Afraksturinn fer í að kaupa Augnbotnamyndavél
Sigmar Georgsson ásamt nemendum við Grunnskóla Vestmannaeyja við afhendingu söfnunarbaukanna í dag.

Söfnunarátakið Rauða fjöðrin sem Lions stendur fyrir um allt land fer fram um helgina. Krakkar munu banka uppá í hverju húsi í Vestmannaeyjum og safna, bæjarbúar eru hvattir til að taka vel á móti þeim.

Afrakstri af sölu Rauðu fjaðrarinnar þetta árið verður varið til kaupa á „Augnbotnamyndavél OCT” (optical coherence tomography). Þetta er tæki til myndgreiningar á augnbotnum, sjónhimnu og sjóntaugum. Það mun nýtast við greiningar og eftirlit á augnsjúkdómum sem og við fræðslu fyrir notendur. Myndrannsóknin tekur bæði til yfirborðs ásamt því að sýna dýpri lög, eins konar sneiðmyndataka af sjónhimnu og sjóntaug og veitir því mun ítarlegri upplýsingar en hefðbundin augnbotnamyndataka.   OCT þykir í dag og er til framtíðar nauðsynlegt tæki við eftirlit á t.d. hrörnun í augnbotnum, sem er algengasti augnsjúkdómur meðal eldra fólks. Tækið nýtist einnig fyrir aðra hrörnunarsjúkdóma í augum.  Hvert tæki kostar um 10.000.000 kr.  Breytingar á augnbotnum er einn fylgifiska sykursýki en tengsl eru milli sykursýki og blindu.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.