Síðasta helgi bændamarkaðarins í Krónunni
Ljósmyndir/aðsendar.

Bændamarkaður Krónunnar verður haldinn í síðasta sinn á þessu ári helgina 25.–27. september. Í versluninni við Strandveg verður boðið upp á ferskt, ópakkað íslenskt grænmeti á meðan birgðir endast.

Þetta er fimmta helgi markaðarins, sem hófst í lok ágúst í öllum 26 verslunum Krónunnar. Úrvalið í Eyjum getur breyst milli daga eftir uppskeru og afhendingum frá bændum, segir í tilkynningu frá Krónunni.

Bændamarkaðurinn er haldinn í tíunda sinn í samstarfi við Sölufélag garðyrkjumanna. Að sögn Krónunnar taka 20 bændur þátt í ár og hafa yfir 30 tegundir af íslensku grænmeti verið í boði. Grænmetið kemur meðal annars frá Flúðum, Reykholti, Laugarási, Vík, Hveravöllum og Varmalandi. Á markaðnum í fyrra seldust rúmlega 145 tonn af fersku og ópökkuðu grænmeti.

„Bændamarkaðurinn gerir okkur kleift að koma íslensku uppskerunni til fólks um allt land á sama tíma og hún er hvað ferskust. Það skiptir máli að aðgengi að nýuppteknu grænmeti takmarkist ekki við stærstu ræktunarsvæðin. Við vonum að Eyjamenn nýti síðustu helgina og njóti þess sem íslenskir bændur hafa ræktað af alúð í sumar,“ segir Jón Hannes Stefánsson, vöruflokkastjóri ávaxta og grænmetis hjá Krónunni.

Nýjustu fréttir

Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.