Áskorun á sjávarútvegsráðherra Íslands

Nú hefur það loksins verið staðfest af Hafró að makríllinn sé stærsti skaðvaldurinn og áhrifavaldurinn í því að varp fjölmargra fuglastofna á Íslandi hefur misfarist síðustu árin, m.a. lunda og kríu. Þegar við horfum á þá staðreynd að makríllinn byrjaði fyrst fyrir sunnanlands og hefur síðan verið að færa sig vestur, og núna síðast norður […]
Tækifæri til að snúa genginu við

Karlalið ÍBV tekur í dag á móti Víkingi Ólafsvík á Hásteinsvelli en leikur liðanna hefst klukkan 17:00. Gengi Eyjamanna undanfarið hefur verið allt annað en gott, liðið hefur tapað síðustu fjórum leikjum sínum en rétt er að taka fram að þrír leikjanna voru á útivelli og í þremur af þessum fjórum leikjum léku Eyjamenn gegn […]
Gunnar Heiðar byrjar með sigri á stórliði

Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar hans í Konyaspor mættu stórliðinu Fenerbahce í 1. umferð tyrknesku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Lokatölur urðu 3:2 en Fenerbahce var komið í 0:2 þegar aðeins rétt tæpur hálftími var liðinn af leiknum. En heimamenn tóku við sér á lokakaflanum og það var svo Eyjamaðurinn sem lagði upp sigurmarkið eftir að hafa […]
Hörkubarátta um sæti í úrslitum 4. deildar

KFS lagði Kóngana að velli í dag en liðin áttust við á gervigrasvelli Framara í Safamýrinni. Lokatölur urðu 0:3 KFS í vil en mörkin gerðu þeir Friðrik M’ar Sigurðsson (2) og Björn Axel Guðjónsson. KFS er í þriðja sæti A-riðils fyrir lokaumferðina. Í 4. deild eru þrír riðlar en þrjú efstu liðin í tveimur riðlunum […]
Kæra þjóðhátíðarnefnd og aðrir sem málið viðkemur

Ég heiti Sunna Guðlaugsdóttir og bý hér í Vestmannaeyjum. Ég er söngkona í hljómsveitinni Blind Bargain, sem kom einmitt fram á stóra sviði þjóðhátíðar á föstudagskvöldið kl. 20:30. Blind Bargain er Eyjaband – ef ég má taka mér það bessaleyfi að kalla mig Eyjamann – og samanstendur af fjórum strákum sem búið hafa hér alla […]
Leiðinlegt ef allir borða bara salat

Bókin Heilsuréttir fjölskyldunnar kom út árið 2012. Bókin fékk mjög góða dóma, hefur selst í þrettán þúsund eintökum og var ein söluhæsta bókin í fyrra. Berglind Sigmarsdóttir, höfundur bókarinnar, hefur ekki setið auðum höndum síðan bókin kom út en næstkomandi föstudag kemur út ný bók, Nýir heilsuréttir fjölskyldunnar. (meira…)
Á eftir að reynast vel

Farþegaskipið Víkingur sigldi í fyrsta sinn í Landeyjahöfn í gær, þriðjudag. Um var að ræða tilraunasiglingu og vinnuferð en áætlað er að farþegasiglingar Víkings hefjist á næstu dögum. Ekki verður um að ræða fastar áætlunarsiglingar, heldur verður siglt þegar þörf er á og auk þess er hugmyndin að bjóða upp á útsýnisferðir frá Landeyjahöfn. (meira…)
Vilja flugvöllinn áfram í Reykjavík

Félagið Hjartað í Vatnsmýri hefur hafið undirskriftasöfnun á vefslóðinni www.lending.is en þar er skorað á borgarstjórn og Alþingi að tryggja óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri. Undirskriftirnar verða svo afhentar borgarstjórn áður en frestur til að gera athugasemdir við tillögu að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur rennur út þann 20. september sem kunnugt er gerir skipulagstillagan ráð fyrir að […]
Sveitakeppni í Eyjum um helgina

Sveitakeppnin í golfi fer fram um helgina. Sveit GV féll úr 1. deild í fyrra og leikur því í 2. deild í ár en keppni í deildinni fer einmitt fram í Eyjum þetta árið. Keppni hefst á morgun, föstudag og verða leiknir tveir hringir fyrstu tvo dagana, föstudag og laugardag og svo einn hringur á […]
Hlaupa til góðs í Reykjavíkurmaraþoninu

Á laugardaginn 24. ágúst fer fram Reykjavíkurmaraþon. Fjölmargir Eyjamenn munu taka þátt í hlaupinu, eins og undanfarin ár en hægt er að safna áheitum á vefsíðunni hlaupastyrkur.is. Í það minnsta þrjár Eyjastelpur safna áheitum á síðunni, Kristjana M. Steingrímsdóttir, sem hleypur fyrir Krabbameinsfélagið, Sigurlína Guðjónsdóttir, sem safnar fyrir Mænuskaðastofnun og svo hlaupa vinkonurnar Íris Sæmundsdóttir, […]
Karlalið ÍBV semur við serbneska hægri skyttu

