Andri og Arnór í eldlínunni í Svíþjóð
Andri Erlingsson í leik með ÍBV á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Eyjamennirnir Andri Erlingsson og Arnór Viðarsson voru báðir í eldlínunni með félagsliðum sínum þegar sænska úrvalsdeildin í handbolta hófst í kvöld.

Andri lék með Kristianstad í 28-27 heimasigri á Hammarby í spennandi leik. Hann skoraði fjögur mörk úr sex skotum og gaf auk þess þrjár stoðsendingar.

Arnór og félagar hans í Karlskrona tóku á móti Allingsås á heimavelli. Leiknum lauk með 28-34 sigri gestanna. Arnór skoraði fjögur mörk úr tíu skotum fyrir Karlskrona og gaf að auki þrjár stoðsendingar.

Nýjustu fréttir

Úrslit Vöruhúsdeildarinnar fara fram á laugardaginn
Bæjaryfirvöld hafna samantekt úr opnu bókhaldi – án leiðréttingar
Kristín Klara valin í lokahóp U19 landsliðsins
SFS vilja lækka kolefnisgjald sem hefur meira en tvöfaldast frá 2024
Námið mætir barninu þar sem það er statt 
Arnór skoraði níu mörk í tapi Karlskrona
Nóvemberblað Eyjafrétta komið út
Eyjamenn geta farið upp fyrir Aftureldingu með sigri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.