Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Bergey 20251009 102412
Bergey á leið úr höfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaey VE landaði fullfermi í Þorlákshöfn á þriðjudag og Bergey VE landaði þar fullfermi á mánudag. Bergey landaði síðan góðum karfaafla í gær, að því er segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar er jafnframt rætt við skipstjórana.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var mjög sáttur við veiðina en ósáttur við veðurlagið. „Við vorum að veiðum á Pétursey og á Selvogsbanka. Það fiskaðist ágætlega en það var vitlaust veður allan túrinn, mjög hvasst og leiðinlegt. Aflinn var mest þorskur en síðan var þetta blandað; ýsa, ufsi, langa, koli og steinbítur,” sagði Egill Guðni. Vestmannaey hélt til veiða strax að löndun lokinni og mun hún landa á ný í Þorlákshöfn í dag.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey hafði svipaða sögu að segja. „Við lönduðum fullfermi af blönduðum afla í Þorlákshöfn á mánudaginn. Í aflanum var mest af kola, þorski og ufsa. Haldið var til veiða á ný strax að löndun lokinni og þá var farið á Tána í Grindavíkurdýpinu í þeim tilgangi að reyna við karfa. Karfaveiðin gekk vel og við lönduðum rúmlega 40 tonnum í Þorlákshöfn í gær. Veðrið hefði mátt vera betra en það er ekki hægt að kvarta yfir veiðinni,” sagði Jón.

Nýjustu fréttir

Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
„Gengið eins og í sögu”
Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.