Árið gert upp á Suðurland Fm
�?að verður mikið um dýrðir á Suðurland FM á Gamlaársdag en þá fer í loftið Sunnlenskur annáll fyrir árið 2013 en þetta ku vera í 5. skiptið sem það er gert. Árið hefur verið viðburðaríkt og til að gera það upp mæta á svæðið fjölmiðlamenn landshlutans og sveitastjórnarmenn úr stærstu sveitafélögunum. Auk þeirra verða á svæðinu þingmenn Suðurkjördæmis, þau Sigurður Ingi Jóhannson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Páll Valur Björnsson og Oddný G. Harðardóttir en má segja að kosningarnar til Alþingis þetta árið hafi verið sögulegar í meira lagi. Í lok þáttar verður svo, í samstarfi við Krónuna á Suðurlandi afhjúpaður Sunnlendingur ársins að mati hlustenda Suðurland FM. Suðurland FM er á bylgjulengdinni fm 96,3 á Suðurlandi, 93,3 í Vestmannaeyjum og nágrenni en einnig er hægt að hlusta á netinu á www.sudurlandfm.is Umsjónarmenn eru þeir Valdimar Bragason og Sigmundur Sigurgeirsson og hefst þátturinn kl. 12 Gamlársdag en verður endurfluttur kl. 13. á Nýársdag.
Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.