Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hefur ákært mann fyrir hatursorðræðu vegna ummæla sem birt voru í kommentakerfi DV í nafni eiginkonu hans. Aðalmeðferð fer fram í dag greinir
Fréttablaðið frá.
Ummælin voru skrifuð í júlí 2016 við frétt sem bar yfirskriftina �??Sema Erla sökuð um herferð gegn �?tvarpi Sögu: Birtir hatursfull skilaboð�?? og undir fréttinni var skrifað: �??Vona að Sema Erla Serðir farist í næstu hryðjuverkaárás skítmenna af hennar tagi (múslimaskítmenna).�?? Í ákæru eru þessi orð talin fela í sér sér ógnun, háð, rógburð og smánun á opinberum vettvangi í garð ótiltekins hóps manna hér á landi vegna trúarbragða þeirra.
Ummælin birtust undir nafni og starfsheiti konu hins ákærða. Ummælin komu eiginkonunni sjálfri í opna skjöldu þegar hún áttaði sig á þeim, en skjáskot af þeim fóru um alla samfélagsmiðla. Í samtali við DV eftir að ummælin féllu sagðist hún enga hugmynd hafa um hver gæti hafa skrifað athugasemdina, sem var rituð í gegnum Facebook-aðgang konunnar. �?á lýsir konan því að henni sé þetta ekki eingöngu þungbært hennar vegna heldur einnig vegna þess hve margir hafi farið að rakka Vestmannaeyjar niður með orðum um að þetta yrði þaggað niður því þannig væru Vestmannaeyjar.
�?á virðist lögreglan í Vestmannaeyjum hafa tekið frumkvæði í málinu, því ummælin voru aldrei kærð.