Suðureyingar taka við keflinu á Lundaballinu
Lundaballið í Höllinni á laugardag :: Rúmlega 400 manns sátu veislu Suðureyinga síðast þegar þeir héldu ballið árið 2017 :: Nú er komið að þeim aftur 
Suðureyingar á leið út í eyju. Myndir/aðsendar.
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Suðureyingar eiga möguleika á að toppa sjáfa sig á Lundaballinu, uppskeruhátíð bjargveiðimanna í Vestmannaeyjum í Höllinni laugardaginn 26. september. Níu ár eru síðan þeir héldu ballið síðast, árið 2017, þegar rúmlega 400 manns sátu veisluna og Eyjafréttir lýstu kvöldinu með fyrirsögninni „Lundaballið 2017 var grand alla leið.“ 

Nú taka Suðureyingar við keflinu af Helliseyingum og ætla að tjalda öllu til í mat, skemmtun og stemningu. Á borðum verður meðal annars nýr og reyktur lundi, svartfugl og úrval fisk- og kjötrétta. Að borðhaldi loknu sjá Jónsi í Svörtum fötum og Gosarnir um fjörið á dansleiknum. 

Suðureyingar setja markið jafnan hátt þegar röðin kemur að þeim. Í aðdraganda ballsins 2017 fullyrtu þeir að það hefði „margsannað sig“ að Lundaböllin toppuðu sig þegar þeir héldu þau. Slík skot á hin veiðifélögin eru raunar hluti af hefðinni og kýtingurinn í aðdraganda Lundaballsins oft ekki síður skemmtilegur en það sem gerist á sjálfu ballinu. 

Grand alla leið 2017 

Síðasta Lundaball Suðureyinga var fjölsótt. Rúmlega 400 manns sátu veisluna, Páll Magnússon var veislustjóri og Einsi Kaldi sá um matinn. Karlakór Vestmannaeyja söng, börn Suðureyinga komu fram og heimagerð skemmtiatriði skipuðu stóran sess. 

Meðal eftirminnilegra atriða var endurkoma Geira og Grana eftir 22 ára fjarveru, en Hallgrímur Tryggvason og Þorsteinn Sigurðsson brugðu sér í þau hlutverk. Um 70 Færeyingar voru einnig á ballinu og settu svip á kvöldið. Um miðnætti var boðið upp á humarsúpu áður en Albatross tók við og lék fyrir dansi. 

Níu árum síðar er því komið að Suðureyingum að fylgja þessu balli eftir og halda áfram langri og litríkri sögu Lundaballsins. 

Veiðifélögin skiptast á 

Lundaballið á sér langa sögu og hafa veiðifélögin skipst á að halda það. Hvert félag hefur sett sinn svip á veisluna og metnaðurinn í mat, skemmtiatriðum og umgjörð farið vaxandi. 

Helliseyingar settu markið hátt árið 1987 þegar um 170 manns mættu á Lundaball þeirra í Alþýðuhúsinu. Svavar Steingrímsson var veislustjóri, Árni Johnsen stjórnaði fjöldasöng og bræðurnir Páll og Gísli Steingrímssynir tóku lagið. Ballið hefur síðar verið rifjað upp sem ákveðin tímamót í sögu Lundaballsins. 

Árið 2011 héldu Álseyingar ballið undir erfiðum kringumstæðum vegna lundaleysis. Fyrirsögn Eyjafrétta sagði sitt: „Öflugt Lundaball þrátt fyrir lundaleysi.“ Ári síðar gengu Bjarnareyingar enn lengra og sóttu lunda norður í Grímsey til að hafa á boðstólum. 

Elliðaeyingar áttu að halda ballið 2014 en blésu það af með skömmum fyrirvara. Þegar þeir komu aftur til leiks árið 2023 var því slegið upp í Eyjafréttum undir fyrirsögninni „Upprisa Elliðaeyinga.“ 

Þorsteinn og Gísli Matthías kasta mæðinni í brekkunni.

Þriggja ára hlé 

Heimsfaraldurinn setti síðan strik í reikninginn og ekkert Lundaball var haldið 2020 og 2021. Brandarar endurvöktu hefðina 2022 eftir þriggja ára hlé. Gunnar Friðfinnsson og Þorbjörn Víglundsson voru veislustjórar, Einsi Kaldi sá um villibráðarhlaðborðið og Kókos lék fyrir dansi. 

Elliðaeyingar tóku við árið eftir og afhentu að balli loknu Heimalandsmönnum lundahausinn, tákn þess að þeir tækju við framkvæmd næsta balls. 

Lundinn aftur á borðum 

Heimalandsmenn héldu „Stóra Lundaballið“ árið 2024 og hvert sæti var skipað í Höllinni. Þá urðu ákveðin tímamót því í fyrsta skipti í um 15 ár var boðið upp á lunda sem veiddur hafði verið í Vestmannaeyjum. 

Ingó var veislustjóri, Madam Turret og Glacier Guys komu fram, Alexander Jarl tók lagið og Ragga Gísla og Stuðlabandið sáu um fjörið á dansleiknum. 

Helliseyingar tóku svo við árið 2025. Þar komu Jarlarnir í Hellisey, bræðurnir Bragi og Svavar Steingrímssynir, að sjálfsögðu við sögu. Einsi Kaldi sá um matinn, heimagerð skemmtiatriði voru á sínum stað og Einar Ágúst og Gosarnir léku fyrir dansi. 

Nú er hringnum lokað enn einu sinni og röðin komin aftur að Suðureyingum. Níu ár eru liðin frá því þeir fylltu Höllina með rúmlega 400 gestum og lýstu því yfir að Lundaböllin toppuðu sig þegar þeir héldu um taumana. 

Á laugardaginn kemur í ljós hvernig þeim tekst að fylgja ballinu frá 2017 eftir. Eitt er þó óbreytt: Lundaball snýst ekki aðeins um lundann, matinn og dansinn. Kýtingurinn milli veiðifélaganna, heimagerðu skemmtiatriðin og hæfilega vel útilátin skot á nágrannana eru ekki síður hluti af þessari rótgrónu Eyjahefð. 

Skálað í Suðurey.

Nýjustu fréttir

Áform um fjórar nýjar íbúðir við Sólhlíð
Suðureyingar taka við keflinu á Lundaballinu
Óbætanlegt efnahagstjón verði þróuninni ekki snúið við
Gul viðvörun vegna austanstorms á Suðurlandi á morgun
Binni Unnars skipstjóri - Á einni skrúfu í gegnum erfitt vor 
Ein ferð til Landeyjahafnar – ný tilkynning klukkan 11
Lundasumarið 2026
Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.