�?ú sem átt kindur!
Finnst þér að áhugamál þitt / atvinna njóti lítils skilnings og að félagar þínir í sauðfjárrækt séu fáir? Ert þú vondaufur um framtíðina eða hyggst þú sækja fram? Félag sauðfjárbænda í Árnessýslu er að leita að þér, því nú leitum við félaga, gamalla og nýrra, sem vilja skapa tengsl og samstöðu meðal sauðfjárbænda, efla sauðfjárrækt […]
Fjarðabyggð vill fá uppsjávarsvið Hafró til Neskaupstaðar

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti í gær ályktun þar sem skorað er á sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir mótvægisaðgerðum í sveitarfélaginu, til að mæta áhrifum af kvótaniðurskurði og aflabresti í loðnu. Meðal þess sem bæjarstjórnin leggur til er að uppsjávarsvið Hafrannsóknarstofnunar verði flutt til Neskaupstaðar. Þá verði rannsóknir Matís í samvinnu við sjávarútvegsfyrirtækin efldar og starfsemi Fiskistofu […]
Burtfararprófstónleikar Unnar
Unnur Sigmarsdóttir, mezzósópran, frá Sauðhúsvelli undan Eyjafjöllum og Kolbrún Sæmundsdóttir píanóleikari halda burtfararprófstónleika í tónleikasalnum Von að Efstaleiti 7 í Reykjavík sunnudaginn 9. mars kl. 17. Unnur er söngnemandi Dóru Reyndal við Söngskólann í Reykjavík og hefur komið fram sem einsöngvari við ýmis tilefni undanfarin ár. (meira…)
Trabant dregur bíl

Fyrir nokkrum árum var á götum landsins talsvert af bílum frá Austur Þýskalandi, af Trabant gerð. Enn má sjá nokkur eintök af þeim á götunum. Þetta eru bílar með plastyfirbyggingu og tvígengisvél, sem hátt heyrist í og talsverður reykur stendur aftur úr bílnum við áreynslu. (meira…)
Múlaberg SI 22 landaði rúmum 100 tonnum.
Múlaberg SI 22 eitt af skipum Ramma hf. í Þorlákshöfn landði afla þar á miðvikudegi 5. mars sl. Skv. heimasíðu Fiskistofu var skipting aflans þessi: . (meira…)
Hvalveiðar leyfðar á ný?
Samkvæmt málamiðlunartillögum sem ræddar verða á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins verða hvalveiðar leyfðar að nýju. Veiðibann hefur verið í gildi síðan 1986. Veiðarnar verða undir alþjóðlegu eftirliti. Ríkisútvarpið greinir frá því að til að ná sáttum í ráðinu hafi verið fengnir helstu sérfræðingar í alþjóðlegri sáttagerð, menn sem hafa reynslu af friðarsamningum í El Salvador og samningunum […]
Lítið farsímasamband í Flóahreppi
Farsímasamband í Flóahreppi rétt við Selfoss þar sem tæplega 600 manns búa er lítið sem ekkert. Sveitarstjórinn þarf t.d. að halla sér langt út um glugga til að geta svarað í GSM símann sinn. Hann lýsir eftir samgönguráðherra. (meira…)
Vaktin á leið heim til þín
9. tölublað Vaktarinnar er nú komið í dreifingu hjá Póstinum. Eins og alltaf er eitthvað fyrir alla í Vaktinni, litið er inn í leikhúsið þar sem æfingar á Hárinu standa sem hæst, Vilhelm G. Kristinsson kíkti í heimsókn í Godthaab, tekinn er púlsinn á fyrirhugaðri tuðruferð nokkurra Eyjamanna hringinn í kringum landið og auðvitað fjallað […]
Dagskráin, héraðsfréttablað Sunnlendinga 40 ára
Dagskráin, héraðsfréttablað Sunnlendinga fagnaði 40 ára afmæli sínu laugardaginn 1. mars. Af því tilefni verður gefið út glæsilegt afmælisblað fimmtudaginn 27. mars. Þann sama dag verður opnuð sýning í Hótel Selfossi, “Dagskráin í 40 ár” og gestum Prentmets Suðurlands á Selfossi verður boðið upp á veitingar. (meira…)
Fimm í röð hjá Margréti Láru

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sitt 30. mark fyrir A-landslið Íslands í gær þegar íslenska liðið lagði það pólska, 1:0, á Algarvemótinu í Portúgal. Margrét Lára hefur nú skorað í fimm landsleikjum Íslands í röð og hún hefur náð að koma boltanum í net andstæðinganna í 10 af síðustu 12 landsleikjum Íslands. (meira…)
Yngvi ristarbrotnaði gegn Breiðablik

