Ábending frá Herjólfi
Herjólfur á siglingu.

Herjólfur ohf. hefur gefið út tilkynningu vegna siglinga í dag og á morgun. Í dag, miðvikudaginn  22. janúar siglir Herjólfur til Landeyjahafnar eina ferð seinni partinn. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 (Áður ferð kl. 17:00). Brottför frá Landeyjahöfn kl. 20:15 (Áður ferð kl. 20:45). Aðrar ferðir falla niður. Strætó fer kl 17:45 frá mjódd.

Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni.

Vegna siglinga fimmtudaginn 23. janúar

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri ferð dagsins. Brottför frá Vestmannaeyjum kl 07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl 10:45. Farþegar sem áttu bókað á þessum tímasetningum í Landeyjahöfn færast sjálfkrafa á milli hafna.

* Eftirfarandi ferðir hafa verið felldar niður, þ.e. kl 08:15,09:30,12:00,13:15,14:30 og 15:45.
* Strætó fer kl 09:00 frá mjódd.
* Þeir sem ætla að nýta sér gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.
*Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni.

Hvað varðar siglingar seinni partinn verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00 á fimmtudag.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.