Hefur flutt 9200 farþega milli lands og Eyja fyrstu 6 mánuðina

Samkvæmt upplýsingum sem Ásgeir Þorsteinsson hjá Flugfélaginu Erni gaf eyjafrettum, er nokkur aukning á farþegafjölda félagsins milli lands og Eyja. Árið 2011 flutti félagið 8800 farþega fyrstu sex mánuði ársins. En fyrstu sex mánuði þessa árs, hefur félagið flutt 9200 farþega. Segir Ásgeir að aukningin hafi helst orðið yfir vetrarmánuðina. t.d. dæmis hafi farþegum í […]
Fleiri farþegar og fleiri bílar í ár

Siglingar Herjólfs í Landeyjahöfn hafa margsýnt, að ferðamannafjöldi stóreykst þegar siglt er þangað. Strax frá fyrsta degi þegar siglingar hófust í Landeyjahöfn árið 2010 var sýnt að hverju stefndi. Fyrstu sex mánuði ársins 2011 flutti Herjólfur 105.849 farþega og 26.332 bíla. Til samanburðar hefur Herjófur flutt 114.094 farþega og 31.098 bíla, fyrstu sex mánuði ársins […]
Stór torfærukeppni

Skipalyftutorfærukeppnin fer fram í Eyjum á laugardag. Torfærufélag Suðurlands og Björgunarfélag Vestmannaeyja standa fyrir keppninni og lofa frábærri skemmtun. Keppendur eru óvenju margir og mikil spenna í loftinu enda langt síðan svo stór keppni hefur verið haldin hér á landi. (meira…)
Veisla úr matarkistu Eyjanna

Á annaðkvöld, föstudagskvöld, býður Einsi kaldi upp á glæsilegan kvöldverð í Höllinni í samstarfi við goslokanefnd. „Þetta verður það besta úr matarkistu Vestmannaeyja, þar sem meðal annars verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fisk ásamt lunda og fleira góðgæti Húsið opnar kl 18:30 og hefst borðhald kl 19:30. Miðapanntanir eru í síma 6982572 Einsi […]
Sjálfboðaliða vantar til verksins

Senn líður að því að áhorfendastúkan við Hásteinsvöll verði tekin í notkun. Hanni harði, varaformaður knattspyrnuráðs ÍBV hafði samband við eyjafrettir og bað um að koma þvi á framfæri, að seinnipartinn í dag og í kvöld, verður byrjað á að festa niður áhorfendasætin í stúkunni og til þess verks vantar sjálboðaliða. Biður hann alla stuðningsmenn […]
Gylfi �?gis, Rúnar �?ór og Megas í Höllinni í kvöld

Hallarbændur láta ekki sitt eftir liggja í goslokahátíðinni. Í kvöld, fimmtudagskvöld verður Gylfi Ægis ásamt Rúnari Þór og Megasi, með tónleika í Höllinni. Með þeim verða Siggi bassaleikari Náttúru og Ásgeiri trommari Stuðmanna. Aðeins 2.500,- kr. miðinn. (meira…)
Rándýr vika hjá Eyjamönnum

Í dag, fimmtudag leikur ÍBV gegn írska liðinu Saint Patrick‘s í 1. umferð Evrópudeildarinnar en leikur liðanna fer fram í Dublin á Írlandi. Leikurinn hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma en það er skammt stórra högga á milli, því á sunnudaginn tekur ÍBV á móti KR í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Síðari leikur ÍBV og Saint […]
Dagskrá goslokahátíðar hefst í dag

Kl. 13.00 Opnar Gerður Sigurðardóttir myndlistarsýningu í Akóges.Kl. 17.00 Opnar ljósmyndasýningin “Vestmannaeyjar lifað með náttúruöflunum” í Sæheimum (uppi í Miðstöðinni). Á sýningunni eru ljósmyndir eftir Heiðar Egils, Konný Guðjóns, Sísí Högna, Óskar Pétur, Didda Sig. og Adda í London. Kynnt verður ný ljósmyndabók um Vestmannaeyjar. (meira…)
Smá bilun í stjórnborði fyrir aðalvél

„Þetta er ekkert alvarlegt, smábilun í stjórnborði fyrir aðalvél,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins þegar hann var spurður út í stöðuna á Heimaey VE sem kom ný til landsins frá Chíle í byrjun maímánaðar. (meira…)
Meðalhiti á Stórhöfða 1,3 stigi yfir meðallagi

Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands var júnímánuður hlýr um landið vestanvert en fremur kaldur austanlands. Mjög þurrt var á landinu, sérstaklega þó norðvestanlands þar sem mánuðurinn var sá þurrasti sem vitað er um. Sérlega sólríkt var um landið sunnan-, vestan- og norðanvert. Meðalhiti í Reykjavík mældist 10,7 stig, 1,7 stigi ofan meðallags og er […]
Sanngjarnt að þeir sem skapa arðinn fái sinn skerf

