Ráðherra til fundar við Eyjamenn

Á vef Vestmannaeyjabæjar er tilkynning um íbúafund um samgöngur á milli lands og Eyja. Fram kemur að Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og Bergþór Þorkelsdóttir, vegamálastjóri hafi samþykkt að mæta á íbúafund um samgöngumál Vestmannaeyinga að beiðni bæjarráðs. Fundurinn verður haldinn 30. janúar nk. kl. 19:30 í Höllinni. Fólk er beðið um að taka tímann frá, […]
Höfnin dýpkuð

Byrjað er að dýpka Vestmannaeyjahöfn. Bæði verður farið í að grafa veituskurð sem og að dýpka höfnina. Samið var við fyrirtækið Hagtak um dýpkunina. Dóra Björk Gunnarsdóttir, hafnarstjóri sagði í samtali við Eyjar.net í desember sl. að reiknað væri með að dælt verði rúmlega 45 þúsund rúmmetrum og var áætlað að það tæki um 12 […]
Næstu ferðir til Þorlákshafnar

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinnipartinn í dag og þar til annað verður tilkynnt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Brottför er frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 17:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 20:45. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í […]
Stækkun hafnarinnar

Alta hefur unnið aðalskipulagsbreytingu fyrir Vestmannaeyjahöfn sem samþykkt var á fundi framkvæmda- og hafnarráðs þann 15. nóvember sl. Á fundi ráðsins í vikunni var lögð er fram til kynningar skipulagslýsing fyrir breytt aðalskipulag Vestmannaeyja 2015-2035 vegna stækkunar hafnarsvæðis Vestmannaeyjahafnar og nýrra hafnarkanta undir Kleifum og í Gjábakkafjöru. Fram kemur í skipulagslýsingunni að Vestmannaeyjahöfn sé grundvöllur helstu […]
Gul viðvörun á Suðurlandi

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi vegna austanstorms og snjókomu eða slyddu. Tekur hún gildi í kvöld kl. 21:00 til kl. 03:00 í nótt. Í viðvörunarorðumsegir: Austan 13-20 m/s, en 18-23 undir Eyjafjöllum og snarpar vindhviður þar. Einnig má búast við snjókomu eða slyddu með versnandi akstursskilyrðum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á […]
Hvít Heimaey – myndir

Það snjóaði í Eyjum í dag líkt og spáð hafði verið. Nú er hins vegar hætt að snjóa og er blíðskaparveður. Má tala um lognið á undan storminum því annað kvöld er gert ráð fyrir stormi á sunnanverðu landinu. Í veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir Suðurland segir: Austan og norðaustan 8-13 og skýjað með köflum á […]
Snjókorn falla

Hann var vetrarlegur bæjarrúnturinn sem Halldór B. Halldórsson fór um Heimaey í dag. Það sést bersýnilega á myndbandi hans hér að neðan. (meira…)
Krefjast úrbóta hið snarasta

Brynjar Ólafsson, framkvæmdarstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar fór yfir – á fundi framkvæmda- og hafnarráðs – stöðu á gatnalýsingu, útskiptiáætlun lampa og viðhaldi. Fram kemur í afgreiðslu ráðsins að ráðið ítreki mikilvægi þess að þjónustuaðili uppfylli skilyrði samnings um þjónustu og viðhald gatnalýsingar enda er gatnalýsing mikilvægur þáttur í umferðaröryggi, sér í lagi gangandi og […]
Forsetinn í Eyjaheimsókn

Forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, heimsótti Vestmannaeyjar sl. þriðjudag. Hann kom víða við í heimsókn sinni, ásamt Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra, sem tók á móti honum. Fyrst lá leiðin í grunnskólann og í framhaldi á Kirkjugerði og Sóla þar sem forsetinn skoðaði skólana og heilsaði upp á nemendur og starfsfólk. Nemendur í 5. bekk sýndu […]
Þrjár frá ÍBV í Hæfileikamótun KSÍ

Magnús Arnar Helgason, þjálfari í Hæfileikamótun KSÍ, hefur valið Díönu Jónsdóttur, Margréti Mjöll Ingadóttur og Tönju Harðardóttur til að taka þátt í Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir stúlkur á Suðurlandi og Suðurnesjum. Æfingin fer fram í Lindex höllinni á Selfossi föstudaginn 26. janúar. Í frétt á heimasíðu ÍBV er leikmönnunum óskað innilega til hamingju með […]
ÍBV semur við markvörð

Markvörðurinn Hjörvar Daði Arnarsson hefur gert tveggja ára samning við knattspyrnudeild ÍBV. Hann kemur frá HK þar sem hann hefur verið á samningi síðan 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu knattspyrnudeildar ÍBV á vefsíðu félagsins. Hjörvar er 23 ára gamall og hefur hann leikið á láni síðustu þrjú tímabil, það fyrsta hjá ÍR og seinni […]
Allt í rusli?

