Ljósnet sett upp í Eyjum í tveimur áföngum

Áætlað er að leggja svokallað ljósnet í Vestmannaeyjum á árinu en Síminn áætlar að leggja ljósnet á 53 stöðum á landinu. Ljósnet er í raun ljósleiðaratenging í símstöð eða götuskápa víðs vegar um bæinn en tenging þaðan verður með hefðbundnum koparvírum inn á heimili. Þessi tenging þýðir hins vegar mun meiri flutningsgetu, m.a. á internettengingu […]
Hefur þú áhuga á að koma samfélaginu til aðstoðar í neyð?

Björgunarfélag Vestmannaeyja mun á 95. starfsári sínu taka upp þau nýmæli að taka inn með skipulögðum hætti nýja meðlimi sem eru 25 ára eða eldri. Kynningarfundur þess efnis verður haldinn í sal Skátaheimilisins fimmtudaginn 31. janúar kl. 20. Fundur þessi verður í styttra lagi, þannig að allir sem hafa snefil af áhuga eru hvattir til […]
Fræðsluerindi um Marsjeppann

Í dag, fimmtudaginn 31. janúar 2013 fer fram fræðsluerindi um Marsjeppann Curiosity á vegum Stjörnufræðifélags Vestmannaeyja í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum, efstu hæð. Erindið hefst klukkan 19:30 og er öllum opið. Það er Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, sem flytur erindið. (meira…)
Björgun keypti Skandia

Björgun ehf., sem m.a. hefur séð um dýpkun í Landeyjahöfn, hefur keypt Skandia af Íslenska Gámafélaginu. Búið er að semja við Björgun um dýpkun í Landeyjahöfn til næstu tveggja ára og voru kaupin á Skandia liður í þeim samningi. Skandia var í kjölfarið siglt til Reykjavíkur þar sem unnið er að endurbótum, þar sem m.a. […]
Skemmdir að mestu vegna reyks

Slökkvilið Vestmannaeyja var fyrir stundu kallað út vegna elds í einbýlishúsi við Heiðarveg 64. Eldur hafði komið upp á háalofti hússins en íbúar þess urðu varir við reyk og kölluðu á slökkviliðið. Vel gekk að slökkva eldinn sem hefði getað orðið mun meiri samkvæmt slökkviliðsstjóra. (meira…)
Páll Scheving hættir í bæjarstjórn

Á næsta bæjarstjórnarfundi mun Páll Scheving Ingvarsson segja af sér sem bæjarfulltrúi. Þá gefur hann ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn ÍBV-íþróttafélags og ætlar að hætta í þjóðhátíðarnefnd. Þetta ber nokkuð brátt að en ástæðurnar segir Páll vera eingöngu persónulegar. „Ástæð-urnar eru fleiri en ein og sú sem kannski vegur þyngst, er […]
Stórkostlegt Eyjakvöld í höfuðborginni

Laugardagurinn var sannkallaður Eyjadagur í höfuðborginni þar sem á annað þúsund Eyjamenn komu saman og skemmtu sér og öðrum. Byrjað var í tónleikahúsinu Hörpu með stórglæsilegum tónleikum og endað á ekta Eyjakvöldi á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi, þar sem dansað var fram undir morgun. (meira…)
Grátið yfir goslagi í Hörpu

40 árum eftir eldgosið á Heimaey hefur verið samið lag við ljóð sem ung Eyjakona samdi stuttu eftir gos. Ljóðskáldið segir tímabært að reisa minnisvarða í Eyjum til heiðurs þeim sem unnu að björgunarstörfum í kjölfar gossins. (meira…)
Kári yfirgefur Wetzlar í sumar

Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, yfirgefur herbúðir þýska 1. deildar liðsins Wetzlar við lok leiktíðar í vor. Þetta staðfestir Björn Seipp, framkvæmdastjóri félagsins, í frétt á handball-world í dag. (meira…)
�?urfti að snúa við vegna bilunar

Flugvél frá Eyjaflugi sem lenda átti á flugvellinum á Sauðárkróki í morgun þurfti að snúa við vegna bilunar í hjólabúnaði. Vélin lenti heilu og höldnu í Reykjavík um kl. 9:30. Þetta átti að vera fyrsta flug félagsins til Sauðárkróks. (meira…)
�??Ekki svekktur en misglaður�??

