Kosið í Hamarsskóla

Forsetakosningar fara fram á laugardaginn, þann 30. júní þar sem í kjöri eru sex, þrjár konur og þrír karlar. Á þriðjudag hafði 121 kosið utan kjörfundar í Vestmannaeyjum að sögn Karenar Haraldsdóttur hjá Sýslumannsembættinu. (meira…)
Von á 3000 gestum

Mótsgestir Shellmótsins streymdu til Eyja á þriðjudag og miðvikudag en þátttakendur eru 1150 sem er svipaður fjöldi og í fyrra. Einar Friðþjófsson, mótsstjóri, sagði erfitt að segja til um heildarfjöldann en reiknaði með að hingað komi um 3000 manns í tengslum við mótið. (meira…)
Í notkun eftir bruna

Hótel Eyjar, gamla Drífandahúsið, sem brann í lok nóvember hefur tekið miklum stakkaskiptum síðustu vikur og er einkar ánægjulegt þar sem húsið setur mikinn svip á miðbæinn. Eymundson er þegar komið inn með rekstur á neðstu hæðinni og nánast þrekvirki hversu vel hefur tekist til við uppbyggingu hússins en Hótel Eyjar tekur svo á móti […]
Stórleikur í Eyjum í 8-liða úrslitum

Nú í hádeginu var dregið í 8-liða úrslitum Borgunarbikars karla. ÍBV var í pottinum og Eyjamenn voru heppnir, fengu heimaleik. Andstæðingurinn gat hins vegar varla verið sterkari, Íslands- og bikarmeistarar KR. Stórleikur umferðarinnar verður því í Eyjum. (meira…)
Fjögur þúsund eintök seld

Matreiðslubókin Heilsuréttir fjölskyldunnar eftir Berglindi Sigmarsdóttur hefur slegið í gegn síðan hún kom út í apríl síðastliðnum. Samkvæmt nýjum bóksölulista er hún söluhæsta bók landsins það sem af er þessu ári en hún hefur selst í yfir fjögur þúsund eintökum. (meira…)
�?ar sem hjartað slær

Nú er biðin á enda. Þjóðhátíðarlagið 2012 er hér frumflutt. Það eru Fjallabræður og Lúðrasveit Vestmannaeyja sem flytja þjóðhátíðarlagið í ár sem heitir Þar sem hjartað slær. Forsöngvari er Sverrir Bergmann. Lagið er eftir Halldór Gunnar Pálsson og textinn eftir Magnús Þór Sigmundsson. Magnús samdi einmitt þetta lag, Ísland er land þitt, sem Fjallabræður sungu […]
Meira ber á hraðakstri

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í ýmsu að snúast sl. viku. Lögreglan þurfti að hafa afskipti, og eftir atvikum, aðstoða nokkra einstaklinga vegna ölvunarástands þeirra. Allir komust þó heilir til síns heima. Einnig þurfti að sinna nokkrum hávaðaútköllum í heimahúsum og kvartana um hávaða frá veitingahúsum. (meira…)
Ljót aðkoma að fiskakerjunum á Vigtartorginu

Hún var ljót, aðkoman að fiskakerjunum á Vigtartorginu í gær. Búið var að drepa fiskana og slíta krabbana í sundur og deyða. Myndin sem hér fylgir segir meira en mörg orð, en hún er tekin af facebooksíðu Gísla Stefánssonar. (meira…)
Evrópuleikur Eyjamanna á Hásteinsvelli

„Eyjamenn spila Evrópuleikinn á Hásteinsvelli eins og að var stefnt,“ sagði Gunnar Gylfason starfsmaður KSÍ, við Morgunblaðið í gærkvöld en Gunnar skoðaði í gær framkvæmdir Eyjamanna við nýja stúkubyggingu. Stúkan mun rúma tæplega 800 manns í sæti en án hennar er völlurinn ekki löglegur í Evrópukeppninni. (meira…)
Kastaðist 17 metra af vélhjóli

Véhjólamaður ók framan á bifreið á Tangagötu í Vestmannaeyjum á fjórða tímanum í dag með þeim afleiðingum að ökumaður hjólsins kastaðist 17 metra fram fyrir sig og skall í götuna að sögn vakthafandi lögreglumanns hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Ökutækin komu úr gagnstæðri átt og voru bæði óökufær eftir slysið. Ökumaður vélhjólsins, sem er 31 árs […]
14 ára játaði íkveikju í Eyjum

Fjórtán ára piltur hefur játað fyrir lögreglu að hafa kveikt í bifreið við Skvísusund í Vestmanneyjum í nótt. Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út um klukkan hálf þrjú, stóðu þá logarnir út úr bifreiðinni þannig að nálægt hús var í hættu. (meira…)
Eyjamenn ekki í vandræðum með Hött

