Höldum heim frumflutt í morgun

Goslokalag hljómsveitarinnar Brimnes var frumflutt í morgun á útvarpstöðinni Bylgjunni. Lagið er skemmtilegt, auðvelt og með viðlagi sem allir eiga að geta sungið. Lagið heitir Höldum heim og á vel við sem Goslokalag en hægt er að hlusta á lagið hér að neðan og lesa yfir textann um. Þá er lagið allt í tóntegundinni G […]

Surtsey flaug lágflug yfir Heimaey

Mörgum brá vafalaust í brún á laugardaginn þegar þota Icelandair flaug lágflug yfir Heimaey. Um var að ræða þotuna Surtsey sem er Boeing 757-200 en vélin flaug yfir Heimaey úr norð-austri og tók stefnuna á sjálfa Surtsey. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta var flugstjóri vélarinnar í sinni síðustu ferð fyrir félagið og fékk því leyfi til að […]

Róbert Marshall flytur sig til Reykjavíkur

Eftir að Róbert Marshall sagði skilið við áfengið hefur hann ekki bara meiri orku í fjölskyldulíf, fjallgöngur og langhlaup heldur í starf sitt líka. Hann hefur mikinn metnað og ætlar sér langt. „Ég hef sumpart upplifað það þannig að ég hafi setið á aftari bekkjunum í þinginu síðustu þrjú árin. Mér finnst ég hafa náð […]

Goslokalag Brimness frumflutt í fyrramálið

Hljómsveitin Brimnes semur og flytur Goslokalagið í ár en þetta er í þriðja sinn sem sérstakt lag er samið í tengslum við hátíðahöldin. Obbosí átti Goslokalagið 2010 og Dans á rósum í fyrra. Lagið í ár, sem heitir Höldum heim, verður frumflutt á Bylgjunni í fyrramálið, mánudag, milli 8:30 og 9 en hægt verður að […]

Kjörsókn í Eyjum lítil

Nú klukkan 22:00 lokaði kjörstaður í Vestmannaeyjum í forsetakosningunum. Þá höfðu 2.018 kosið eða 64,5% þeirra sem á kjörskrá voru í Eyjum. Alls voru þeir 3.131 talsins en 387 kusu utan kjörfundar. Kjörsókn er töluvert lægri en í síðustu Alþingis- og sveitastjórnarkosningum en ef litið er til þjóðaratkvæðagreiðslu 2011 og 2010 er kjörsókn svipuð. Kjörsókn […]

HK Shellmótsmeistari 2012

HK tryggði sér rétt í þessu Shellmótsmeistaratitilinn með því að leggja HK að velli í úrslitaleik 2-0. Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik en HK skoraði mark undir lok hálfleiksins. Í síðari hálfleik var HK svo sterkari aðilinn og uppskar annað mark í lok leiks og er því Shellmótsmeistari 2012. (meira…)

Lakari kjörsókn í Eyjum

Klukkan 14:00 höfðu 516 kosið í forsetakosningunum, eða 16,5%. Í Vestmannaeyjum eru tvær kjördeildir og skiptist fjöldi kosningabærra aðila nokkuð jafnt á milli kjördeilda. Það á einnig við um kjörsókn því 252 höfðu kosið í kjördeild 1 og 264 í kjördeild 2. Fram kemur í tilkynningu frá kjörstjórn í Vestmannaeyjum að 333 utankjörfundaratkvæði hafi borist […]

Skemmtibátur illa farinn eftir bruna

Rétt rúmlega tólf í dag var Slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að smábátabryggjunni í Vestmannaeyjahöfn en mikinn reyk lagði frá litlum skemmtibáti. Báturinn heitir Ölduljón VE en þegar slökkviliðsmenn hugðust komast inn í bátinn, gusu eldtungurnar út á móti þeim, eins og sjá má á mynd og myndbandi sem fylgir fréttinni. (meira…)

260 búnir að kjósa í Eyjum

Klukkan 12 í dag voru 260 búnir að kjósa í forsetakosningunum í Vestmannaeyjum. Það erum 8,3% þeirra sem eru á kjörskrá en samkvæmt því sem fram kom í vikublaðinu Fréttum, voru um 200 manns búnir að kjósa utan kjörfundar á miðvikudag. Alls eru 3127 á kjörskrá í Vestmannaeyjum. (meira…)

