Árangurinn liggur fyrir - Höldum áfram
Erlingur Guðbjörnsson

Aðsend grein

Erlingur Guðbjörnsson

Nú þegar síðasti fundur framkvæmda og hafnarráðs á þessu kjörtímabili er að baki er tilefni til að líta yfir helstu verkefni sem unnin hafa verið síðustu ár. Tímabilið hefur verið krefjandi og afar gefandi. Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð saman. Hér fyrir neðan eru þau verkefni sem helst standa upp úr, bæði hjá bænum og höfninni.

Gatnaframkvæmdir

Strandvegur var malbikaður frá gatnamótum við Heiðaveg og út að Eiði. Vesturvegur var endurnýjaður frá Heiðarvegi að Skólavegi. Þar voru lagðar nýjar fráveitulagnir, malbikað og gangstéttir hellulagðar. Á Sólhlíð hófst vinna í byrjun árs við endurnýjun fráveitulagna. Þar verður malbikað og lagðar nýjar hellur á gangstíga, og á verkinu að ljúka í sumar. Á næsta kjörtímabili þarf að gefa í. Hásteinsvegur og Faxastígur eru komnir á tíma og við þurfum að hefja þar framkvæmdir sem allra fyrst.

Gatnalýsing

Skipt var út gömlum ljósalömpum og sett upp LED-lýsing um allt sveitarfélagið. Verkið er langt komið og mun draga úr orkunotkun og lækka rekstrarkostnað til framtíðar.

Vigtartorg

Vigtartorg var fullklárað á kjörtímabilinu. Það eina sem eftir stendur er að setja upp svið sem kemur í sumar, og jafnframt er verið að skoða möguleikann á þjónustuhúsum fyrir ferðaþjónustu á svæðinu.

Hásteinsvöllur

Á Hásteinsvelli var lagt nýtt gervigras og hitalagnir settar undir völlinn. Flóðlýsing verður sett upp í sumar og mun völlurinn þá bjóða upp á alvöru heilsárs aðstöðu sem við getum verið stolt af.

Sorpmál

Við tókum stórt skref í átt að sjálfbærni með því að innleiða hringrásarhagkerfið. Þetta er breyting sem mun vonandi skila sér til framtíðar og byggir á því að draga úr sóun og nýta auðlindir betur.

Hringrásarhagkerfið felur í sér að efni og hráefni séu endurnýtt eins oft og hægt er, að minna fari í urðun og að úrgangur verði frekar hluti af nýjum ferlum. Markmiðið er að skapa kerfi þar sem minna fer til spillis og meira nýtist aftur.

Margt má betur fara í sorpmálum og við þurfum að finna leiðir til að vera enn sjálfbærari og koma okkur sorpbrennslu stöð hér í eyjum sem við þá getum nýtt orku til húshitunar frá.

 

Hafnarmál

Hafnarsvæðið hefur tekið miklum breytingum á kjörtímabilinu og munurinn frá upphafi tímabilsins er verulegur.

  • Gangvegir frá Nausthamri að Tanganum hafa gjörbreytt aðstæðum á svæðinu.
  • Húsið við Skildingaveg 4 (Skallaból) var rifið til að bæta aðkomu fyrir fraktflutninga og skapa meira pláss fyrir vagna, rútur og biðlista.
  • Sett var upp öryggishlið sem styrkir aðgengi og öryggi á athafnasvæðinu.
  • Gjábakkakantur var lagfærður og settur upp rampur fyrir ekjufraktskip, sem bætir þjónustu og aðstöðu fyrir sjóflutninga.
  • Nýr dráttarbátur kom til okkar núna í apríl sem á eftir að vera stoð og styrkur fyrir þau fjölmörgu verkefni sem höfnin sinnir.

Stórskipakantur og uppfylling á Eiði

Vinna við undirbúning stórskipahafnar var eitt umfangsmesta og mikilvægasta verkefni kjörtímabilsins. Þetta er innviðauppbygging sem mun hafa áhrif á atvinnulíf, flutninga og ferðaþjónustu næstu áratugina.

Markmiðið er að:

  • taka á móti stærri skipum
  • bæta öryggi og afgreiðslugetu.
  • styðja við sjávarútveg, laxeldi, ferðaþjónustu og fraktflutninga.
  • efla hafnarsvæðið sem lykilinnvið fyrir allt Suðurland.

Einnig þarf að fara í uppfyllingu út af Eiðinu. Unnið hefur verið að grjótleit á haugasvæði til að finna hentugt efni í uppfyllingu og gerð stórskipakants, mótun og styrkingu Eiðis og undirbúning svæðisins sem nýs athafnasvæðis. Þetta er forsenda þess að hægt sé að byggja kantinn sjálfan.

Þegar stórskipakantur verður að veruleika mun það:

  • styrkja sjávarútveginn.
  • bæta aðstöðu fyrir fraktflutninga.
  • gera okkur samkeppnishæfari í móttöku skemmtiferðaskipa..
  • skapa ný störf.
  • efla hafnarsvæðið sem hjarta atvinnulífsins.

 

Að lokum

Hér hefur verið stiklað á stóru en mörg önnur verkefni hafa komið inn á borð til okkar. Varðandi höfnina þá eru nokkur verkefni sem ekki hefur verið farið af stað með þar sem þau eru föst í samgönguáætlun sem er ósamþykkt á Alþingi.

Það hefur verið mikill heiður að fá að leiða framkvæmda og hafnarráð á þessu kjörtímabili sem nú er að ljúka. Verkefnin hafa verið mörg og umfangsmikil, og við höfum séð áþreifanlegar breytingar í bænum og á hafnarsvæðinu.

Við stöndum þó ekki á endastöð. Fjölmörg verkefni bíða okkar, verkefni sem þarf að klára, fylgja eftir og þróa áfram. Við viljum halda áfram að leiða bæinn áfram til betri verka, byggja á þeirri vinnu sem þegar hefur verið lögð og tryggja að þau tækifæri sem fram undan eru nýtist samfélaginu sem best.

 

Gerum góðan bæ betri.

 

Erlingur Guðbjörnsson

Skipar 3 sæti Eyjalistans.

 

Nýjustu fréttir

Árangurinn liggur fyrir – Höldum áfram
Siglt til Þorlákshafnar
Island Adventures opnar í Eyjum
Tanja Harðardóttir í lokahóp u-16 fyrir Opna Evrópumótið
Dýpkun, bilun og bruninn í Hollandi setja mark sitt á Herjólf
Minnisvarðinn vígður á morgun
Aldan á uppleið og Álfsnesið í viðgerð
Skólalóðin
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.