Ásmundur er maður framkvæmda

Ég er ekki skráður félagi í Sjálfstæðisflokknum, reyndar er ég óflokksbundin svo „brugðið getur til beggja vona“ eins og maðurinn sagði. Samt sem áður tel ég mig geta með stolti stutt Ásmund í sinni kosningabaráttu. Hér er á ferðinni maður sem hefur manngildi í fyrirrúmi og hvaða flokki sem er væri sómi af að hafa […]
Langar þig að standa fyrir menningar- eða listviðburði?

Á milli klukkan 16.30 og 18.00 í dag verður Dorothe Becki, menningarfulltrúi Suðurlands til viðtals í Ráðhúsinu. Allir sem hafa áhuga á að standa fyrir viðburðum á lista- og menningarsviði eru hvattir til að mæta. (meira…)
Bikarleikur í Eyjum í kvöld

Það verður nóg um að vera hjá kvennaliði ÍBV um helgina því liðið leikur tvo leiki á tæpum sólarhring. Í kvöld leikur liðið gegn Aftureldingu í 16-liða úrslitum Símabikarsins en leikurinn hefst klukkan 19:30. 18 klukkutímum síðar, klukkan 13:30 á morgun, laugardag, mætast liðin svo að nýju en þá í Íslandsmótinu. (meira…)
Styðjum Ragnheiði Elínu til forystu!

Síðustu fjögur árin hefur Ragnheiður Elín Árnadóttir veitt lista sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi forystu af miklum myndarskap. Á þingi hefur hún barist gegn skaðlegu fiskveiðistjórnunarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar, staðið vörð um grunnþjónustu í kjördæminu eins og heilbrigðisþjónustu og löggæslu, krafist úrbóta í atvinnumálum, barist gegn skattahækkunum og þeirri vansæmandi meðferð sem stjórnarskrá landsins hefur fengið í meðförum ríkisstjórnar […]
Eyjamenn í frjálsu falli hjá þeim öllum

Það er eins og Vestmannaeyjar hafi gleymst þegar kom að því að raða á lista Framsóknarflokks, Samfylkingar og VG í Suðurlandi. Skást er staða Eyjamanna hjá VG þar sem Jórunn Einarsdóttir er í fimmta sæti. Það þarf þó mikið til að hún nái kosningu og mun alls ekki gerast, miðað við niðurstöður skoðanakannana undanfarið. Hver […]
Höfum náð mörgum góðum málum í höfn

Kæru Eyjamenn ég bið um stuðning ykkar. Í prófkjöri sjálfstæðismanna 26. jan. nk. í Suðurkjördæmi vegna alþingiskosninganna í vor treysti ég á stuðning ykkar eins og svo oft áður. Ég hef verið þingmaður ykkar í á þriðja áratug og staðið vaktina og aldrei slakað á því þetta er eilífur slagur og vinna ef árangur á […]
�?k í gegnum steyptan garðvegg

Umferðaróhapp varð á horni Illugagötu og Kirkjuvegar nú uppúr klukkan eitt í dag. Eldri kona fipaðist við aksturinn og ók í gegnum steyptan garðvegg að Illugagötu 43 og endaði inn í garði. Bifreiðin staðnæmdist rétt tæpan metra frá horni hússins. (meira…)
Takk fyrir ánægulega samverustund 23. janúar

Vestmannaeyjabær og Goslokanefnd þakka öllum sem komu að þakkargjörðinni nú þegar 40 ár voru liðin frá upphafi Heimaeyjargossins. Margir komu að því að gera 23. janúar fallegan og eftirminnilegan. Sérstakar þakkir fá Vestmannaeyjahöfn, Eimskip, Hitaveita Suðurnesja, hinir fjölmörgu sjálfboðaliðar frá elstu bekkjum Grunnskóla Vestmannaeyja, Friðbjörn Ó. Valtýsson og Björgunarfélag Vestmannaeyja fyrir umsjón með blysum og […]
Stefna seljanda og kaupanda Bergs-Hugins

Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að stefna seljanda og kaupanda Bergs-Hugins, en Síldarvinnslan á Neskaupsstað keypti fyrirtækið seint á síðasta ári. Bæjarráð lítur svo á að í 12. grein laga um stjórn fiskveiða er mælt fyrir um þau tilvik þegar selja eigi fiskiskip til útgerðar með heimilisfesti í öðru sveitarfélagi en seljanda. Í slíkum tilvikum eigi […]
Suðurlandsslagur í karlaboltanum

Í hádeginu var dregið í 8-liða úrslitum Símabikars kvenna en ÍBV leikur gegn Aftureldingu í 16-liða úrslitum á morgun, föstudag. Vinni ÍBV Aftureldingu mætir liðið FH í Hafnarfirði. ÍBV 2 fékk hins vegar heimaleik en ekki er hægt að segja að stelpurnar í B-liðinu hafi dottið í lukkupottinn því þær drógust gegn Fram, sem hefur […]
�?urfum að minnka kostnað um 15 til 20%

Knattspyrnudeild ÍBV þarf að minnka kostnað við rekstur deildarinnar um 15 til 20% á milli ára. Fjöldi leikmanna hefur yfirgefið ÍBV, þar af margir af lykilmönnum liðsins en Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV segir í pistli á facebooksíðu stuðningsmanna ÍBV að liðið verði áfram með bestu vörn landsins. (meira…)
Hvernig afnemum við verðtrygginguna?

