Lundasumarið 2026

Lundaballið er um næstu helgi og lundinn er farinn og engin pysja á höfninni í dag og því rétt að gera upp lundasumarið. Ég sá fyrstu lundana setjast upp þann 14. apríl í vor og fljótlega var ljóst að um gríðarlegt magn væri að ræða, ég hef reyndar engar tölur á hversu mörg myndbönd ég […]
Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?

Á morgun, miðvikudaginn 23. september, verður haldinn fyrirlestur í Sagnheimum þar sem fjallað verður um áhrif hreyfingar, næringar og svefns á heilsu og líðan. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?“ og er hluti af verkefninu #BEACTIVE. Thelma Rut Grímsdóttir næringarfræðingur og Tinna Tómasdóttir talmeinafræðingur munu fjalla um mikilvægi daglegra […]
Ágreiningur um framtíðarskipulag íþróttasvæðisins við Hástein

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í gær tillögu að breyttu deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein. Tillagan gerir ráð fyrir aðstöðu fyrir líkamsrækt, niðurrifi eldri búningsklefa og nýjum byggingarreit við inngang íþróttamiðstöðvarinnar. Málið fer nú til staðfestingar bæjarstjórnar. Samkvæmt tillögunni verður nýr tveggja hæða byggingarreitur fyrir líkamsrækt við norðvesturhluta íþróttamiðstöðvarinnar. Jafnframt er gert ráð […]
Bergey og Vestmannaey með fullfermi í Neskaupstað

Ísfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE hafa báðir landað fullfermi í Neskaupstað síðustu daga. Bergey kom til löndunar á sunnudag og Vestmannaey í gær, mánudag. Skipstjórarnir segja frá veiðiferðunum á vef Síldarvinnslunnar. Þorskurinn uppistaðan hjá Bergey Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, segir veiðarnar hafa gengið vel. „Við fórum út á fimmtudagskvöld og komum til […]
Hefja þarf undirbúning að nýsmíði sem allra fyrst

Árið 2026 hefur verið óvenju viðburðaríkt í rekstri Herjólfs. Langvarandi erfiðleikar í Landeyjahöfn, bilun í öðrum rafmótor skipsins og bruni í gagnaveri bókunarkerfisins reyndu mjög á starfsemina. Á sama tíma varð reynslan af Baldri til þess að undirstrika mikilvægi öflugs varaskips fyrir Vestmannaeyjar. Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., segir nauðsynlegt að hefja undirbúning að […]
„Ég lít sáttur til baka“

Fyrir skömmu var ársfundur þekkingarsetra landsins haldinn í Vestmannaeyjum. Hörður Baldvinsson, framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja, lét þar af formennsku eftir eitt ár og tók Bryndís Fiona Ford, forstöðukona hjá Austurbrú, við af honum. Auk Þekkingarseturs Vestmannaeyja eiga aðild að samstarfinu Háskólasamfélagið í Árborg, Þekkingarsetrið á Höfn í Hornafirði, Austurbrú á Austurlandi og þekkingarsetrin á Húsavík og […]
Erfitt ár hjá Herjólfi – Reksturinn undir áætlun

Herjólfur ohf. hefur átt erfitt ár eftir gott ár 2025. Langvarandi lokun Landeyjahafnar, siglingar til Þorlákshafnar og bilun í rafmótor Herjólfs settu reksturinn töluvert undir áætlun fyrstu fjóra mánuðina. Vegna bilunarinnar var Baldur kallaður til afleysinga. Hann sigldi fyrst maí og síðan í júní til 22. júlí. Alls flutti Baldur nær 30 þúsund farþega og […]
Meiri halli fyrirséður hjá Náttúrustofu Suðurlands

Útlit er fyrir að halli á rekstri Náttúrustofu Suðurlands verði meiri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Lægra framlag ríkisins og meiri launakostnaður hafa áhrif á reksturinn. Bæjarráð Vestmannaeyja fór yfir stöðu Náttúrustofu Suðurlands á fundi sínum í síðustu viku. Fram kom að framlag ríkisins til stofnunarinnar væri lægra en gert hafði verið ráð fyrir. Hlutur […]