Árangurinn liggur fyrir – Höldum áfram

Nú þegar síðasti fundur framkvæmda og hafnarráðs á þessu kjörtímabili er að baki er tilefni til að líta yfir helstu verkefni sem unnin hafa verið síðustu ár. Tímabilið hefur verið krefjandi og afar gefandi. Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð saman. Hér fyrir neðan eru þau verkefni sem helst standa upp […]
Siglt til Þorlákshafnar

Herjólfur ohf. hefur gefið út tilkynningu um breytta siglingaáætlun vegna aðstæðna í Landeyjahöfn. Samkvæmt tilkynningunni verður siglt til Þorlákshafnar seinnipart mánudags og í fyrri ferð þriðjudags, en aðrar ferðir falla niður á þeim tíma. Í dag, mánudaginn 11. maí, verður brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 16:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 20:00. Aðrar ferðir dagsins falla niður. […]
Island Adventures opnar í Eyjum

Nýtt ferðaþjónustufyrirtæki hefur hafið starfsemi í Vestmannaeyjum undir nafninu Island Adventures, en fyrirtækið byggir á gömlum grunni. Undanfarið hefur verið unnið að uppbyggingu fyrir miðasölu og móttöku ferðamanna og má því segja að spennandi tímar séu fram undan hjá fyrirtækinu. Markmiðið að bjóða upp á fjölbreyttar og skemmtilegar upplifanir í Eyjum þar sem náttúra, saga […]
Tanja Harðardóttir í lokahóp u-16 fyrir Opna Evrópumótið

Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson hafa valið lokahóp u-16 ára landsliðs kvenna sem mun keppa á Opna Evrópumótinu í handbolta. Mótið fer fram í Gautaborg, dagana 29. júní til 3. júlí. Tanja Harðardóttir, leikmaður ÍBV, er í landsliðshópnum en hópurinn skipar sextán leikmenn, auk fjögurra varamanna. Ísland er í riðli með Ungverjalandi, Króatíu, Tékklandi […]
Dýpkun, bilun og bruninn í Hollandi setja mark sitt á Herjólf

Herjólfur ohf. birtir í dag stöðuuppfærslu þar sem farið er yfir þær fjölmörgu áskoranir sem félagið hefur staðið frammi fyrir það sem af er ári. Þar er meðal annars fjallað um erfiða stöðu í Landeyjahöfn, bilun í rafmótor Herjólfs og langvarandi truflanir á bókunarkerfi félagsins eftir bruna í gagnaveri í Hollandi. Í tilkynningunni sem Ólafur […]
Minnisvarðinn vígður á morgun

Fyrri áfangi listaverks Ólafs Elíassonar við Eldfell verður vígður á morgun, þriðjudaginn 12. maí. Dagskráin hefst klukkan 16:30 í Safnahúsi með kynningu á stöðu verkefnisins. Sif Pálsdóttir landslagsarkitekt fer yfir hönnun á bílastæði og göngustígnum sem verður gerður. Klukkan 17:15 fer fram athöfn við útsýnisskálann á nýja hrauninu þar sem Ólafur Elíasson listamaður, Hanna Katrín […]
Aldan á uppleið og Álfsnesið í viðgerð

Aldan fer nú hækkandi í Landeyjahöfn og því verða aðstæður erfiðari næstu daga. Samkvæmt upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar, gera veðurspár þó ráð fyrir að aldan gangi niður á miðvikudag. „Samkvæmt spánni verður þá veður til dýpkunar fram á laugardag,“ segir Pétur. Á meðan verður dýpkunarskipið Álfsnesið í viðgerð í Þorlákshöfn eftir […]
Skólalóðin

Þegar ég var lítill peyji í grunnskóla voru flestir ágætis vinir eða kunningjar. Við lékum okkur saman og lífið var alveg ágætt, samt var alltaf ákveðin spenna í loftinu. Það voru nefnilega ekki allir jafnir fyrir reglum skólalóðarinnar. Pínulítill hópur krakka stjórnaði öllu, þetta gerðu þau með því að öskra, hóta og lemja. Ef einhver […]
Fagleg nálgun Eyjalistans í leikskólamálum

Menntasamfélagið Vestmannaeyjar Það sem brennur helst á mér fyrir komandi kosningar eru leikskólamál í Vestmannaeyjum. Við búum í miklu menntasamfélagi sem hefur fengið verðskuldaða athygli með tilkomu þróunarverkefnisins “Kveikjum neistann”. Það er vel og skiptir sköpum að bæjarfélagið haldi áfram stuðningi sínum við verkefnið á meðan það er í þróunarferli og vonandi áfram að því […]