Lundasumarið 2026
Greinarhöfundur bendir á að lundapysjan hafi verið óvenju vel gerð í ár.
Georg Eiður Arnarson

Aðsend grein

Georg Eiður Arnarson

Lundaballið er um næstu helgi og lundinn er farinn og engin pysja á höfninni í dag og því rétt að gera upp lundasumarið.

Ég sá fyrstu lundana setjast upp þann 14. apríl í vor og fljótlega var ljóst að um gríðarlegt magn væri að ræða, ég hef reyndar engar tölur á hversu mörg myndbönd ég hef tekið af miklu lundaflugi í sumar, en þetta er bara skemmtilegt.

Lundapysjan var óvenju vel gerð í ár, enda var hún fljót að láta sig hverfa úr höfninni, en ég kom m.a. heim einu sinni um hádegisbil og sá þá lundapysju koma hlaupandi út úr garðinum. Það var hæg norðanátt, en hún tók sig bara á loft hérna fyrir utan húsið hjá mér og flaug yfir ráðhúsið í norðurátt.

Í ágætum þætti á RÚV um lundapysjuna núna í lok ágúst, tók ég eftir því að fréttamaðurinn spurði einn starfsmann í pysjueftirlitinu hvernig gengi og fékk þetta furðulega svar:

Það er gríðarlega mikilvægt að bjarga hverri einustu pysju því þetta er stofn í útrýmingarhættu.

Svona bull er náttúrulega ekki til þess að hjálpa okkur og ég man eftir því í kringum 2010 að neikvæðnin sem fylgdi Erpi hérna á þessum árum, gerði það að verkum að hér komu ferðamenn sem furðuðu sig á því að hér væri yfirhöfuð nokkur lundi eftir. Svona neikvæðni skilar engu nema enn meiri neikvæðni.

En lundastofninn er á mikilli uppsiglingu allt í kring um landið og reikna má með að stofninn hér í Eyjum hafi sennilega stækkað um tæplega milljón í ár. Veiðarnar yfir lundatímann, eftir því sem ég hef heyrt, nær sennilega ekki sambærilegri tölu og helminginum af bæjarpysjunni.

En er þá bara allt frábært? Nei, ekki alveg. Ég komst eina ferð út í Miðklett í sumar, en varð eiginlega að hverfa frá vegna þess að mávurinn er eiginlega búinn að leggja Miðklettinn undir sig. Sama gildir vestur í Eysteinsvík. Vandamálið sem fylgir mávinum er svo sem þekkt, hann étur ca. 95% af öllum æðakolluungum, allar pysjur sem hann nær í og eiginlega bara alla unga sem hann nær í frá öðrum fuglum. Greinilega hefur honum fjölgað gríðarlega hérna á þessum síðustu árum, en þekkt er víða í úteyjum víða í kring um landið að þar skjóta menn hann alls staðar þar sem hann reynir að nema land.

Ég ætla að enda þetta með einni lítilli sögu frá mér sem er ca. 40 ára gömul og tengist einmitt mávinum.

Efsti veiðistaðurinn í Miðkletti er einn af mörgum uppáhalds veiðstöðunum mínum, gallinn við staðin er að þar fyrir ofan er alltaf mikið af mávum og ég tók mig til eitt sumarið og ákvað að ræna eggjunum reglulega af pari sem var þarna á versta stað. Ég byrjaði því að ræna hreiðrið í byrjum maí og hélt þessu áfram alveg fram í byrjun júlí og var ég þá búinn að hirða 18 egg af þessu sama pari, samt sá ég þau vera með þrjá unga um mánaðarmótin ágúst/september. Mávurinn hefur að mörgu leiti notagildi, hann drepur og nýtir veika og særða fugla en þegar stofninn verður of stór, þá erum við í vanda.

Óska öllum góðrar skemmtunar á lundaballinu um næstu helgi.

 

Georg Eiður Arnarson

Nýjustu fréttir

Lundasumarið 2026
Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?
Ágreiningur um framtíðarskipulag íþróttasvæðisins við Hástein
Bergey og Vestmannaey með fullfermi í Neskaupstað
Hefja þarf undirbúning að nýsmíði sem allra fyrst
„Ég lít sáttur til baka“
Erfitt ár hjá Herjólfi – Reksturinn undir áætlun 
Meiri halli fyrirséður hjá Náttúrustofu Suðurlands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.