Andri og Arnór í eldlínunni í Svíþjóð

Eyjamennirnir Andri Erlingsson og Arnór Viðarsson voru báðir í eldlínunni með félagsliðum sínum þegar sænska úrvalsdeildin í handbolta hófst í kvöld. Andri lék með Kristianstad í 28-27 heimasigri á Hammarby í spennandi leik. Hann skoraði fjögur mörk úr sex skotum og gaf auk þess þrjár stoðsendingar. Arnór og félagar hans í Karlskrona tóku á móti […]

Herjólfur hefur siglt 200 ferðir til Þorlákshafnar á árinu

Herjólfur fór sína 200. ferð til Þorlákshafnar á árinu í gær, þriðjudag. Þorlákshafnarferðir hafa aldrei verið jafn margar á einu ári síðan Herjólfur IV hóf siglingar milli lands og Eyja. „Það er kunnara en frá þurfi að segja að fyrri hluti ársins reyndist okkur verulega erfiður,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs. „Frá 15. janúar […]

Milena í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM

Milena Mihaela Patru, leikmaður ÍBV í fótbolta, hefur verið valin af Margréti Magnúsdóttur, landsliðsþjálfara, í lokahóp U17 ára landsliðs Íslands sem tekur þátt í fyrri umferð undankeppni Evrópumótsins 2027. Leikið verður í Þýskalandi þar sem Ísland er í riðli með heimakonum, Tékklandi og Kasakstan. Liðið sem endar í neðsta sæti riðilsins fellur niður í B-deild […]

Ellefu tonna hol af blálöngu hjá Breka

maggi_breki_vsv_is

Breki VE fékk góðan afla undir lok síðustu veiðiferðar, þar á meðal óvenjulegt 11 tonna hol af blálöngu. Magnús Ríkarðsson skipstjóri segir frá veiðunum, skipinu og áhöfninni í myndbandsviðtali á vef Vinnslustöðvarinnar. Breki heldur næst í haustrall Hafrannsóknastofnunar, en Magnús er á leið í stutt frí og ætlar meðal annars á sjávarútvegssýninguna. Sjá má allt […]

Síðasta helgi bændamarkaðarins í Krónunni

Bændamarkaður Krónunnar verður haldinn í síðasta sinn á þessu ári helgina 25.–27. september. Í versluninni við Strandveg verður boðið upp á ferskt, ópakkað íslenskt grænmeti á meðan birgðir endast. Þetta er fimmta helgi markaðarins, sem hófst í lok ágúst í öllum 26 verslunum Krónunnar. Úrvalið í Eyjum getur breyst milli daga eftir uppskeru og afhendingum […]

Áform um fjórar nýjar íbúðir við Sólhlíð

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að hafin verði vinna við breytingu á deiliskipulagi vegna áforma um tvö ný fjölbýlishús á lóðinni við Sólhlíð 17. Alls er gert ráð fyrir fjórum íbúðum í húsunum. Fyrirspurn lóðarhafa gerir ráð fyrir að lóðinni verði skipt upp í þrjár lóðir. Nýju húsin, sem fá heitin Sólhlíð 17b og […]

Suðureyingar taka við keflinu á Lundaballinu

Suðureyingar eiga möguleika á að toppa sjáfa sig á Lundaballinu, uppskeruhátíð bjargveiðimanna í Vestmannaeyjum í Höllinni laugardaginn 26. september. Níu ár eru síðan þeir héldu ballið síðast, árið 2017, þegar rúmlega 400 manns sátu veisluna og Eyjafréttir lýstu kvöldinu með fyrirsögninni „Lundaballið 2017 var grand alla leið.“  Nú taka Suðureyingar við keflinu af Helliseyingum og […]

Óbætanlegt efnahagstjón verði þróuninni ekki snúið við

Áframhaldandi fall íslenskra barna í PISA getur haft gríðarleg áhrif á framtíðarlífskjör þjóðarinnar. Þetta kemur fram í viðtali Þórarins Hjartarsonar við Tryggva Hjaltason, framkvæmdastjóra farsældarhraðalsins Andvara, í hlaðvarpinu Ein pæling. Tryggvi varar við gríðarlegu efnahagstjóni verði þróuninni ekki snúið við en telur jafnframt fulla ástæðu til bjartsýni. Hann þekkir vel til skólastarfs í Vestmannaeyjum, átti […]

Gul viðvörun vegna austanstorms á Suðurlandi á morgun

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland frá klukkan 07.00 til 13.00 á morgun, fimmtudaginn 24. september. Spáð er austan 18–25 metrum á sekúndu og staðbundnum vindhviðum yfir 35 metrum á sekúndu, meðal annars í Vestmannaeyjum og undir Eyjafjöllum. Fólk er hvatt til að huga að lausamunum og varað er við varasömu ferðaveðri. […]

Binni Unnars skipstjóri - Á einni skrúfu í gegnum erfitt vor 

Fáir þekkja sjóleiðina milli lands og Eyja jafn vel og Brynjar Smári Unnarsson, eða Binni Unnars eins og hann er jafnan kallaður, skipstjóri á Herjólfi. Hann hefur starfað á Herjólfi í áratug og verið skipstjóri á nýja Herjólfi frá því skömmu eftir að hann kom til landsins. Síðustu mánuðir hafa reynt á bæði skip og […]

Ein ferð til Landeyjahafnar – ný tilkynning klukkan 11

Herjólfur siglir frá Vestmannaeyjum klukkan 07.00 og frá Landeyjahöfn klukkan 10.45. Ferðir frá Landeyjahöfn klukkan 08.15 og frá Vestmannaeyjum klukkan 09.30 falla niður. Þetta segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Nánari tilkynning um siglingar síðar í dag verður gefin út klukkan 11.00. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.