Staðfest brottför Herjólfs í seinni ferð

Staðfest brottför Herjólfs frá Eyjum kl. 15:30 og 19:15 frá Þorlákshöfn. Farþegar mæti sem fyrr 30 mínútum fyrir brottför. Ákvörðun um siglingar Herjólfs á morgun föstudag verður gefin út þegar nær líður en samkvæmt ölduspá (sjá hér að neðan) er útlitið þvi miður ekki gott. (meira…)

Nóg framundan í Höllinni

Það er nóg framundan í Höllinni en í kvöld rúllar boltinn eins og alltaf þegar mikið er um að vera. Í kvöld verður sannkallað Manchesterkvöld því klukkan 17:50 verður á risaskjá í Hallarlundi leikur Sporting Lisbon og Manchester City og 19:50 er svo komið að leik Athletico Bilbao og Manchester United. Á hliðarskjá verður svo […]

Loðnuveiðar ganga vel þrátt fyrir brælur

Í gær, miðvikudag, höfðu Ísfélag og Vinnslustöð tekið á móti um 150 þúsund tonnum. Þar af hafði Ísfélagið landað tæpum 80.000 tonnum á Þórshöfn. Huginn VE átti um 6000 tonna kvóta og hefur líka veitt fyrir Granda. Er hann langt kominn með kvótann. (meira…)

Seinni ferð Herjólfs fellur niður vegna öldhæðar og sjólags

Seinni ferð Herjólfs miðvikudaginn 7. mars fellur niður vegna ölduhæðar og sjólags. Ákvörðun um siglingar Herjólfs fimmtudag verða gefnar út þegar nær líður en skv. öldspá er útlitið því miður ekki gott eins og áður hefur komið fram. (meira…)

Sjómannslíf er ekkert grín

Í nótt og í morgun hefur verið algjör bræla á miðunum, sérstaklega sunnan við land þar sem ölduhæð hefur mælst yfir tíu metra á Surtseyjarduflinu. Loðnuvertíð er hins vegar í fullum gangi og hvergi slegið af við að skapa verðmæti fyrir þjóðarbúið. Það þýðir að loðnuskipin sigla þótt veðrið sé slæmt. Þessar mögnuðu myndir tók […]

Ivana í leikbann og missir af stórleik

Línumaðurinn sterki, Ivana Mladenovic var í gær úrskurðuð í leikbann af aganefnd HSÍ. Ivana fékk að líta rauða spjaldið eftir að leik FH og ÍBV lauk um síðustu helgi en um var að ræða rautt spjald með skýrslu, sem þýðir eins leiks bann. Rauða spjaldið fékk Ivana fyrir að klappa fyrir öðrum dómara leiksins og […]

Ákvörðun með seinni ferð Herjólfs verður gefin út kl. 13:30

Von er á nýrri ölduspá í hádeginu og í kjölfarið munum við gefa út ákvörðun um siglingu seinni ferðar í dag. Ölduspá fyrir næstu tvo daga en enn óhagstæða og mun ákörðun um siglingar verða gefin út um leið og nánari upplýsingar liggja fyrir. (meira…)

9 milljón króna vinningur hjá KFS

Sex aðilar sem tippa hjá Hjalta Kristjánssyni, getraunastjóra og þjálfara KFS duttu heldur betur í lukkupottinn um helgina. Seðill sem þeir sameinuðust um reyndist vera með 13 rétta en aðeins tveir seðlar á landinu náðu því. Vinningurinn var tæpar 9 milljónir en það var Hjalti sjálfur sem tippaði fyrir hópinn. (meira…)

Elísa aftur í byrjunarliðinu

Elísa Viðarsdóttir, leikmaður ÍBV nýtti tækifærið vel þegar hún var í fyrsta sinn í byrjunarliði íslenska kvennalandsliðsins en Elísa átti mjög góðan leik í miðverðinum þar sem hún lék við hlið landsliðsfyrirliðans, Katrínar Jónsdóttur. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari hefur ákveðið að Elísa byrji aftur gegn Dönum í dag klukkan 11 í leik um 5. sætið […]

Fyrri ferð Herjólfs miðvikudag fellur niður vegna öldspár

Fyrri ferð Herjólfs miðvikudaginn 7. mars fellur niður vegna mjög óhagstæðar ölduspár sem gerir ráð fyrir allt að 9,9 metra ölduhæð og er það í samræmi við áður útgefna viðvörun. Ákvörðun um seinni ferð Herjólfs miðvikudag verður gefin út kl 12 á morgun en samkvæmt öldspá er útlitið því miður ekki gott. Það sama á […]

