Gul viðvörun vegna austanstorms á Suðurlandi á morgun
Gul viðvörun vegna veðurs: Suðurland, Vestfirðir, Austfirðir, Suðausturland og Miðhálendi. Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland frá klukkan 07.00 til 13.00 á morgun, fimmtudaginn 24. september.

Spáð er austan 18–25 metrum á sekúndu og staðbundnum vindhviðum yfir 35 metrum á sekúndu, meðal annars í Vestmannaeyjum og undir Eyjafjöllum. Fólk er hvatt til að huga að lausamunum og varað er við varasömu ferðaveðri.

Í ljósi veðurspárinnar er rétt fyrir farþega Herjólfs að fylgjast með tilkynningum frá útgerðinni. Ekki hefur verið tilkynnt um breytingar á ferðum á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Norðan 13-20 m/s norðvestantil og rigning eða slydda, en annars suðvestanlæg átt, 8-15 og dálitlar skúrir, hvassast við suðausturströndina. Hiti 3 til 11 stig, svalast á Vestfjörðum.

Á laugardag og sunnudag:
Norðan og norðvestan 10-18 m/s norðvestantil og rigning, en slydda eða snjókoma til fjalla. Annars mun hægara og dálitlar skúrir. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast suðaustantil.

Á mánudag:
Norðan- og norðaustanátt og rigning með köflum, en þurrt að kalla suðvestantil. Áfram fremur milt í veðri.

Á þriðjudag:
Útlit fyrir vaxandi norðan- og norðaustanátt með rigningu austantil um kvöldið.
Spá gerð: 23.09.2026 08:26. Gildir til: 30.09.2026 12:00.

Nýjustu fréttir

Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.