Ungur drengur stakk sig á sprautunál
Á föstudaginn var Nói Bjarnason sjö ára í óvissuferð með bekknum sínum. Ferðin gekk vel en þegar Nói kom á frístund eftir skóla tók hann upp sprautu sem hann fann í göngunni Kom í ljós að hann hafði stungið sig á nálinni. Fjölskyldu Nóa var eðlilega brugðið og setti móðir Nóa, Tinna Tómasdóttir status á Facebook sem byrjaði svona:
Til þín sem hentir notaðri sprautunál á götuna:
�?g veit ekkert í hvaða ástandi þú ert eða hverju þú ert að sprauta í þig og í raun er mér skítsama. En mér er ekki skítsama að þú skulir henda notaðri og mögulega sýktri nál á götuna! Ekki vera fífl! Ekki vera fáviti! �?egar þú hefur sprautað þig, fargaðu þá nálinni á viðeigandi hátt og komdu í veg fyrir að saklaus börn eins og sjö ára sonur minn stingi sig á nálinni!
,�?g fékk hringingu um miðjan dag á föstudag þar sem starfsmaður frístundaversins tilkynnir mér að sonur minn hafi fundið sprautu í gönguferð í skólanum og stungið sig á henni. Mér var eðlilega mjög brugðið og það fóru strax milljón hugsanir í gang í hausnum á mér,�?? sagði Tinna í samtali við Eyjafréttir. �??�?g brunaði með hann strax upp á sjúkrahús þar sem frábær læknir tók á móti okkur. �?ar var tekin blóðprufa þar sem gildin eins og þau eru í dag voru tekin og hann fékk mótefni gegn lifrabólgu b. Líkurnar á lifrabólgu c, lifrarbólgu b eða HIV eru litlar en þær eru fyrir hendi. Við munum hins vegar ekki fá að vita það með vissu fyrr en eftir sex mánuði hvort allt sé í lagi. Læknirinn setti sig strax í samband við smitsjúkdómalækni barna og annan smitsjúkdómalækni og ráðfærði sig einnig við Hjalta Kristjánsson heimilislækni á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Nú bíðum við bara eftir niðurstöðunni.�?�
Líklegast sterasprauta
Tinna fór með sprautuna til lögreglunnar sem er nokkuð viss um að þetta sé sterasprauta. �??�?annig að mér létti aðeins en maður veit aldrei hvort sá sem sprautar sterum í sig sé með smitsjúkdóm. �?að er nauðsynlegt að fólk sem notar sprautur hafi vit á því að farga þeim á réttan hátt. �?ess vegna skrifaði ég í rauninni þennan status á Facebook.�?� Tinna segist hafa velt því fyrir sér hvort hún ætti að segja frá þessu en hugsaði svo með sér að með því gæti hún forðað öðru barni frá því að lenda í þessu. ,,Við þurfum að ræða þetta við börnin okkar og fræða þau um hvað þetta getur verið hættulegt. Segja þeim að ef þau rekast á sprautur að láta þær algerlega eiga sig og segja fullorðnum frá svo að hægt sé að farga þessu á réttan hátt án þess að skaði hljótist af. �?ó svo að við búum í Vestmannaeyjum þá getur þetta alveg eins gerst hér eins og annars staðar.�?� Tinna veltir því fyrir sér hvort að það þurfi kannski að byrja með forvarnarstarf fyrir börn fyrr heldur en gert er í dag. ,,�?egar ég var krakki byrjuðu forvarnir í 7. bekk. �?að er bara alltof seint. �?að á að fara í alla bekki grunnskólans og fræða börnin um hættuna. Auðvitað er spennandi fyrir svona ung börn að finna sprautu úti, en þau gera sér ekki grein fyrir því hversu hættulegt það getur verið. �?etta atvik ýtir kannski aðeins við okkur og verður okkur víti til varnaðar. �?að er aldrei of varlega farið.�?�

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Byggjum þetta bara
ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag
viðburðir
26. apríl 2026
11:00
Stóri plokkdagurinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.