Sértækar álögur á sjávarútveginn skaða landsbyggðina

Í KJÖLFARIÐ á 30% niðurskurði á þorskkvóta hafa umræður um stjórn fiskveiða á ný orðið fyrirferðarmiklar í þjóðmálaumræðunni. Reyndar hefur umræða um gengi fjármálageirans á seinustu misserum orðið til þess að slá því ryki í augu fjölmargra að sjávarútvegur hafi orðið lítið vægi í hagkerfi Íslendinga. Staðreyndin er engu að síður sú að sjávarútvegur er […]

Stærsti segldúkur landsins fór upp í fárviðri

„Okkur leist nú ekkert á þetta þar sem veðurspáin var skelfileg,” segir Jón Viðar starfsmaður Frank og Jóa sem hafði yfirumsjón með uppsetningu á stærsta segldúki landsins í nótt. Það er nýja samskiptafyrirtækið Nova sem ber ábyrgð á segldúknum sem þekur framhlið nýrra höfuðstöðva fyrirtækisins að Lágmúla 9 í Reykjavík. „Okkur var skammtaður tími þar […]

Flugi til Vestmannaeyja og Ísafjarðar aflýst

Búið er að aflýsa innanlandsflugi til Vestmannaeyja og Ísafjarðar. Samkvæmt upplýsingum sem eru á vef Flugfélags Íslands er verið að kanna hvort hægt verði að fljúga kl. 20 til og frá Akureyri, en kl. 18:10 til og frá Egilsstöðum. (meira…)

Hraðahindranir fyrir þá sem engu tauti verður við komið

Þær geta verið ansi hvimleiðar þessar hraðahindranir út og suður. – En hafa sinn tilgang, og þegar menn geta ekki ekið eins og menn, þá er ein af lausnunum að setja hraðahindranir á vegi. Sumar eru bara ágætar, aðrar ekki eins góðar. Hér er ein tegund hraðahindrunar, fyrir þá sem engu tauti verður við komið. […]

�?orgrímur ætlar ekki að bregðast Eyjakonum

Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur, lætur ekki rok og stórsjói stoppa sig þegar kemur að því að gleðja konur í Eyjum. Hann hafði boðað komu sína í Dömupartí sem verður á Café María í kvöld. Vegna vandræða í samgöngum óttuðust konur að hann léti ekki sjá sig en hann mætir. Þar kynnir hann bók sína, Hvernig getur […]

Búið að blása seinni ferðina af

Herjólfur er nú að legga af stað frá Þorlákshöfn en brottför hans frá Eyjum seinkaði í morgun vegna bilunar í bógskrúfu. Veður er nú mjög slæmt og hefur verið ákveðið að fella niður seinni ferðina. (meira…)

Lágt fast­eignaverð

Fasteignaverð er mismunandi eftir landsvæðum og kemur engum á óvart að það er hæst á höfuðborg­arsvæðinu. Á verðsjá fasteigna á vef Fasteignamats ríkisins er hægt að skoða verð fasteigna á völdum stöðum á landinu. Á höfuðborgarsvæðinu er fer­metraverð á fjögurra herberja íbúð á bilinu 201 til 244 þúsund á fermetra, það er hæst í Garðabæ […]

Fundur Fjölskyldurráðs Vestmannaeyjabæjar

Síðastliðinn miðvikudag var haldinn fundur hjá Fjölskyldurráði Vestmannaeyjabæjar. Á þeim fundi kom fram að nýlega barst Dvalarheimilinu Hraunbúðum vegleg gjöf. En það var Guðný Ragnheiður Hjartardóttir fædd árið 1931 sem lést 6.ágúst sl. sem arfleiddi dvalarheimilið að fasteign sinni að Espigerði 4 Rvk. Fjölskylduráð hefur ákveðið að skipa nefnd sem í sitja hjúkrunarforstjóri Hraunbúða, einn […]

Ekki náðist að laga hliðarskrúfuna

Herjólfur lagði af stað frá Vestmannaeyjum um hálf ellefu í morgun en bilun í hliðarskrúfu ollli því að skipið lagði ekki af stað á réttum tíma. Farþegur biðu um borð á meðan viðgerð fór fram en ekki tókst að koma hliðarskrúfunni í gang. Því þurfti Herjólfur aðstoð lóðsbáta til að komast frá bryggju og mun […]

