Ábyrgðarhluti ef þetta verður ekki kannað betur

Sveinn Rúnar Valgeirsson, skipstjóri á Lóðsinum, segir að þriggja metra ölduhæð hafi verið, samkvæmt Bakkafjöruduflinu, er þeir komu þangað um hálfníuleytið um morguninn. �?Við fórum í innsiglinguna og fengum þar tvö nokkuð stór brot á okkur. �?á prófaði ég að bakka inn og það gekk ágætlega. En þegar við vorum komnir inn fyrir, komu nokkur ólög.

�?g held að mönnum hafi verið nokkuð brugðið við þetta og það í ekki meiri ölduhæð en 3,09 m. En þetta var tekið upp á videó og þeir ræddu um að koma þeim myndum á netið.

Persónulega finnst mér að þeir sem stefna á þessar framkvæmdir við Bakkafjöru, og þá á ég við bæjarfulltrúa, verði að krefjast þess af Siglingastofnun að þetta verði betur athugað. �?g hef áður lýst þeirri skoðun minni að mér finnst það ábyrgðarhluti ef fulltrúar Siglingastofnunar kanna ekki aðstæður á staðnum. Í sjálfu sér er ég ekki hræddur um að væntanleg ferja gæti orðið í hættu en ég óttast að minni skip gætu orðið fyrir áföllum við þessar aðstæður. �?g ætla ekki að fara að slá Bakkafjöru af, en ég vil að þetta verði skoðað betur,�? sagði Sveinn Rúnar.

Nánar er fjallað um málið í Fréttum.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.