Komnir upp í þriðja sætið

Eyjamenn skutust, tímabundið í það minnsta, upp í þriðja sæti Pepsídeildarinnar með miklum baráttusigri á Val. Fyrri hálfleikur var mjög erfiður fyrir Eyjamenn og Valsmenn voru sterkari framan af en í þeim síðari tóku Eyjamenn öll völd á vellinum og uppskáru tvö mörk. Varamaðurinn Ian Jeffs skoraði fyrra markið en síðara markið var af rándýrari […]

Helga Björk ráðin leikskólastjóri á Sóla

Helga Björk Ólafsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri á Sóla, en sá leikskóli er rekin af Hjallastefnunni. Helga er leik- og grunnskólakennari að mennt. Undanfarin ár hefur Helga Björk starfað sem umsjónarkennari í Hamarskóla í Vestmannaeyjum en áður starfaði hún sem deildarstjóri í leikskólanum Rauðagerði. Á bæjarstjórnarfundi í gær, sótti Helga um ársleyfi frá störfum sem […]

Af einlægni er þess óskað að þingmenn sameinist í skilningi á því að rangar ákvarðanir hafa verið teknar

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gær, var samþykkt ályktun varðandi boðaðar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Lengi hefur staðið styrr um í íslenskan sjávarútveg og mörg stór orð fallið. Stjórnvöld hafa talið nauðsynlegt að ná sátt um þessa mikilvægu atvinnugrein. En í ljósi átaka á nýafstöðnu alþingi, ályktana sveitarfélaga vítt og breitt um landið og ályktana ýmissa […]

Vinnslustöðin ver arðgreiðslur

Með því að greiða út 820 milljóna arð til hluthafa var Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum að gera upp síðasta rekstrarár. Ljóst er að næstu ár verða mun erfiðari í rekstrinum og því var gripið til uppsagna, að sögn Sigurgeirs B. Kristgeirssonar framkvæmdastjóra félagsins, sem ver arðgreiðslurnar.�?? (meira…)

Herdís lýðræði og mannréttindi

Embætti forseta Íslands hefur gildi fyrir menningu okkar, samskipti á alþjóðavettvangi og hvernig við upplifum okkur sem þjóð. Menning okkar er margbreytileg og kemur inn á hvern kima í íslenskri samfélagsgerð. Ekkert samfélagslegt mál er forsetanum óviðkomandi. (meira…)

Eyjamenn taka á móti Val klukkan 17

ÍBV tekur á móti Val í 9. umferð Pepsídeildar karla í dag klukkan 17:00. Rétt er að vekja sérstaka athygli á þessum sérstaka leiktíma en Valur Smári Heimisson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV er afar ósáttur við leiktímann og segir Eyjamenn hafa gert allt sem í þeirra valdi stóð, til að leikurinn færi fram síðar um kvöldið. […]

ÍBV úr leik eftir framlengingu, vítaspyrnukeppni og bráðabana

Það varð enginn vonsvikinn af því að fylgjast með leik ÍBV og Breiðabliks í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins á Hásteinsvelli í dag. Önnur eins dramatík hefur varla sést í íslenska kvennaboltanum því framlengja varð leiknum eftir að ÍBV hafði jafnað metin einum leikmanni færri á lokaandartökum leiksins. Breiðablik komst aftur yfir í seinni hálfleik framlengingarinnar en […]

�?ór og Sparisjóður bjóða á leikinn

ÍBV tekur á móti Breiðabliki klukkan 17:00 í dag í 16 liða úrslitum Borgunarbikars kvenna. Liðin hafa einu sinni áður mæst í á Hásteinsvellinum í sumar þegar Blikar unnu ÍBV 0:1 en sigur þeirra var að margra mati ósanngjarn. Til að fá sem bestan stuðning á leiknum hafa Vélaverkstæðið Þór og Sparisjóður Vestmannaeyja tekið höndum […]

Vinnslustöðin segir upp 41

Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum (VSV) samþykkti í gær að: • segja upp allri áhöfn Gandí VE-171 eða alls 30 manns. Gandí verður lagt að lokinni makrílvertíð í ár og skipið auglýst til sölu. • segja upp 11 manns í landvinnslu VSV í Eyjum. • segja upp gildandi samningum VSV um viðskipti og þjónustu af […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.