
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í gær tillögu að breyttu deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein. Tillagan gerir ráð fyrir aðstöðu fyrir líkamsrækt, niðurrifi eldri búningsklefa og nýjum byggingarreit við inngang íþróttamiðstöðvarinnar. Málið fer nú til staðfestingar bæjarstjórnar.
Samkvæmt tillögunni verður nýr tveggja hæða byggingarreitur fyrir líkamsrækt við norðvesturhluta íþróttamiðstöðvarinnar. Jafnframt er gert ráð fyrir að eldri klefar verði rifnir og að nýr tveggja hæða byggingarreitur komi við innganginn.
Fulltrúi M-lista lagði til að málinu yrði frestað og fundað með hagsmunaaðilum áður en frekari ákvarðanir yrðu teknar. Markmiðið væri að móta heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið með hliðsjón af þörfum íþróttafélaga og annarra notenda. Tillagan var felld með fjórum atkvæðum fulltrúa D- og E-lista gegn einu atkvæði M-lista.
Í bókun M-lista segir að uppbygging af þessari stærð þurfi að byggjast á skýrri framtíðarsýn og raunverulegu samráði. Þar er sérstaklega nefnt að framtíðaraðstaða fyrir fimleika hefði átt að koma inn í umræðuna. M-listinn telur auglýsingu deiliskipulagstillögunnar ekki geta komið í stað samtals við þá sem nota aðstöðuna.
Fulltrúar D-lista segja að unnið hafi verið að framtíðarskipulagi íþróttamála í samstarfi við hagsmunaaðila á undanförnum árum. Þeir telja frestun geta tafið uppbyggingu heilsuræktaraðstöðunnar og benda á að auglýsing deiliskipulagstillögunnar gefi hagsmunaaðilum færi á að gera athugasemdir.
Í annarri bókun D-lista kemur fram að samkvæmt fyrirliggjandi samkomulagi beri rekstraraðili kostnað af þeirri uppbyggingu sem deiliskipulagsbreytingin tekur til.
Deiliskipulagstillagan var að lokum samþykkt með fjórum atkvæðum D- og E-lista gegn einu atkvæði M-lista og vísað til staðfestingar bæjarstjórnar. Ráðið óskaði jafnframt eftir því að listaverkinu Sólsteini yrði komið fyrir við dvalarsvæði hjá nýjum inngangi íþróttamiðstöðvarinnar.