Karlalið ÍBV hefur samið við serbnesku hægri skyttuna Filip Scepanovic. Scepanovic er þriðji leikmaðurinn sem karlaliðið semur við á skömmum tíma en fyrir rúmri viku samdi ÍBV við slóvenska línumanninn Mlakar og nú síðast við miðjumanninn Róbert Hoster. Scepanovic kemur frá Hvít-rússneska liðinu HC Meshkov Brest en hefur meðal annars leikið með hinu geysi sterka […]
�?tlit fyrir fækkun tegunda í Surtsey

Þegar Surtsey myndaðist fyrir 50 árum skapaðist einstakt tækifæri til að fylgjast með landnámi plantna og dýrategunda. Nú þykir ýmislegt benda til þess að tegundum fari að fækka á eyjunni. Surtseyjareldar eru langvinnasta eldgos sem orðið hefur hér á landi síðan land byggðist. Það hófst 14. nóvember 1963 og stóð með hléum fram í júní […]
Valur lagði ÍBV í mikilvægum leik

ÍBV tók á móti Val í mikilvægum leik í Pepsi-deildinni í kvöld. Þrjú lið berjast um silfrið en það eru Valur, sem er í öðru sætið með 23 stig og svo Breiðablik og ÍBV sem eru í þriðja og fjórða sæti með 22 stig. Valur styrkti stöðu sína í 2. sæti deildarinnar í kvöld, en […]
Viltu taka þátt í �?tsvari í vetur

Nú er aftur komið að undirbúningi spurningakeppninnar Útsvars á RÚV í vetur. Biðjum hér með um tillögur varðandi ákjósanlega keppendur. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku í keppninni eða þekkja einhvern sem þeir telja að eigi erindi í keppnina eru beðnir um að hafa samband. Fyrsti þáttur keppninnar verður sendur út í byrjun september, keppnisliðin […]
�?r bæjarrölti beint á �?jóðhátíð

Smiðurinn Jón Aron Óskarsson, 22 ára datt heldur betur í lukkupottinn um Verslunarmannahelgina. Hann var á bæjarrölti í miðborg Reykjavíkur þegar fulltrúi Doritos gekk að honum og bauð honum til Eyja. Hængurinn var einungis sá, að Jón Aron þurfti að drífa sig strax af stað en búið var að hugsa fyrir öllu. Jón Aron skellti […]
Víkingur siglir í þessari viku

Farþegaskipið Víkingur fékk leyfi til siglinga á föstudag. Skipið siglir þó ekki enda hljóðar leyfið upp á mun færri farþega en aðstandendur þess vonuðust til. Skipið Víkingur, sem ætlað er að sigla milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar fékk leyfi til farþegasiglinga á föstudag. Að sögn starfsmanna skipsins hefur það siglingar í þessari viku. Starfsmenn Viking Tours, […]
Ný aðferð við að veiða lunda

Fyrir skemmstu fór Gígja Óskarsdóttir ásamt fríðu föruneyti til Grímseyjar í lundaveiði eins og kom fram í síðasta tölublaði Eyjafrétta. Í ferðinni varð til ný veiðitækni en Daði Freyr Örvarsson skutlaði sér á eftir lunda sem frændi hans Þorvaldur Snær Sigurðsson missti úr háfnum. Spurning um hvort þetta sé veiðitæknin sem koma skal? Myndband af […]
Mikið spurt um óskilamuni af þjóðhátíð

Það var í nógu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og þá sérstaklega í að svara fyrirspurnum vegna fólks sem var að kanna með óskilamuni en töluvert virðist vera um að fólk týni hinum ýmsu munum yfir Þjóðhátíðina. Lögreglan hefur því haft í nógu að snúast við að svara fólki og koma óskilamunum […]
Komu með björgunarbát að landi

Í morgun lagðist skemmtiferðaskipið Le Boreal að bryggju í Vestmannaeyjum. Um borð var átta manna björgunarbátur sem áhöfnin hafði fiskað upp í Faxaflóa. Björgunarbáturinn var á reki 23 sjómílur norðaustur af Garðskaga eftir því sem fram kemur á Vísi.is. (meira…)
KR sigraði ÍBV

KR tók á móti ÍBV í dag en KR-ingar sigruðu 3-1. KR-ingar voru manni færri í tæpar fjörtíu mínútur, en höfðu þrátt fyrir það betur. Ljóst er að Eyjamenn eru að sitja eftir um miðja deild en þeir eru í 6. sæti deildarinnar með átján stig. (meira…)