Herjólfur bilaður

Herjólfur er ekki enn farinn frá Eyjum en samkvæmt upplýsingum sem fengust um borð er hliðarskrúfa skipsins biluð. Farþegar bíða enn um borð á meðan viðgerð stendur og er áætlað að skipi haldi úr höfn um leið og búið er að gera við hliðarskrúfuna. Í gær var greint frá því að önnur bilun væri í […]

Aftakaveður

Herjólfur liggur enn við bryggju í Eyjum en hliðarskrúfa skipsins er biluð. Farþegar skipsins bíða um borð í skipinu. Færist áætlun skipsins sem því nemur. Hellisheiðin er lokuð og mjög slæm færð er í Þrengslunum.   Björgunarsveit Vestmannaeyja hafði skv. heimildum eyjar.net í nógu að snúast í nótt en meðal annars fuku þakplötur af Félagsheimilinu í Rauðagerði. […]

Fauk útaf á Hellisheiði í krapa og roki

Bílstjóra sendibifreiðar sakaði ekki er bíllinn fór útaf á Hellisheiði, ofan við Kambana, og valt eina veltu um hálf þrjúleytið í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. (meira…)

Tuttugu björgunarmenn sinntu útköllum

Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út í gærkvöldi enda kolvitlaust veður. Meðal annars fauk útihús sem stóð við Hásteinsveg og þakplötur fóru af stað sem og klæðning húsa. (meira…)

Kemur ekkert annað til greina en að ná sæti í 1. deild.

Í dag birtum við leikmannakynningu ÍBV í körfubolta. Síðustu helgi áttust við í bikarkeppni KKÍ ÍBV og Keflavík og því er viðeigandi að birta kynningu á Sverri Marinó en hann er fæddur í Keflavík og með Keflavík byrjaði hann að æfa körfubolta. Sverrir Marinó er búsettur á Seltjarnarnesi en hann er í fjarnámi við Kennaraháskóla […]

Nú byrjar gamanið

Þegar ég var ungur drengur, daginn fyrir fyrsta skóladaginn minn, sagði ég við mömmu að mig langaði ekkert að byrja í skólanum, að ég kynni ekkert að reikna og langaði ekki að gera eitthvað sem ég kynni ekki að gera. Þá útskýrði hún fyrir mér undur þess að læra eitthvað, að ég væri að fara […]

Björgunarfélag Vestmannaeyja kallað út í gærkvöldi

Í gærkvöldi voru félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja ræstir út vegna mjög slæms veðurs. Útihús fauk við Hásteinsveg og þakplötur og klæðningar á húsum í eyjum höfðu losnað. Um 20 félagsmenn Björgunarfélags Vestmannaeyja unnu við að aðstoða beiðnum bæjarbúa.   Samkvæmt vef Pálma Óskarssonar veðurathugunarmanns á Stórhöfða má finna upplýsingar um að mesti vinhraði í vindhviðu […]

Stórviðri á Stórhöfða

Gríðarlegt veður gengur nú yfir sunnanvert landið. Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum var 10 mínútna meðalvindur 32 metrar á sekúndu kl. 21.00. Og mesti 10 mínútna meðalvindhraði var 39 metrar á sekúndu. Veðrið stendur af suðaustri og því fylgir slagveðursrigning. (meira…)

Bilun í Herjólfi

Þjóðvegur Vestmannaeyja verður lokaður hluta af næstu viku. Bilun er komin upp í Herjólfi og þarf hann að fara í slipp til viðgerðar. Leki er með skrúföxli skipsins sem þarf að þétta. Áætlað er að skipið verði tekið upp í Hafnarfirði að lokinni fyrri ferðinni á þriðjudaginn. (meira…)

Góður liðsstyrkur væntanlegur í meistaraflokkinn

Sigurjón Örn Lárusson heitir sá kappi og er 195cm á hæð. Spilar hann sinn fyrsta leik fyrir félagið strax eftir áramót. Mun Sigurjón styrkja liðið mikið og ekki verra að fá fleiri góða á æfingarnar hér í eyjum.Næsta sunnudag mun Sigurjón hinsvegar leika sinn síðasta leik fyrir körfuknattleikslið Stjörnunnar þar sem hann hefur ákveðið að […]

Herjólfur í slipp 4.desember

Samkvæmt heimildum www.eyjar.net kom upp bilun um borð í Herjólfi og þarf skipið að fara í slipp í Hafnarfirði næsta þriðjudag. Mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar á þriðjudaginn og halda svo til Hafnarfjarðar þar báturinn fer í viðgerð. Áætlað er að viðgerðin taki minnst 2 daga og er vonast til að Herjólfur fari frá Þorlákshöfn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.