Bergey og Vestmannaey með fullfermi í Neskaupstað
Eyjarnar í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE hafa báðir landað fullfermi í Neskaupstað síðustu daga. Bergey kom til löndunar á sunnudag og Vestmannaey í gær, mánudag. Skipstjórarnir segja frá veiðiferðunum á vef Síldarvinnslunnar.

Þorskurinn uppistaðan hjá Bergey

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, segir veiðarnar hafa gengið vel.

„Við fórum út á fimmtudagskvöld og komum til löndunar á sunnudagsmorgun þannig að veiðarnar gengu býsna vel. Það vantaði fisk í vinnsluna hjá Vísi í Grindavík þannig að við höfðum heimild til að taka þorsk í túrnum og langmestur hluti aflans var þorskur. Við vorum mest að veiðum í Litladýpinu og síðan einnig við Gullfestuna. Veður var ljúft og gott og í reynd gekk þetta eins og best verður á kosið,“ segir Ragnar Waage.

Ýsan lét bíða eftir sér

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir áhöfnina hafa leitað nokkuð að ýsu án árangurs. Góð veiði fékkst hins vegar á Þórsbanka.

„Við byrjuðum að toga á Pétursey og héldum austur eftir í ýsuleitinni en ýsan lætur bíða eftir sér. Við enduðum á Þórsbankanum og þar var góð veiði. Það fæst alltaf fallegur fiskur á Þórsbanka og þar fékkst núna þorskur og talsvert af blálöngu. Um helmingur aflans í veiðiferðinni var þorskur en síðan var þetta mest blálanga, ufsi og karfi,“ segir Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.