Nýliðaæfing Karlakórs Vestmannaeyja

Karlakórinn heldur nýliðaæfingu á sínum hefðbundna æfingatíma, sunnudaginn nk. 18. febrúar kl. 16:00. Er þetta kjörið tækifæri fyrir söngelska karla að koma og syngja í frábærum félagsskap. Á dagskrá kórsins þetta vorið eru m.a. æfingaferð á meginlandið sem og árlegir vortónleikar í maí. Eftirfarandi tvær mýtur eru algengar meðal þeirra sem langar að prófa en […]
Bragðbesta íslenska loðnan

�??Margir kaupendur og neytendur loðnuafurða í Japan hafa sagt mér að loðan á vertíðinni 2017 hafi verið sú bragðbesta frá Íslandi í manna minnum. Sumir hafa samanburð í samfleytt 25 ár og vita hvað þeir tala um,�?? segir Yohei Kitayama, japanskur sölumaður About fish, sölu- og markaðsfyrirtækis Vinnslustöðvarinnar. �??Nú bíða viðskiptavinir okkar í Japan spenntir […]
Fá heimamenn að hafa áhrif á nafn nýrrar ferju?

Fátt hefur verið meira rætt í Vestmannaeyjum seinustu vikur en hvaða nafn ný Vestmannaeyjaferja á að bera. Sagt hefur verið frá því að byrjað sé að nota nafnið Vilborg á nýsmíðina en sitt sýnist hverjum. �?annig sagði Elliði Vignisson bæjarstjóri í viðtali við kvöldfréttir Stöðvar 2 að eðlilegt væri að heimamenn hefðu aðkomu að ákvörðun […]
Samstarf Vestmannaeyjabæjar við BUGL og HSU

Formlegt samstarf Vestmannaeyjabæjar við BUGL og HSU var kynnt á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs á miðvikudaginn. �?ar kynnti Guðrún Jónsdóttir yfirfélagsráðgjafi formlegt samstarfs Vestmannaeyjabæjar við BUGL og HSU. Vestmannaeyjabær í samstarfi við BUGL og HSU stefna að því að undirrita samstarfssamning sem tengist greiningum, meðferð, stuðningi og eftirfylgni barna með hegðunar- og geðraskanir ásamt því […]
Hippar á þorrablóti – myndir

Á laugardaginn var hið árlega þorrablót Akógesmanna og jafnfram síðasta þorrablótið í Vestmannaeyjum. Í ár var hippaþema og voru þeir margir sem tóku þemað alla leið en einnig voru einhverjir sem kusu að gera það ekki. �?skar Pétur Friðriksson ljósmyndari leit við og kannaði stemminguna, sem var góð. Hér má sjá fleiri myndir frá stemningunni […]
Tónleikar með Jóa Pé og Króla – myndir

Dúettinn Jói Pé og Króli komu til Vestmannaeyja á föstudaginn og héldu tvenna tónleika í Höllinni. Fyrst voru barna- og unglingatónleikar og fylltist Höllinn af krökkum á öllum aldri sem kunnu textan uppá tíu. Um kvöldið voru svo tónleikar á Háaloftinu fyrir 18 ára og eldri. Tónleikarnir voru báðir vel sóttir og tókust mjög vel. […]
Aðstandendaherbergi í retró stíl

Hollvinasamtök Hraunbúða tóku að sér að innrétta aðstandendaherbergið sem nýverið var tekið í notkun á Hraunbúðum. Beðið var um að herbergið yrði í gömlum stíl og segir í tilkynningu að allir séu mjög sátt með hvernig til tókst. Sérstakar þakkir til eigenda Vosbúðar fyrir ómetanlega aðstoð. (meira…)
Gott opnar í Reykjavík

�?au skemmtilegu tíðindi berast að einn rómaðasti veitingastaður landsins, GOTT, muni senn opna í miðborg Reykjavíkur, nánar tiltekið á nýja Iceland Air hótelinu í Hafnarstræti. www.mbl.is greindi frá. Nú fá borgabúar og fleirri að njóta góða matarins sem þau gott-hjónin Sigurður Gíslason og Berglind Sigmarsdóttir bjóða uppá hér í Vestmannaeyjum. (meira…)
ÍBV vann með fjórtán marka sigri

ÍBV sigraði Gróttu með fjórtán marka mun í leik liðanna í Vestmannaeyjum í dag. ÍBV er þá komið með 24 stig í fjórða sæti deildarinnar. Leikurinn var aldrei spennandi og þá sérstaklega ekki eftir að Lovísa Thompson fékk rautt spjald. Lovísa hrinti á eftir Söndru Dís Sigurðardóttur sem hugðist skora sitt fjórða mark á 12. […]
Strákarnir mæta Haukum – Stelpurnar mæta Fram