ÍBV vann sannfærandi sigur á Hetti frá Egilsstöðum en liðin áttust við í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins á Hásteinsvelli í kvöld. Munurinn á úrvalsdeildarliði ÍBV og 1. deildarliði Hattar var nokkur en lokatölur urðu 6:1 fyrir ÍBV. Staðan í hálfleik var 4:0 en Eyjamenn gerðu í raun út um leikinn strax í fyrri hálfleik. (meira…)
�?jóðhátíðarlagið frumflutt á morgun

Þjóðhátíðarlagið 2012 verður frumflutt á morgun, eftir því sem fram kemur á Dalurinn.is. Lagið verður frumflutt á útvarpsstöðvum 365 miðla, Bylgjunni, FM957, X-inu og Létt-Bylgjunni á sama tíma, eða um hálf tvö á morgun. Höfundur lags er kórstjóri Fjallabræðra, Halldór Gunnar Pálsson en textann semur Magnús Þór Sigmundsson. Fjallabræður, Lúðrasveit Vestmannaeyja og Sverrir Bergmann flytja […]
Umferðaróhapp í Vestmannaeyjum

Umferðarslys varð um fjögur í dag í Vestmannaeyjum þegar ökumaður bifhjóls ók framan á bíl. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum slasaðist ökumaður vélhjólsins nokkuð og var fluttur á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Atvikið átti sér stað á Tangargötu en ekki er ljóst hver tildrög slyssins voru. Lögreglan er enn á vettvangi. (meira…)
Eyjamenn til Bosníu ef þeir vinna Írana

Ef ÍBV nær að vinna írska liðinu Saint Patrick’s í 1. umferð Evrópudeildarinnar, þá munu Eyjamenn mæta bosníska liðinu NK Široki Brijeg í 2. umferð. Leikirnir í 2. umferð fara fram 19. og 26. júlí en ekki liggur fyrir hvort leikið verður heima fyrst eða á útivelli. (meira…)
Vestmannaeyingar gera góðan prest betri

Halldór Halldórsson, ráðsmaður á Sjúkrahúsinu, leitar víða fanga í hreyfimyndasafn sitt, sem orðið er talsvert að vöxtum. Fyrir nokkrum dögum heimsótti hann sr. Kristján Björnsson á skrifstofu hans í Safnaðarheimili Landakirkju. Þeir áttu saman gott spjall, um gleði og sorg, heimspekilegar hugleiðingar og lífið í Ystakletti. Kristján kemur líka inná starf vígslubiskups að Hólum, sem […]
ÍBV mætir Saint Patricks aftur

ÍBV mætir írska liðinu Saint Patrick’s í 1. umferð Evrópudeildarinnar. Nei þetta er ekki ársgömul frétt því liðin mætast annað árið í röð í 1. umferð keppninnar. Í fyrra vann ÍBV fyrri leik liðanna á Vodafonevellinum 1:0 en Írarnir höfðu betur ytra 2:0 og komust því áfram 2:1 samanlagt. Verið er að draga í Nyon […]
Dregið í dag í Evrópudeildinni

Dregið verður í fyrstu tvær um-ferðir Evrópudeildarinnar í dag en ÍBV tekur þátt í keppninni annað árið í röð. Í fyrra tapaði liðið í fyrstu umferð fyrir írska liðinu Saint Patrick‘s en ÍBV vann fyrri leik liðanna á Vodafonevellinum 1:0 en tapaði svo á útivelli 2:0 og því 2:1 samanlagt. Í ár gæti ÍBV lent […]
Eyjamenn taka á móti Hetti í kvöld

Karlalið ÍBV tekur á móti Hetti frá Egilsstöðum í kvöld klukkan 18:00 á Hásteinsvellinum í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Höttur leikur í 1. deild og flestir á því að Eyjamenn eigi að vinna leikinn en allt getur gerst í bikarkeppninni. Höttur er sem stendur í 6. sæti 1. deildarinnar, á meðan ÍBV er í því 8. […]
Tveir bílar brunnu í nótt

Um klukkan hálf þrjú í nótt var Slökkvilið Vestmannaeyja kallað út en kviknað hafði í sendibifreið sem stóð við Skvísusund. Þegar að var komið stóðu logarnir upp úr kassa bifreiðarinnar þannig að nálægt hús var í hættu. Í raun kviknaði í glugga, rúður sprungu og veggurinn er illa farinn en eldurinn náði hins vegar ekki […]