Viðvörun vegna siglinga miðvikudag til föstudags

Vegna mjög óhagstæðrar ölduspár dagana 7. til 9. mars sendum við út viðvörun. Samkvæmt ölduspá Siglingastofnunar er gert er ráð fyrir rúmlega 9 metra ölduhæð þennan tíma. Ef til þess kemur að fella þurfi niður ferðir, eina eða fleiri, verður tilkynning send til farþega, á neðangreinda staði og á fjölmiðla um leið á ákvörðun liggur […]

Undarlegt jarðsig sunnan við Helgafell

Við veginn sunnan Helgafells, rétt við innkeyrslu að landi Dallasbænda, hefur orðið einkennilegt jarðsig. Þar hefur myndast gat í jörðina, tæpur metri í þvermál og um tveggja metra djúpt en þrengra gat lengra niður þar fyrir neðan. Guðmundur ÞB Ólafsson, forstöðumaður Þjónustuhúss Vestmannaeyjabæjar segir að fyllt verði upp í gatið á morgun. (meira…)

Ljóskastarar Landakirkju skemmdir

Rólegt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku og frekar fámennt á skemmtistöðum bæjarins enda mikil vinna í í Eyjum til sjós og lands. Eitthvað þurfti þó lögreglan að aðstoða fólk vegna ölvunarástands. Einn aðili þurfti aðstoða við að komast undir læknishendur þar sem sauma varð hann en hann hafði dottið og skorið sig […]

Ester valin í landsliðið

Ester Óskarsdóttir, leikmaður ÍBV hefur verið valin í 19 manna leikmannahóp íslenska landsliðsins í handbolta. Liðið leikur heima og heiman gegn Sviss í undankeppni EM en leikirnir fara fram 22. og 25. mars. Síðari leikurinn verður leikinn í Vodafonehöllinni í Reykjavík. Ester hefur leikið mjög vel með ÍBV í vetur og kemur ekki á óvart […]

Björn Ásgeir sigurvegari í Eldvarnagetrauninni

Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningsmanna efndi til árlegs Eldvarnaátaks í nóvember 2011. Öll átta ára börn hér í Eyjum komu á slökkvistöðina og voru frædd um eldvarnir og öryggismál og þeim síðan gefinn kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni 2011. (meira…)

ÍBV og Kaupás gera samstarfssamning

Á dögunum skrifuðu forsvarsmenn ÍBV-Íþróttafélags og Kaupáss undir samstarfssamning til tveggja ára. Kaupás kemur með samningi þessum myndarlega að starfi knattspyrnudeildar ÍBV auk þess sem að fyrirtækið styrkir barna og unglingastarf félagsins. (meira…)

Systurnar saman í byrjunarliðinu

Systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur eru saman í byrjunarliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, sem leikur gegn Kína klukkan 15:30 í dag. Þetta er síðasti leikur íslenska liðsins í riðlakeppni Algarve Cup en liðið tapaði fyrir Þýskalandi og Svíþjóð í fyrstu tveimur leikjum sínum. Elísa kom inn á sem varamaður í báðum leikjunum en Margrét […]

Fuglinn rétt á undan loðnunni

Svartfugl settist upp í Vestmannaeyjum og Grímsey um miðjan febrúar. Það þótti í seinna lagi í Vestmannaeyjum en óvenjusnemmt í Grímsey. Farfuglum á borð við álftir, stormmáfa og hettumáfa hefur fjölgað á landinu undanfarið að sögn vefsíðunnar fuglar.is. (meira…)

�?ruggur sigur á neðsta liðinu

Karlaliði ÍBV urðu ekki á nein mistök í leiknum gegn neðsta liði 1. deildar Íslandsmótsins í handbolta, Fjölni þegar liðin áttust við í Eyjum í dag. ÍBV hafði betur, lokatölur urðu 28:18 en staðan í hálfleik var 14:8. Magnús Stefánsson var atkvæðamestur í liði ÍBV en hann skoraði 7 mörk. Þá átti Einar Gauti Ólafsson […]

Naumur sigur hjá stelpunum í gær

Kvennalið ÍBV vann í gær nauman sigur á FH í N1 deildinni í handbolta en leikur liðanna fór fram í Kaplakrika í Hafnarfirði. Lokatölur urðu 20:19 eftir jafnan og spennandi leik en líklega hefur tapið í bikarúrslitunum eitthvað setið í leikmönnum ÍBV, enda er ÍBV með mun sterkara lið en FH. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.