Í síðustu viku skrifaði ég grein um það óréttlæti sem felst í verðtryggingunni og nauðsyn þess að afnema hana strax. Greinina er hægt að finna á www.magnusj.is. Í kjölfar greinarinnar hef ég verið spurður hvernig hægt sé að afnema verðtrygginguna. Þó erfitt sé að gera þessu flókna máli góð skil í stuttri grein langar mig […]
Vel heppnuð og fjölmenn þakkargjörð

Í dag minntust Eyjamenn og gestir þeirra þess að 40 ár eru liðin frá upphafi eldgossins í Heimaey en þann 23. janúar 1973 opnaðist sprunga austast á Heimaey og í kjölfarið varð að flytja alla íbúa Vestmannaeyja, þá rúmlega 5000 talsins, upp á land. Eyjamenn nota daginn til að þakka hversu giftursamleg björgun íbúa gekk […]
Eyjamenn rifja upp gosnóttina

Í nýjasta tölublaði Eyjafrétta, sem kemur út síðdegis í dag, er stór hluta blaðsins helgaður Heimaeyjargosinu fyrir 40 árum síðan. Meðal annars er birtur kafli úr bók Sigga á Háeyri, Sigurðar Guðmundssonar, Undir hraun en auk þess rifja þau Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Leifur Gunnarsson, Þyrí Ólafsdóttir og Heiðar Egilsson upp gosnóttina fyrir 40 árum síðan. (meira…)
Kári Kristján hefur mikla og góða mannkosti

Eyjamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson fór mikinn með íslenska landsliðinu á Heimsmeistaramótinu á Spáni. Kári Kristján nýtti tækifærið vel þegar línumaður liðsins undanfarin ár, Róbert Gunnarsson meiddist og skilaði sínu hlutverki inni á vellinum með mikilli prýði. En það var ekki bara innanvallar sem Kári Kristján vakti athygli því Orri Páll Ormarsson, blaðamaður Morgunblaðsins setur þá […]
�?órarinn Ingi búinn að skrifa undir hjá Sarpsborg

Eyjamaðurinn Þórarinn Ingi Valdimarsson er genginn í raðir norska úrvalsdeildarliðið Sarpsborg 08. Þórarinn hefur verið lykilmaður í liði ÍBV en sóttist eftir því að komast í atvinnumennsku. Hann gerði nýjan samning við ÍBV og er því lánaður til norska liðsins, sem hefur forkaupsrétt á honum eftir tímabilið. (meira…)
Fjörutíu ár frá upphafi gossins á Heimaey

Fyrir fjörutíu árum hófst eldgos á Heimaey. Blómlegt byggðarlag með rúmlega 5.000 íbúa breyttist sem hendi væri veifað í flakandi eldsár og öskuskafla. Íslendingar allir voru þar minntir á að manneskjan er smá, líf og lán valt og veikt. Eyjamenn máttu í nauð sinni flýja heimili sín í fullkominni og algerri óvissu um framtíðina. Eignatjónið […]
Fjármál heimilanna

Í aðdraganda prófkjörs sjálfstæðismanna sem verður haldið 26.janúar næstkomandi í Suðurkjördæmi, hef ég ferðast um kjördæmið og hitt mikið af einstaklingum hvarvetna í kjördæminu. Nú eru viðfangsefnin allt önnur en þau voru fyrir hrun, þegar helst var spurst fyrir um samgöngubætur og aðrar fjárfestingar ríkisins. (meira…)
40 ár frá upphafi Heimaeyjargoss

Í dag eru 40 ár liðin frá upphafi Heimaeyjargossins. Þessara tímamóta verður minnst í Eyjum í dag með sérstakri Þakkargjörðarhátíð en dagskrá hennar má sjá hér að neðan. Hápunktur hennar verður í kvöld þegar Eyjamenn munu ganga fylktu liðið í blysför frá Landakirkju og niður að höfn en sérstök athöfn verður svo um borð í […]
Við þurfum á öllu okkar að halda

Nú styttist í Alþingiskosningar. Það styttist í að við gerum upp hug okkar um hverja við kjósum til að fara með völdin í landinu í umboði okkar. Ég er reyndar þegar búinn að gera upp hug minn. Ég mun áfram styðja Vinstrihreyfinguna- grænt framboð. Fjölmargt veldur þessari ákvörðun minni. Ég geri það meðal annars vegna […]