Nýlega færði Kvenfélagið Líkn Sjúkradeild HSU-Vestmannaeyjum veglega gjöf til endurnýjunar á eftirlitstækjum á sjúkradeild. Með þessum eftirlitsbúnaði er hægt að fylgjast með hjartslætti, blóðþrýstingi og súrefnismettun hjá sjúklingum, bæði rúmliggjandi en einnig fólki sem er á fótaferð.
Mælingar birtast á skjá sem staðsettur er inni á vaktherbergi hjúkrunarfólks á sjúkradeild. Búnaðurinn sendir einnig viðvörun í vaktsíma hjúkrunarfræðings komi eitthvað óeðlilegt fram. Með þessum búnaði er hægt að fylgjast með fleiri sjúklingum, á stærra svæði og hjúkrunarfræðingur fær samstundis viðvörun komi eitthvað athugunarvert fram í mælingum. Verðmæti þessarar gjafar er 8.084.067 krónur.
�?að er mikilvægt fyrir íbúa í Vestmannaeyjum að viðeigandi tæki og búnaður sé til staðar þannig að hægt sé að veita sem besta og öruggasta heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.
Árlega stendur félagið fyrir svonefndri Aprílsöfnun þar sem leitað er til fyrirtækja til fjáröflunar og er þá verið að safna fyrir ákveðnu tæki eða búnaði. Að auki hefur ágóði úr 1. des kaffisölu félagsins, sölu jólakorta og minningarkorta farið til viðbótar til tækjakaupa. Hefur Kvenfélagið notið mikillar velvildar og stuðnings fyrirtækja, og einstaklinga í Vestmannaeyjum sem hefur gert því kleift að sinna hlutverki sínu.
Aprílsöfnun 2016 var tileinkuð kaupum á eftirlitstækjum á sjúkradeild HSU- Vestmannaeyjum og er áætlað að sá búnaður verði tilbúinn til notkunar á næstu vikum.
Árið 2017 verður Aprílsöfnun Kvenfélagsins Líknar tileinkuð nýjum tækjum fyrir rannsóknarstofu HSU-Vestmannaeyjum. Um er að ræða rannsóknartæki sem mæla hjartaensím og önnur efni sem myndast ef einstaklingur fær hjartaáfall eða blóðtappa. Eru þetta nauðsynlegar mælingar þegar um bráðaveikindi eru að ræða og mikilvæg til greiningar og til að ákveða meðferð sjúklinga. Að auki mælir tækið til dæmis skjaldkirtilshormón, B-12, Ferritin og blöðruhálskirtilshormón.
�?að tæki sem til var er ónýtt. Komi til bráðaveikindi þar sem grunur er um hjartasjúkdóm eða blóðtappa er í dag notast við tæki þar sem hægt er að mæla grunngildi en er mjög dýrt í rekstri og óhentugt. Aðrar mælingar þarf að senda til Reykjavíkur. Verðmæti þessa tækis er um 4.000.000 krónur. Að venju mun kvenfélagið Líkn senda út bréf til fyrirtækja hér í bæ varðandi Aprílsöfnunina.
Stuðningur bæjarbúa og félagsamtaka við Heilbrigðisstofnunina er ómetanlegur og óskar stofnunin eftir að koma fram þakklæti vegna þess.
Kvenfélagið Líkn var stofnað 14. febrúar 1909 og hefur markmið félagsins frá upphafi verið að styðja við sjúkrahús og heilsugæslu í Vestmannaeyjum og aðrar stofnanir með gjöfum og tækjakaupum og einnig félagasamtök, einstaklinga og fjölskyldur sem á þurfa að halda.