Eftirfarandi kom fyrir mig fyrir nokkrum árum síðan í verslun í Reykjavík. Ég greiddi það sem ég keypti með 5000 króna seðli, en fékk of mikið til baka. Ég horfði á afgreiðslumanninn: Þú gefur mér vitlaust til baka. Hann var eins og spurningarmerki. Ég greiddi með 5000 króna seðli. Fyrirgefðu sagði hann afsakandi, ég hélt […]
Ósamþykk breytingum á höfninni

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja var lögð fram til samþykkis skipulagslýsing fyrir breytt aðalskipulag Vestmannaeyja 2015-2035 vegna stækkunar hafnarsvæðis Vestmannaeyjahafnar og nýrra hafnarkanta undir Kleifum og í Gjábakkafjöru. Í bókun frá Bjartey Hermannsdóttur, fulltrúa Eyjalistans í ráðinu segir að undirrituð sé ósamþykk fyrirhuguðum breytingum á innsiglingunni, með tilheyrandi umhverfisraski á svæðinu. Mikilvægt er að […]
Álfsnesið bilað

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni brotnaði rör hjá Álfsnesinu í nótt og er skipið því farið til Þorlákshafnar til viðgerðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir jafnframt að þrátt fyrir einmuna veðurblíðu í Landeyjahöfn hefur gengið illa að dýpka síðan dýpið var mælt laugardaginn sl. og staðan því lítið breyst. Því liggur […]
Gular viðvaranir gefnar út

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna veðurs á Höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og Breiðafirði. Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi á morgun, 18 jan. kl. 11:00 og gildir til kl. 15:00. Talsverð snjókoma á köflum með takmörkuðu eða lélegu skyggni. Búast má við versnandi akstursskilirðum og afmörkuðum samgöngutruflunum, segir í viðvörunarorðum. Suðurland Norðan 5-10 m/s og […]
Á annað hundrað þjónustuþegar

Öldrunarþjónusta Vestmannaeyjabæjar var til umfjöllunar á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja í sl. viku. Kolbrún Rúnarsdóttir, deildarstjóri stuðningsþjónustu og Thelma Tómasdóttir, verkefnastjóri öldrunarþjónustu lögðu fram á fundinum yfirlit yfir heimaþjónustu á árinu 2023. Fram kom að Vestmannaeyjabær hafi veitt stuðningsþjónustu til um 128 þjónustuþega að meðaltali á mánuði árið 2023. Hlutverk stuðningsþjónustu er m.a. að […]
Mæta Fram á útivelli

Heil umferð verður leikin í Olís deild kvenna í kvöld. Í fyrsta leik kvöldsins tekur Fram á móti ÍBV. Tólf umferðir eru búnar af mótinu og eru Fram-stúlkur í þriðja sæti með 16 stig en Eyjaliðið er í næsta sæti fyrir neðan með 14 stig. Flautað verður til leiks í Úlfarsárdal klukkan 18.00. Leikir kvöldsins: mið. […]
„Hinn fallegasti fiskur“

„Við fengum aflann á Öræfagrunni og í Hornafjarðardýpinu og það var gott veður allan túrinn að undanskildum einum sólarhring. Aflinn er mestmegnis ufsi og ýsa og það er einkar ánægjulegt að ufsinn láti sjá sig, en það er langt síðan hann hefur fengist á þessum slóðum. Þetta er hinn fallegasti fiskur og ufsinn er góður […]
Yfir 60% skráð kílómetrastöðu

Yfir 60% þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is eða í Ísland.is appinu og eru skráningarnar orðnar rúmlega 29.000. Um áramótin tók gildi kílómetragjald fyrir notkun slíkra bíla og hafa eigendur frest til 20. janúar til að skrá kílómetrastöðuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. […]
Yfir 430.000 með Herjólfi í fyrra

Nýtt met féll í farþegaflutningum á milli lands og Eyja í fyrra, þegar 431.215 farþegar fóru með Herjólfi. Þetta má sjá í tölum frá Herjólfi ohf. Gamla metið var árið áður, en þá ferðuðust 412.857 manns með ferjunni. Það er því aukning á milli ára um 18.358 farþega. Þriðja besta árið var árið 2019 þegar […]