Stjórn og trúnaðarráð Drífanda stéttarfélags óskar hluthöfum Vinnslustöðvarinnar innilega til hamingju með þá risaarðgreiðslu er samþykkt var á síðasta aðalfundi fyrirtækisins og vonar að þeir njóti hennar vel. Jafnframt minnir trúnaðarráðið hluthafa á að þessi arður varð til með striti og löngum vinnudögum verkafólks og sjómanna. Verkafólks sem vinnur á töxtum sem eru það lágir […]
�?tgáfutónleikar Dans á rósum á föstudag

Hljómsveitin Dans á rósum heldur útgáfutónleika í Höllinni næstkomandi föstudag en sveitin er þessa dagana að gefa út sína fyrstu plötu, sem heitir einfaldlega Dans á rósum. Tónleikarnir hefjast klukkan 16:00 og verður ekkert til sparað og fjöldi tónlistarmanna sem munu aðstoða við flutninginn en frítt er inn á tónleikana. Þá mun hljómsveitin einnig koma […]
Gerðu vel í að ná í stig

Kvennalið ÍBV gerði vel í því að ná í stig gegn Stjörnunni í kvöld, eftir að hafa lent 0:2 undir í fyrri hálfleik. Leikur Eyjaliðsins var hreint út sagt hræðilegur í fyrri hálfleik og ljóst að ÍBV saknaði þeirra Vesna Smijlkovic og Elínborgar Jónsdóttur mikið, en báðar tóku þær út leikbann í kvöld. Síðari hálfleikur […]
Hleypur fyrir pabba sinn

Bjarný Þorvarðardóttir, dóttir Þorvarðar Þorvaldssonar og Guðrúnar Ragnarsdóttur, hefur ákveðið að hlaupa fyrir pabba sinn í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst. Þorvarður, eða Varði eins og pabbi hennar er alltaf kallaður, féll niður úr stiga og slasaðist mjög alvarlega á síðasta ári, er lamaður fyrir neðan háls en hefur síðan þá verið í endurhæfingu á Grensás. (meira…)
�?rír játa umfangsmikið smygl

Þrír karlar voru handteknir á sunnudag í aðgerðum lögreglunnar í tengslum við rannsókn hennar á umfangsmiklu smygli. Lagt var hald á áfengi, tóbak og mikið magn af töflum, en talið er að um steratöflur sé að ræða. Töflurnar eru um 10 þúsund talsins. Lögreglan tók einnig í sína vörslu 200 ambúlur og verulagt magn af […]
Bæjarstjórinn í Eyjum segir Samfylkinguna rúna trausti

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir sennilega vænlegt fyrir þingmenn Samfylkingarinnar að hugsa sinn gang vel áður en þeir bjóða sig fram í Suðurkjördæmi. Róbert Marshall, þingmaður flokksins í kjördæminu, ætlar að bjóða sig fram í Reykjavík fyrir næstu alþingiskosningar. (meira…)
�??Við verðum bara að standa í skilum�??

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, segir að skuldsetning eignarhaldsfélagsins Seilar ehf., sem á 25 prósenta hlut í Vinnslustöðinni, sé það mikil að félagið þurfi að fá arð frá útgerðarfélaginu til að geta staðið í skilum. (meira…)
Í nógu að snúast hjá lögreglunni í vikunni

Í ýmsu var að snúast hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum síðustu viku enda mikill fjöldi fólks í bænum. Aðstoða þurfti fólk vegna ölvunarástands og nokkrar kvartanir bárust lögreglu vegna ónæðis frá ölvuðu fólki. Enginn þurfti þó að gista fangageymslu vegna ölvunarástands. Einn aðili var kærður fyrr brot á lögreglusamþykkt þar sem hann var að losa þvag […]
�?ska eftir sölubörnum

Goslokanefnd óskar eftir sölubörnum til að selja merki Goslokahátíðarinnar. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við stjórnendur goslokahátiðar í ráðhúsinu en góð sölulaun eru í boði. Merkin eru annars til sölu í Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Eymundsson. (meira…)
Stórleikur hjá stelpunum í kvöld

Í kvöld klukkan 18:00 tekur ÍBV á móti Íslandsmeisturum Stjörnunnar á Hásteinsvelli. Stjarnan er í öðru sæti deildarinnar með 16 stig en ÍBV er í því þriðja með 15. Toppbaráttan hefur sjaldan verið jafn spennandi og nú enda munar aðeins þremur stigum á efsta liðinu, Þór/KA og Val, sem er í fimmta sæti. Sigur yrði […]