Almenn ánægja foreldra með þjónustu Frístundavers
Á síðasta fundi fræðsluráðs var greint frá helstu niðurstöðum gæðakönnunar í frístundaveri skólaárið 2016 til 2017. Alls svöruðu 38 foreldrar af u.þ.b. 70 könnuninni sem var rafræn og nafnlaus.
Nálægt 95% foreldra sem svöruðu töldu að barninu þeirra liði vel í frístundaverinu og svipaður fjöldi var ánægður með samskipti við stjórnanda. Um 78% foreldra voru almennt ánægðir með þjónustuna í frístundaverinu. Foreldrar voru yfirleitt sammála því að starfsfólk væri alúðlegt við börnin og samskipti forráðamanna og barnanna við starfsmenn væru góð.
Foreldrar lýstu sérstakri ánægju með heilsdagsopnun sem boðið er uppá á starfsdögum skólans, í vetrarfríi og virkum dögum í jóla- og páskafríi. �?egar farið var yfir þætti sem síður var ánægja með var helst nefnt að viðfangsefnin væru ekki nægilega fjölbreytt og að reglurnar og eftirfylgd þeirra þyrftu að vera skýrari.
Að umgengni mætti vera betri og of mikill óróleiki og hávaði. Ábendingar komu um það sem þyrfti að laga í húsnæðinu og varðandi leiktæki á útilóð o.fl. Jafnframt komu nokkrar góðar ábendingar um fyrirkomulag innra starfsins, sem verða ræddar við starfsmenn og nýjan yfirmann sem tekur til starfa 1. ágúst n.k.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.