Árni Johnsen alþingismaður segist ekki hafa skýringar af hverju honum var hafnað í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um helgina. Hann segir að ekki sé búið að slátra sér endanlega þótt hann sé kominn í sláturhúsið. Hann sé ekki svekktur en misglaður. (meira…)
Fyrsta fíkniefnamál ársins

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið eftir rólegar vikur í byrjun árs. Skemmtana hald helgarinnar var með ágætum og lítið um atvik á skemmtistöðum bæjarins sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af. (meira…)
Lægstu laun hækkuð hjá Vestmannaeyjabæ

Bæjarráð ákvað á fundi sínum í síðustu viku að hækka lægstu laun starfsmanna Vestmannaeyjabæjar. Starfsmenn hækka upp í launaflokk 120, óháð því hversu lengi starfsmaðurinn hefur verið í starfi en eingöngu er um að ræða fastráðna starfsmenn. Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir þetta vera skilaboð til samninganefndar um að lægstu laun séu of lág. (meira…)
Ragnheiður Elín í fyrsta sæti

Ragnheiður Elín Árnadóttir er ótvíræður sigurvegari prófkjörs Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi. Ragnheiður Elín hlaut 2497 atkvæði í fyrsta sæti og 3195 atkvæði alls. Alls voru greidd 3988 atkvæði í prófkjörinu en auðir og ógildir seðlar voru 107 talsins. Athygli vekur að Árna Johnsen, þingmann er ekki að finna meða þeirra fimm sem voru efstir í prófkjörinu […]
Talning átti að hefjast í hádeginu

Talning í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi átti að hefjast nú í hádeginu en atkvæðin frá Vestmannaeyjum sátu föst hér, þar sem ekki var flugfært frá Eyjum. Atkvæðin voru hins vegar flutt með Herjólfi í morgun og verða síðan flutt á Selfoss þar sem talning fer fram. Þetta kemur fram á mbl.is. (meira…)
Kjarnorkuver í Eyjum

General Electric gerði Rafmagnsveitum ríkisins tilboð í lítið kjarnorkuver árið 1958. Áform voru um að reisa það í Eyjum. Málið dagaði uppi enda aðrar leiðir hagkvæmari í orkuöflun. Í ljósi sögunnar má ef til vill hrósa happi yfir því. (meira…)
Niðurstaða birt á morgun

Ekki verður hægt að telja atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í kvöld líkt og til stóð vegna veðurs. Búið er að loka flugvellinum í Vestmannaeyjum og verður ekki flogið þaðan fyrr en á morgun. Byrjað verður að telja atkvæði á hádegi á morgun en ekki er ljóst hvenær fyrstu tölur muni birtast. (meira…)
Afturelding engin hindrun

ÍBV var ekki í vandræðum, frekar en fyrri daginn með Aftureldingu. Liðin áttust við í gær í bikarkeppninni og vann ÍBV með fimmtán mörkum. Í dag vann ÍBV hins vegar með 18 mörkum og lokatölur urðu 33:15 eftir að staðan í hálfleik var 15:6. Seinni leikurinn var í Íslandsmótinu. (meira…)
Prófkjör Sjálfstæðismanna í dag

Í dag fer fram prófkjör Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Fimmtán einstaklingar bjóða sig fram í prófkjörinu, þar af þrír Eyjamenn en kjörstaður í Vestmannaeyjum er í Ásgarði og er opið frá 10 til 18. (meira…)
Auðvelt gegn Aftureldingu

ÍBV var ekki í vandræðum með að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Símabikarsins en liðið tók á móti Aftureldingu í kvöld í 16-liða úrslitum. ÍBV hafði mikla yfirburði í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik enda var staðan 18:5 fyrir ÍBV í hálfleik. Í seinni hálfeik fengu varamenn ÍBV að spreyta sig og þá jafnaðist […]