Ásgeir Sigurvinsson - Pabbi burstaði skóna
Íslands- og bikarmeistarar ÍBV í 2. flokki, efri röð; Baldvin Harðarson, Hjörtur Ólafsson, Guðjón Pálsson, Leifur Leifsson, Páll Magnússon, Jóhannes Long Lárusson og Ingibergur Einarsson. Fremri röð; Haraldur Óskarsson, Magnús Þorsteinsson, Ársæll Sveinsson, Ásgeir Sigurvinsson, Einir Ingólfsson og Tryggvi Garðarsson. Mynd Sigurgeir.

Það voru margir eftirminnilegir strákar að æfa og spila með mér í yngri flokkum ÍBV á þessum árum, Orri Guðjohnsen var öflugur, mjög góður í fótbolta og við Sæli Sveins og Leifur Leifs vorum valdir í unglingalandsliðið. Við vorum alltaf með gott lið, vorum sterkir strákar og við spiluðum upp fyrir okkur um flokka. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegu viðtali Ásmundar Friðrikssonar við Ásgeir Sigurvinsson í Eyjafréttum sem koma út í dag.

Árið 1970 vorum við Íslandsmeistarar og bikarmeistarar í 2. flokki og Íslandsmeistarar í 3. og 4. flokki. Á meðan pabba naut við var hann mín stóra stoð og stytta í boltanum og lífinu öllu. Hann var rosalega áhugasamur og þegar leit illa út með flug þegar eitthvað liðið var að koma til Eyja fór pabbi oft niður á Flugfélag til að segja þeim að þokan væri farin og það væri orðið fært.

Pabbi tók þetta allt svakalega nærri sér og þegar við töpuðum eitt vorið fyrsta leiknum á móti Breiðablik fór allt á hliðina. Svo varð það auðvitað frægt þegar pabbi mætti á frambyggðum Bedfordinum á leikina hjá mér. Þá lagði hann bílnum klesst upp við grindverkið á malarvellinum og sat í bíl stjórasætinu og hallaði sér fram yfir stýrið.

Þaðan steytti pabbi hnefann og öskraði á dómarann og þegar allt var um koll að keyra í stýrishúsinu á Bedfordinum lá pabbi á flautunni, eða gaf stefnu ljós eitthvað út í loftið. Pabbi lifði sig inn í leikinn og var frábær pabbi, hugsaði vel um okkur strákana og var alltaf með Kiwi túpuna og skóburstann á lofti, en pabbi burstaði alltaf fótboltaskóna mína, sem voru glansandi flottir við útihurðina þegar ég fór í hvern leik.

Sjá nánar í Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.