Eyjamaðurinn Arnar Pétursson, þjálfari íslenska A-landsliðs kvenna í handbolta, tilkynnti fyrr í dag landsliðshóp sinn fyrir tvo síðustu leiki Íslands í undankeppni Evrópumótsins sem fara fram í byrjun apríl. Ísland mætir þá Færeyjum ytra 8. apríl og Portúgal á Ásvöllum 12. apríl. Þessir leikir munu ráða því hvort að Ísland verði með á EM í lok þessa árs.
Eyjakonurnar Díana Dögg Magnúsdóttir, leikmaður Blomberg-lippe, Elísa Elíasdóttir, leikmaður Vals, og Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, eru allar í hópnum. Þá er Andrea Jacobsen, sem gengur til liðs við ÍBV í sumar, einnig í hópnum.
Hópinn í heild sinni má sjá hér að neðan.