Herjólfur hefur siglt 200 ferðir til Þorlákshafnar á árinu
Herjólfur í Þorlákshöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Herjólfur fór sína 200. ferð til Þorlákshafnar á árinu í gær, þriðjudag. Þorlákshafnarferðir hafa aldrei verið jafn margar á einu ári síðan Herjólfur IV hóf siglingar milli lands og Eyja.

„Það er kunnara en frá þurfi að segja að fyrri hluti ársins reyndist okkur verulega erfiður,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs. „Frá 15. janúar til 24. maí sigldum við 196 ferðir til Þorlákshafnar og síðan hafa fjórar ferðir bæst við nú í september.“

Til samanburðar sigldi Herjólfur alls 138 ferðir til Þorlákshafnar árið 2025. Ólafur segir þó ástæðu til bjartsýni fyrir síðustu þrjá mánuði ársins. Haustmánuðirnir geti verið góðir og öflugt dýpkunarskip sé nú komið til starfa í Landeyjahöfn.

„Auðvitað vitum við að haustlægðirnar koma og aldan mun rísa, sem getur gert aðstæður við Landeyjahöfn erfiðar. Með öflugri dýpkun og breyttum dýpkunaraðferðum vonumst við hins vegar til þess að frátafir vegna aðstæðna í höfninni verði mun minni en við höfum áður séð,“ segir Ólafur.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.