Reyna eins og hægt er að hafa öryggið í fyrirrúmi

Tvær ungar konur slösuðust og önnur alvarlega í bátsferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækisins Ribsafari í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 11. maí sl. Konurnar voru hér í starfsmannaferð á vegum Bláa lónsins þar sem bátsferð með Ribsafari var einn dagskrárliður ferðarinnar. Tæplega 100 manns voru í ferðinni og var farið út á öllum bátum fyrirtækisins. Í einni bátsferðinni kom […]
Hreyfiseðlar verða hluti af almennri heilbrigðisþjónustu

Í dag voru undirritaðir samningar um innleiðingu hreyfiseðla í samræmi við ákvörðun heilbrigðisyfirvalda um að gera hreyfiseðla hluta af almennri heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt tilkynningu er tilraunaverkefni um notkun hreyfiseðla lokið og nú tekur við áætlun um endanlega innleiðingu þessa meðferðarforms hjá heilbrigðisstofnunum um allt land. Notkun hreyfiseðla felst í því að læknar geta á formlegan hátt […]
Ungur drengur stakk sig á sprautunál

Á föstudaginn var Nói Bjarnason sjö ára í óvissuferð með bekknum sínum. Ferðin gekk vel en þegar Nói kom á frístund eftir skóla tók hann upp sprautu sem hann fann í göngunni Kom í ljós að hann hafði stungið sig á nálinni. Fjölskyldu Nóa var eðlilega brugðið og setti móðir Nóa, Tinna Tómasdóttir status á […]
Karólína Bæhrenz til ÍBV

Karólína Bæhrenz Lárudóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV. Kárólínu þarf ekki að kynna fyrir handboltaáhugafólki enda hefur hún verið í fremstu röð lengi. Á síðustu leiktíð lék hún með liðinu Boden Handboll í B-deild sænska handboltans en þar á undan spilaði hún með Gróttu og Val og hefur unnið fjölda titla með […]
Margrét Lára skoraði sigurmarkið í dag

Valur vann ÍBV með einu marki gegn engu í dag þegar liðin mættust á Hásteinsvelli. Mikill vindur var á annað markið og voru Valskonur með vindinum í fyrri hálfleik. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fyrsta og eina mark leiksins í fyrri hálfleik þegar hún skilaði boltanum í netið af stuttu færi. ÍBV sótti og sótti í […]
Áttræðisafmæli í þjóðhátíðartjaldi á toppi Heimakletts

Í dag er öðlingurinn Svavar Steingrímsson í Vestmannaeyjum áttræður. Hann er einn þeirra sem reglulega gengur á Heimaklett og því þótti við hæfi að halda honum veislu á þessu helsta kennileiti Eyjanna. Tóku vinir hans og fjölskylda sig til og slógu upp þjóðhátíðartjaldi á toppi Heimakletts sem átti að koma honum á óvart. �?að heppnaðist […]
Ísfélagshúsið illa farið og verður rifið – Vilja halda boganum

Á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs var rætt um áætlanir eigenda Strandvegs 26, Ísfélagshússins að rífa húsið. Eigandi er Ísfélag Vestmannaeyja. Kom fram á fundinum að Vestmannaeyjabær hefur rætt við stjórnendur fyrirtækisins um hvort mögulegt sé að halda hluta af húsinu enda gegni það mikilvægu hlutverki í ásýnd miðbæjarins. Eigendur telja að húsið sé of […]
ÍBV heimsækir KR í bikarnum

Dregið var í Borgunarbikar kvenna í hádeginu en 16-liða úrslit eru næst á dagskrá. ÍBV fékk útileik gegn KR en viðureignin var sú þriðja sem dregin var upp úr pottinum. KR hefur komið á óvart í deildinni en þær náðu í jafntefli gegn Val á Vodafone-vellinum í síðustu umferð. Ekki er komið á hreint hvenær […]
Bróðir Abels á leið til Eyja

Knattspyrnuráð ÍBV hefur boðið markmanninum Eric Dhaira bróðir Abels heitins til landsins til þess að æfa og spila með 2. flokki félagsins og KFS. Undir lok síðasta tímabils kom Abel að máli við stjórnina og langaði að taka bróðir sinn með sér þegar hann kæmi aftur til landsins frá Uganda. �?að var stór draumur Abels […]
Lítið gerst í tilraunaveiðunum

�?rjú uppsjávarveiðiskip frá Vestmannaeyjum, Heimaey VE-1, Huginn VE-55 og Ísleifur VE-63, fóru á föstudaginn til tilraunaveiða á Reykjaneshryggnum. Vonast var til að þarna myndu finnst tegundir eins og gulldepla og laxasíld. Leiðangurinn var farinn í samvinnu við Hafrannsóknastofnun. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hugins VE-55, átti hugmyndina að leiðangrinum. ,,�?að hefur lítið gerst fram að þessu, sem […]
Stelpurnar taka á móti Val á morgun kl. 18.00

