Aldan á uppleið og Álfsnesið í viðgerð
Vonast til að dýpkun hefjist aftur á miðvikudag
Sanddæluskipið Álfsnes fyrir utan Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Aldan fer nú hækkandi í Landeyjahöfn og því verða aðstæður erfiðari næstu daga. Samkvæmt upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar, gera veðurspár þó ráð fyrir að aldan gangi niður á miðvikudag.

„Samkvæmt spánni verður þá veður til dýpkunar fram á laugardag,“ segir Pétur. Á meðan verður dýpkunarskipið Álfsnesið í viðgerð í Þorlákshöfn eftir bilun sem kom upp á dögunum.

„Álfsnesið fer til Þorlákshafnar þar sem ný tjakkastöng verður sett í skipið í stað þeirrar sem bilaði þannig að botnhlerinn sem ekki hefur nýst eftir bilunina komist aftur í virkni,“ segir Pétur.

Um er að ræða einn af átta botnhlerum skipsins sem notaðir eru til að losa efnið sem dælt er upp við dýpkunina.

Samkvæmt Pétri verður unnið hratt að viðgerðinni.

„Viðgerðin verður unnin strax og verður Álfsnesið tilbúið til dýpkunar þegar glugginn opnast aftur á miðvikudaginn,“ segir hann.

Nýjustu fréttir

„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.