ÍBV og Fram mætast í undanúrslitum í kvennaflokki í Coca Cola bikarkeppninni í handknattleik. Strákarnir mæta Haukum í Laugardagshöll í mars. Dregið var á blaðamannafundi nú í hádeginu. Undanúrslitin fara fram í Laugardalshöll eins og úrslitaleikirnir. Undanúrslitin eru afgreidd á fimmtudegi og föstudegi, úrslitaleikirnir á laugardeginum og úrslitaleikir yngri flokka á sunnudeginum. �?essi lið mætast […]
Með óbreyttum kvóta verður áherslan lögð á hrognavinnslu

Skip Ísfélagsins, Álsey VE, Heimaey VE og Sigurður VE voru að gera klárt fyrir grunnnnótina og kíkja á loðnumiðin í þessari viku. Áður voru skipin búin að fá um 13.000 tonn og á Ísfélagið eftir um 23.000 tonn eftir þá litlu viðbót sem gefin var út á dögunum. Eitthvað verður fryst en miðað við óbreyttan […]
Breki VE í kínverskri þurrkví

Togararnir Breki VE og Páll Pálsson ÍS hafa verið teknir í þurrkví í skipasmíðastöðinni í Kína til að botnhreinsa þá og mála. �?etta er eitt af frágangsverkunum áður en skipin verða afhend eigendum sínum í aðdraganda siglingar til heimahafna á Íslandi. Reynslusiglingum og veiðarfæraprófunum á miðun úti fyrir Kínaströndum lauk á nýliðnu ári og nú […]
ÍBV komnir í undanúrslit

Karlalið ÍBV í hanbolta tryggði sér sæti í undanúrslitum Coca cola bikars karla í handbolta með 34:25-sigri gegn Gróttu í gærkvöldi. ÍBV var þar með síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum í bikarkeppni karla í handknattleik. ÍBV mun þar af leiðandi leika til undanúrslita í keppninni ásamt Fram, Haukum og Selfossi, […]
Hrefna ráðin sem iðjuþjálfi í öldrunarþjónustu

Hrefna �?skarsdóttir hefur verið ráðin sem iðjuþjálfi í 50 % stöðu í öldrunarþjónustu Vestmannaeyjabæjar. Iðjuþjálfi verður með aðstöðu á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum og sinnir meginhluta starfsins þar. Hrefna lauk námi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri árið 2009 og er að ljúka meistaranámi í geðheilbrigðisfræðum frá sama skóla. Vestmannaeyjabær býður Hrefnu velkoma til starfa. […]
Náttúrustofu Suðurlands mun falla frá tilkynntri ákvörðun um lækkun starfshlutfalls

Stjórn Náttúrustofu Suðurlands (NS) mun falla frá tilkynntri ákvörðun um lækkun starfshlutfalls forstöðumanns Nátturustofu Suðurlands. �?essu var greint frá í bókun frá Vestmannaeyjabæ. Bæjarráð var upplýst um erindi bréfsins á fundi sínum þann 6. febrúar s.l. og þar var einnig farið yfir fjárhagsstöðu NS. Bæjarráð ítrekaði ósk sína að stjórn geri breytingar á rekstri NS […]
Ísleifur VE með fyrstu loðnuna til Eyja

Eyjólfur Guðjónsson og áhöfn hans á Ísleifi VE-63 komu með fyrsta loðnufarminn til Vestmannaeyja á vertíðinni, 250 tonn af fínum og átulausum fiski sem veiddist út af Hornafirði í gær. �?að ríkir alltaf stemning og eftirvænting til sjós og lands þegar loðnuvertíð hefst. Vel mátti skynja spennu í lofti í nýju uppsjávarfrystihúsi Vinnslustöðvarinnar þegar sást […]
Vegleg gjöf til Hraunbúða

Á dögunum gáfu Marinó Sigursteinsson og fjölskylda ásamt Hollvinasamtökum Hraunbúða, lífsmarkamælir að verðmæti 300 þúsund krónur til Hraunbúða. Í tilkynningu þakka forsvarsmenn Hraunbúða, Marinó og fjölskyldu kærlega fyrir þennan ómetanlega stuðning. (meira…)
Trausti gefur áfram kost á sér

�?skuský lagðist yfir Vestmannaeyjar þennan dag. Fyrsti heimaleikur Íslandsmótsins átti að vera daginn eftir á Hásteinsvelli, ljóst var að enginn leikur yrði spilaður í Eyjum næstu daga. Til að gera langa sögu stutta þá gekk nánast allt upp þetta tímabil eftir þetta. Eyjamenn þjöppuðu sér allir saman og studdu liðið sitt enn betur en áður. […]
Bilun í moksturstæki

Vegna bilunar í snjómoksturstæki hjá �?jónustumiðstöð hefur ekki verið unnt að moka gangstéttir og gangstíga eins og kostur er. Beðið er eftir varahlutum að utan og verður tækið sett í gagnið um leið og mögulegt er. Vestmannaeyjabær biðst velvirðingar á þessari bilun sem var ófyrirséð og biður vegfarendur að fara varlega í umferðinni, bæði gangandi […]
Bæjarbúar moki frá ruslatunnunum

Starfsmenn Kubbs biðla til bæjarbúua að moka frá ruslatunnum sínum svo þeir getir losað þær samkvæmt áætlun. (meira…)