Á morgun, þriðjudag kl. 18.00 leika á Hásteinsvelli í Pepsí deild kvenna ÍBV �?? Valur. ÍBV sigraði Fylki glæsilega í síðasta leik og ætla fylgja sigrinum eftir með góðum leik gegn Val. �?eir stuðningsmenn sem mæta í hvítu og setja nafn sitt í pott fyrir leik eiga möguleika að vinna áritaða ÍBV treyju sem verður […]
Davíð til fundar við fólkið í Alþýðuhúsinu í kvöld

Davíð Oddsson forsetaframbjóðandi fer til fundar við Vestmannaeyinga í dag mánudag. Á milli klukkan 17.30 og 19.00 verður hann í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum, en þar mun Davíð drekka kaffi með fundargestum, ræða við þá og svara spurningum sem gestir kunna að hafa. Allir eru hjartanlega velkomnir á fundinn. Davíð er annar forsetaframbjóðandinn sem heimsækir Vestmannaeyjar. […]
Oddfellowkonur komu færandi hendi

Oddfellowkonur komu færandi hendi og gáfu Starfsbraut Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum höfðinglega gjöf. Hún innihélt kennslugögn og spil í stærðfræði og íslensku. Gjöfin á eftir að nýtast nemendum brautarinnar einstaklega vel. Nemendur og starfsfólk brautarinnar færir Rebekkustúkunni Vilborgu bestu þakkir fyrir örlætið og velviljann. (meira…)
ÍBV tapaði stórt gegn Víkingum

Eyjamenn töpuðu fyrir Víkingum 0-3 í dag á Hásteinsvelli, þetta var fyrsti sigur Víkinga í deildinni en fyrsta tap Bjarna Jó með liðið á heimavelli í á þriðja tug leikja. Mikið jafnræði var á með liðunum í fyrri hálfleik og upphafi seinni hálfleiks en Víkingar fengu vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik. Derby Carillo gerði sér […]
Frumvarp um útboð á nýrri ferju

Frumvarp um heimild til útboðs nýrrar Vestmannaeyjaferju liggur fyrir Alþingi þar sem gert er ráð fyrir að að kostnaður ríkisins vegna kaupa á nýrri ferju nemi allt að 4,8 milljörðum króna. Verði frumvarpið að lögum er Vegagerðinni heimilt bjóða út annars vegar að gerður verði þjónustusamningur um smíði og rekstur skips til allt að tólf […]
Uppáhaldsbókin mín og listasýning fjórða bekkjar
Laugardaginn 21. maí nk. kl. 13.00 munum við opna sýninguna Uppáhaldsbókin mín í Einarsstofu í Safnahúsinu. Að þessu sinni munu nemendur í 4. bekk GRV kynna uppáhaldsbækurnar sínar með mynd og stuttum texta. Sýningin er hluti af samstarfi Bókasafns Vestmannaeyja og Grunnskóla Vestmannaeyja og við vonumst til að sem flestir komi. Sýningin verður opin alla […]
Júníus Meyvant og Árni Johnsen saman dúett í lagi Simma í Betel

Föstudagskvöld á komandi goslokahelgi, 1. júlí nánar tiltekið verða haldnir útgáfutónleikar með yfirskrifinni �??Í skugga meistara yrki ég ljóð�?? til að fagna útgáfu plötu sem gefin er út af Bandalagi vestmanneyskra söngva- og tónskálda (BEST). Aðgangur verður að sjálfssögu ókeypis og platan seld á sanngjörnu verði. Í frétt frá aðstandendum segir að á plötunni verði […]
ÍBV mætir Víkingum Reykjavík í dag kl. 17.00

Í dag klukkan 17.00 mætast ÍBV og Víkingur Reykjavík í fimmtu umferð Pepsídeildarinnar á Hásteinsvelli. ÍBV er nú með sjö stig í deildinni eftir fjóra leiki. Hafa Eyjamenn sótt þrjú stig í fyrstu tveimur leikjum á útivelli í sumar. Í fyrra náði liðið einungis í fjögur stig í ellefu útileikjum og mun liðið því vonandi […]
Tvær konur slösuðust alvarlega í siglingu með Ribsafari

Tvær ungar konur á þrítugsaldri hryggbrotnuðu í bátsferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækis í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Lögregla rannsakar málið og skipstjórinn hefur látið af störfum tímabundið. �?etta kemur fram á Vísir.is og sagt að R�?V hafi greint frá. Segir að atvikið hafi átt sér stað í síðustu viku þegar um 100 starfsmenn Bláa lónsins fóru […]
Dugnaðarforkar og freyjur í Eyjum

Á dögunum kom ég í sérlega ánægjulega heimsókn til Vestmannaeyja. Mér hefur alla tíð fundist dugnaður og framtakssemi einkennandi fyrir Eyjamenn og er óhætt að segja að þessi heimsókn hafi sýnt það og sannað. Sú framtakssemi birtist ljóslifandi í heimsókn okkar til Gríms Kokks. �?að var ekki annað hægt en að hrífast af þeirri ástríðu […]