Tvær konur slösuðust alvarlega í siglingu með Ribsafari
Tvær ungar konur á þrítugsaldri hryggbrotnuðu í bátsferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækis í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Lögregla rannsakar málið og skipstjórinn hefur látið af störfum tímabundið. �?etta kemur fram á Vísir.is og sagt að R�?V hafi greint frá.
Segir að atvikið hafi átt sér stað í síðustu viku þegar um 100 starfsmenn Bláa lónsins fóru í vorferð til Vestmannaeyja en á meðal þess sem var gert í ferðinni var bátsferð með ferðaþjónustufyrirtækinu Ribsafari.
Aníta �?ðinsdóttir, lögmaður Ribsafari, segir að báturinn hafi orðið fyrir einhverskonar höggi sem varð til þess að konurnar tvær slösuðust. Eftir læknisskoðun kom í ljós að þær hafi báðar hryggbrotnað, önnur þeirra alvarlega og var hún drifin í skurðaðgerð þar sem skrúfum og plötum var komið fyrir í baki hennar. Meiðsli hinnar konunnar eru ekki talin jafn alvarleg.
Atvikið var tilkynnt til Vinnueftirlitsins og lögreglu, sem rannsakar nú málið.

Nýjustu fréttir

Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.