ÍBV tekur á móti Stjörnunni í 19. umferð Olísdeildar karla í dag. Liðin eru bæði með 21 stig og sitja í 3.-5. sæti í deildinni ásamt Val en deildin er mjög jöfn um þessar mundir. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport en flautað verður til leiks klukkan 16:00.