�?ú skrifar svo fallega málsgrein í restina á greininni þinni að það er unun að lesa en sú málsgrein hljóðar svo �?�? Árið framundan er spennandi. Í krafti lýðræðis höfum við tækifæri til að móta umhverfi okkar. �?g hvet alla til að nýta sér það enda fara þar saman hagsmunir þess sem okkur er dýrmætast, komandi kynslóða og landsins alls,, �?etta er að mínu mati mjög mikilsverður eiginleiki að hafa, hlusta á íbúana taka tillit til skoðana þeirra þegar eindreginn vilji liggur fyrir og svo framvegis. En lítum nú aðeins á málin kæra Elsa. Eins og þú veist mæta vel höfum við íbúar �?orlákshafnar haft þann djöful að draga undanfarin mörg ár að hér starfar illa þefjandi hausaþurkunarverksmiðja sem spúir ógeðslegri mengun hér yfir bæinn okkar, ég veit vel að við deyjum ekki af þessari mengun en hún er þess eðlis að ólíft er í bænum á stundum, og þeim mun betra sem veðrið er þeim mun verri er lyktin. �?g er búinn að búa hér í 10 ár og þessi mengun hefur farið hríð versnandi með hverju árinu og allra verst hefur það verið síðastliðið eitt og hálft ár eða svo. Hver helgin á fætur annarri í sumar og um verslunarmannahelgina var slík pest hér að ólíft var í bænum, þetta hefur haldið stöðugt áfram og endaði svo árið 2006 með mikilli pest á gamlársdag. �?g rifja þetta hér upp kæra Elsa vegna þess að fyrir mér hljómar þessi lýðræðisást þín sem hrein öfugmælavísa og rúmlega það. Undanfarin ár höfum við íbúar hér kvartað margsinnis yfir þessari lykt hér, fleiri hundruð íbúar hér rituðu nafn sitt undir mótmæli við þessari starfsemi þegar kom til leyfisveitingar um árið þú manst. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins �?lfuss óskaði einróma eftir því að heilbrigðiseftirlit Suðurlands sem þú stýrir veitti ekki áframhaldandi starfsleyfi nú í haust. Allnokkrar athugasdemdir komu frá einstaklingum sem mótmæltu þessu starfsleyfi. Eins og þú veist kæra Elsa þótti þér og þínu slekti í heilbrigðisnefnd ekki ástæða til að taka tillit til okkar íbúanna og samhljóða álit okkar fulltrúa í bæjarstjórn, nei ekki aldeilis, starfsleyfið var auglýst til 18 mánaða og eftir öll mótmælin okkar hér voruð þið svo vinsamleg að veita þeim leyfið til 48 mánaða það er 30 mánuðum umfram tillöguna sem íbúarnir hér mótmæltu hvað harðast. �?g veit vel kæra Elsa að þú og þitt slekti í heilbrigðisnefnd þurfið ekki að búa við þessar aðstæður, ég veit líka að þið þurfið ekki að taka inn þvottinn ykkar þannig að þið kúgist á meðan þið eruð að troða honum aftur í þvottavélina til að þvo úr honum sítalyktina, ég tel líka víst að þið getið verið útivið á góðviðrisdögum án þess að verða fyrir ónæði sem þessu, ég veit líka að ykkur er skít sama þó að við þurfum að búa við þessar aðstæður, annars hefðuð þið ekki afgreitt þetta starsleyfi svona. Að mati okkar íbúanna hér eruð þið gersamlega óhæf til að sinna því sem þið eruð að gera í þessari heilbrigðisnefnd. �?ið hafið sýnt okkur slíkan dónaskap að fáheirt er, kæra Elsa. �?að hefur lengi verið talið að stjórnmálamenn segi eitt og geri svo annað, það sannaðist svo rækilega á þessari grein þinni kæra Elsa, við höfum nægilega marga slíka, og þurfum þess vegna ekki einn til viðbótar.
Megi nýtt ár færa Sunnlendingum svo og landsmönnum öllum gæfu og gott gengi.
Magnús Guðjónsson
�?orlákshöfn
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst