Milena í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Mynd/ÍBV

Milena Mihaela Patru, leikmaður ÍBV í fótbolta, hefur verið valin af Margréti Magnúsdóttur, landsliðsþjálfara, í lokahóp U17 ára landsliðs Íslands sem tekur þátt í fyrri umferð undankeppni Evrópumótsins 2027.

Leikið verður í Þýskalandi þar sem Ísland er í riðli með heimakonum, Tékklandi og Kasakstan. Liðið sem endar í neðsta sæti riðilsins fellur niður í B-deild fyrir seinni undankeppnina.

Fyrsti leikur Íslands verður gegn Þýskalandi 9. október. Því næst mætir liðið Tékklandi 12. október og Kasakstan í lokaleik sínum 15. október.

Hópinn má sjá hér að neðan:
Ragna Lára Ragnarsdóttir – Afturelding
Katla Ragnheiður Jónsdóttir – Afturelding
Ólöf Margrét Marvinsdóttir – Breiðablik
Viktoría Emma Arnórsdóttir – Breiðablik
Særún L. Castaneda Bjarnason – Breiðablik
Bára Björk Jóelsdóttir – Breiðablik
Elísabet María Júlíusdóttir – Breiðablik
Milena Mihaela Patru – ÍBV
Margrét Viktoría Harðardóttir – Keflavík
Kara Guðmundsdóttir – KR
Hildur Eva Bragadóttir – Selfoss
Sara Rún Auðunsdóttir – Selfoss (búin að semja við FH)
Ásdís Erla Helgadóttir – Selfoss
Rósa María Sigurðardóttir – Stjarnan
Tinna María Heiðdísardóttir – Stjarnan
Agnes Klara Bernharðsdóttir – Stjarnan
Hafdís Nína Elmarsdóttir – Þór
Bríet Fjóla Bjarnadóttir – Þróttur R.
Björgey Njála Andreudóttir – Þróttur R.
Auður Ósk Kristjánsdóttir – Völsungur

Nýjustu fréttir

Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Ræða stöðu ferðaþjónustunnar við þingmenn Suðurkjördæmis
Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.