Um síðustu helgi mættust Breiðablik og ÍBV í deildarbikarnum þar sem Breiðarblik sigraði 7 – 0. Í leiknum varð Yngvi Borgþórsson fyrir hnjaski og verður í gifsi næstu 10 daga, en eftir það fer hann í endurmat um hvert framhaldið verður hjá honum. Bein í ristinni brotnaði. (meira…)
Fjórir lækkaðir í tign

Það virðist hafa komið flatt upp á yfirmenn Herjólfs þegar nýr skipstjóri var kynntur fyrir þeim á mánudaginn. Er það þriðji skipstjórinn sem kemur úr röðum Eimskipsmanna. Um leið færðust fjórir yfirmenn, sem allir eru úr Eyjum, niður í starfi. Framkvæmdastjóri hjá Eimskip segir að Herjólfur sé nú hluti af stærri heild og að eðlilegt […]
Nýr golfvöllur við Kríuna milli Eyrarbakka og Stokkseyrar
Bæjarráð Sveitarfélagsins Árborgar í morgun: Svohljóðandi tillaga bæjarfulltrúa B, S og V lista var lögð fram: Bæjarráð samþykkir að bjóða Golfklúbbi Selfoss land undir nýjan 18 holu golfvöll á svæðinu á milli Eyrarbakka og Stokkseyrar austur af Kríunni, en verið er að ganga frá landaskiptum á milli ríkisins og sveitarfélagsins, á því svæði. Þá samþykkir […]
Gunnar Heiðar með mark gegn Real Madrid
Það getur stundum verið ótrúlegt að sjá hvað menn leggja á sig fyrir myndbönd sem dreift er á netinu en eitt stórfurðulegt myndband hefur nú verið sett á YouTube vefsíðuna þar sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson framherji íslenska landsliðsins skorar gegn Real Madrid. Líklega er um að ræða tilfinningu sem er algjör draumur fyrir knattspyrnumann að […]
Sigurður Ari með stórleik

Sigurður Ari Stefánsson átti sannkallaðan stórleik með liði sínu, Elverum í norsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar liðið tók á móti Runar. Lokatölur urðu 30:30 og skoraði Sigurður Ari þriðjung marka síns liðs eða tíu talsins og tryggði sínu liði jafntefli þegar tæpar tvær mínútur voru eftir af leiknum. Á vefsíðunni handbolti.is er greint frá því […]
Lögreglustöðin í Reykjavík verði seld
Æskilegt væri að Ríkissjóður seldi Lögreglustöðina við Hlemm og nýtti andvirðið í að reisa nýjar höfuðstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ásamt aðstöðu til að hýsa fanga til skamms tíma. (meira…)
Sætur útisigur á ÍR
Selfyssingar náðu loksins sigri á ÍR-ingum í þriðju viðureign liðanna í 1. deild karla í vetur. Mjótt var á mununum en Selfyssingar unnu að lokum með einu marki, 31-32. Leikurinn byrjaði rólega en ÍR-ingar höfðu undirtökin framan af og náðu mest þriggja marka forskoti. Selfyssingar komu til baka og minnkuðu muninn í 18-17 fyrir leikhlé. […]
50 ára afmælisárshátíð
Í tilefni árshátíðar og 50. starfsárs Laugalandsskóla verður vegleg hátíð á föstudag og laugardag. Nemendur hafa sem fyrr keppst við að undirbúa skemmtiatriði en þau eru óvenju fjölbreytt og vönduð í ár vegna tímamótanna. (meira…)
Sökuð um að kúga fram virkjun
Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, sakaði Landsvirkjun á Alþingi í dag um fjárkúgun, með því að beita vinsælu máli, uppbyggingu netþjónabúa, til að koma áfram óvinsælu máli, virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Mörður vakti athygli á því að haft er eftir Þorsteini Hilmarssyni, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, í Fréttablaðinu í dag að það sé ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir raforkusölu […]
FSu í góðri stöðu eftir sigur á Hetti
Línur eru farnar að skýrast eftir leikina í 1. deild karla í körfubolta sem fram fóru sl. þriðjudagskvöld. Breiðablik sigraði Val og tryggði sér sæti í úrvalsdeild. Á sama tíma lagði FSu Hött á Egilsstöðum og fóru því tveimur stigum upp fyrir Val. FSu er þá nánast búið að tryggja sér 2. sætið og heimaleikjaréttinn […]