Dýpkun, bilun og bruninn í Hollandi setja mark sitt á Herjólf
Herjólfur á siglingu frá Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Herjólfur ohf. birtir í dag stöðuuppfærslu þar sem farið er yfir þær fjölmörgu áskoranir sem félagið hefur staðið frammi fyrir það sem af er ári. Þar er meðal annars fjallað um erfiða stöðu í Landeyjahöfn, bilun í rafmótor Herjólfs og langvarandi truflanir á bókunarkerfi félagsins eftir bruna í gagnaveri í Hollandi.

Í tilkynningunni sem Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri skrifar undir segir að undanfarna daga hafi verið hægt að sigla skerta áætlun til Landeyjahafnar, en enn vanti talsvert upp á að nægilegt dýpi sé komið í höfnina. Þá sé veðurspá næstu daga óhagstæð fyrir áframhaldandi dýpkun, þó unnið verði áfram um leið og færi gefist.

Einnig kemur fram að rafmótorinn sem bilaði í síðasta mánuði hafi verið sendur til Hollands í viðgerð og að gert sé ráð fyrir að viðgerðin taki um sjö vikur. Herjólfur verði tekinn úr áætlun í nokkra daga þegar mótorinn verði settur aftur í skipið. Þá segir að enn sé óljóst hvort Herjólfur III geti leyst af, þar sem Vegagerðin vinni enn að því að fá haffærniskírteini fyrir skipið.

Einnig er farið yfir stöðuna á bókunarkerfinu sem varð óvirkt eftir eld í gagnaveri í Hollandi. Vegna þess þurfi nú að færa allar bókanir inn handvirkt sem taki mikinn tíma og því sé aðeins hægt að bóka í fáar ferðir í einu. ,,Við erum ósátt við hversu langan tíma það tekur að koma henni aftur í gagnið, en vonum að það taki ekki marga daga til viðbótar að fá hana í lag. Við búum því við þær aðstæður að færa allar bókanir inn handvirkt, sem er mjög tímafrekt. Þess vegna er einungis hægt að bóka í fáar ferðir í einu.”

Að lokum þakkar félagið bæði starfsfólki og farþegum fyrir þolinmæði og samstöðu á krefjandi tímum og biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem skapast hafa. Þar segir jafnframt að vonir standi til þess að með hækkandi sól fari ástandið að lagast.

Nýjustu fréttir

Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.