Rekstrarafkoma Vestmannaeyjabæjar var jákvæð um 530 milljónir króna í fyrra. Þetta er talvert umfram væntingar en gert var ráð fyrir 73,5 milljóna króna afgangi eftir árið. Fram kemur í ársreikningi Vestmannaeyjabæjar að rekstrarafkoma A hluta var jákvæð um 456,4 milljónum króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 116,5 milljónir króna. Eigið fé sveitarfélagsins nam næstum 5 milljörðum króna í lok síðasta árs.