Atskákmót til minningar um Bedda á Glófaxa
Frá vinstri, Arnar Sigurmundsson að tefla við Bergvin Oddsson - Beddi á Glófaxta í skákkeppni í Eyjum 2003. Við hlið Arnars er Viktor Stefán Pálsson á móti honum er Einar Sigurðsson.

Taflfélag Vestmannaeyja hefur ákveðið að halda atskákmót laugardaginn 11. maí 2019  til minningar um Bergvin Oddsson – Bedda á Glófaxa – skipstjóra og útvegsmann í Vestmannaeyjum, í samstarfi við fjölskyldu hans. Bergvin féll frá 22. sept. sl. 75 ára að aldri. Bergvin tók virkan þátt í starfsemi TV fljótlega eftir að fjölskylda hans flutti til Eyja árið 1964 og var mjög liðtækur skákmaður og tók þátt í mörgun skákmótum hjá félaginu. Eftir að hann fór í útgerð á Glófaxa Ve. nokkru eftir eldgosið á Heimaey 1973 dró nokkuð úr þátttöku hans. En Beddi leiddi í mörg ár skáksveit sjómanna í keppni þeirra  við landmenn á Sjómannadaginn. Bergvin var til margra áratuga einn af öflugustu bakhjörlum Taflfélags Vestmannaeyja.

Bergvini og minningu hans til heiðurs varð að ráði að efna til sérstaks skákmóts í samstarfi við fjölskyldu hans og til styrktar skáklifinu í Eyjum, laugardaginn 11. maí 2019, gamla lokadaginn.

Minningarmótið  hefst kl. 12.00 á hádegi   og verða tefldar  8 umferðir eftir hinu vinsæla  atskákformi, 15. mín. á skák og + 5 sek á leik. Eftir fjórar umferðir verður tekið  kaffihlé og síðan taka við aðrar fjórar umferðir.  Reiknað er með að mótinu ljúki um kl. 19.00 um kvöldið,  úrslit kynnt og veitt vegleg verðlaun. Fyrstu verðlaun verða 200 þús. kr., 2. verðlaun  125 þús. kr. og 3ju verðlaun 75 þús. kr. Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands  verður mótsstjóri. Ekkert mótsgjald og allir  velkomnir.

Herjólfur mun sigla sjö ferðir á dag milli Eyja og Landeyjahafnar  þegar mótið fer fram.  Fyrir keppendur ofan af landi  sem ætla að dvela daginn í Eyjum er hægt að fara kl. 10.45  í 35 mín. siglingu frá Landeyjahöfn til Eyja (mæting 30 mín. fyrir brottför) og frá Eyjum að loknu móti kl. 22.00 um kvöldið. Fyrir þá sem ætla að dvelja lengur er nægt gistirými  og margt að skoða í Eyjum – þar sem vorið kemur fyrst. Skráning á Beddamótið er á skák.is

Fréttatilkynning frá TV. 

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði á Akureyri
Í dag eru 84 íbúðir í byggingu
ÍBV sækir KA heim í dag
Eyjamenn í eldlínunni
Konudagurinn er í dag
Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.