðinu og svo verður happdrætti með skemmtilegum vinningum. Þáttökugjald er 1.500 kr.- fyrir yngri hópinn en 3.000 kr.- fyrir eldri hópinn. Hægt verður að skrá sig fram til jóla, en um að gera að skrá krakkana fyrr en seinna. Hægt er að skrá sig í gegnum skráningarformið hér fyrir neðan og hjá þjálfurum ÍBV.

https://forms.gle/ZfTEHJAPzjG8Bq3KA