Enski boltinn í Hallarlundi alla helgina

Enski boltinn verður í gangi alla helgina í Hallarlundi. Helgin byrjar núna klukkan 12:45 með leik Liverpool og stórliðs Arsenal en enski boltinn mun svo rúlla alla helgina og enda með stórleik Tottenham – Manchester United klukkan 16:10 á morgun, sunnudag. Leiki helgarinnar má sjá hérn að neðan. (meira…)
Guðmundur á leið til Hoffenheim til reynslu

Sóknartengiliðurinn efnilegi, Guðmundur Þórarinsson er, samkvæmt nokkuð áræðanlegum heimildum Eyjafrétta.is, á leið til þýska úrvalsdeildarliðsins Hoffenheim til reynslu. Guðmundur mun dvelja hjá liðinu í um viku og reyna heilla forráðamenn þýska liðsins. (meira…)
Andlát – Steingrímur Jóhannesson

Steingrímur Jóhannesson lést í gær, fimmtudag aðeins 38 ára gamall. Steingrímur hafði glímt við krabbamein undanfarna mánuði. Hann lék um árabil með knattspyrnuliði ÍBV við góðan orðstír, skoraði 78 mörk í 189 leikjum í efstu deild og er sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk fyrir ÍBV í efstu deild. Steingrímur varð markakóngur úrvalsdeildar tvö […]
Nýi páfagaukurinn

Lára fór inn í gæludýrabúð og rak strax augun í glæsilegan páfagauk sem kostaði 5.000 krónur. ,,Af hverju er hann svona ódýr? spurði Lára. Gæludýrabúðareigandinn leit á hana og sagði:,, sko. Málið er að þessi páfagaukur hefur verið í mörg ár í vændishúsi og getur verið ansi orðljótur. Hreint hroðalega. Þess vegna er hann á […]
Leik ÍBV og Fjölnis frestað til morguns

Leik ÍBV og Fjölnis, sem átti að fara fram í dag klukkan 18:30, hefur verið frestað til morguns þar sem ekki er flugfært til Reykjavíkur. Reyna á aftur á morgun og ef allt gengur eftir munu liðin mætast í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum klukkan 14:00 á morgun, laugardag. (meira…)
Leikskólinn Sóli fimm ára

Þegar 1. mars 2007 rann upp var eftirvænting í lofti. Þann dag skyldi „Nýi Sóli“ opnaður í nýju og glæsilegu húsnæði við Ásaveg. Sameinaðir undir einu þaki voru leikskólarnir Sóli og Rauðagerði. Gamla Sólahúsið, sem hafði hýst leikskóla frá árinu 1960, var rifið og leikskólastarf á Rauðagerði fellt niður. Rauðagerði var gjöf til Vestmannaeyinga eftir […]
Flytja lög við ljóð Halldórs Kiljan Laxness

Í kvöld, föstudaginn 2. mars, mun sönkonan Sólveig Unnur Ragnarsdóttir syngja lög við ljóð Halldórs Kiljan Laxness á Vinaminni, kaffihúsi við Bárustíg. Um undirleik sjá hjónin Kitty Kovács, píanóleikara og Balázs Stankowsky, fiðluleikara. Þá mun Ásta Steinunn Ástþórsdóttir, leikkona stikla á stóru um ævi ljóðskáldsins og lesa upp nokkur ljóð hans. (meira…)
Eru varmadælur, vindmyllur og lífdísill úr fitu framtíðin?

Þessar vikurnar er unnið eftir svokallaðri orkustefnu hjá Vestmannaeyjabæ en farið var í mótun stefnunnar í kjölfarið af verkefni í kringum varmadælur. Frosti Gíslason, hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Friðrik Björgvinsson, hjá Vestmannaeyjabæ segja að vel sé hægt að nýta orku betur í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjar hafi verið eitt af fjórtán sveitarfélögum sem tilnefnd voru sem sem […]
Sex Eyjastelpur í Ungfrú Suðurland

Sex Eyjastúlkur taka þátt í keppninni Ungfrú Suðurland, sem mun fara fram á Hótel Selfossi föstudaginn 30. mars næstkomandi. Þetta eru þær Sara Rós Einarsdóttir, Guðrún María Guðbjörnsdóttir, Þóra Fríða Ólafsdóttir, Þórhildur Ósk Stefánsdóttir, Arney Lind Helgadóttir, Eva Dögg Davíðsdóttir. Alls taka 15 stúlkur þátt í keppninni víðs vegar af landinu (meira…)
Kári Kristján áfram hjá Wetzlar

Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan samning við þýska 1. deildarliðið Wetzlar um að leik með því fram á mitt næsta ár. Kári hefur verið í herbúðum liðsins síðustu tvö árin. Frá þessu er greint á vefsíðunni handball-world. Kári lék áður í félagsliðið í Zürich í Sviss en einnig með Haukum og ÍBV […]
Fjör í Framhaldsskólanum

Nú eru í gangi í Framhaldsskólanum svokallaðir Skapandi dagar, sem tóku við af opnum dögum eins. Á Skapandi dögum taka nemendur og kennarar skólans sér frí frá námsbókunum og taka sér fyrir hendur annarsskonar verkefni innan veggja skólans. M.a. er starfandi matarklúbbur, árshátíðarhópur, listahópur, tónlistarhópur og útvarpshópur en útvarp skólans er á fm 104,7. (meira…)
Forsala á uppistand hófst í dag

Forsala á uppistand þeirra Þorsteins Guðmundssonar og Péturs Jóhanns Sigfússonar verður í Höllinni föstudaginn 9. mars næstkomandi. Forsala á uppistandið hófst í dag, fimmtudaginn 1. mars í Axel Ó. „Þú þarft að mæta með bleyju á þessa sýningu því þú átt eftir að míga í þig úr hlátri,“ segir í fréttatilkynningu Andersen viðburða, sem flytur […]
ÍBV Íþróttafélag og Flugfélagið Ernir halda samstarfi áfram

Í síðustu viku var undirritaður samningur milli ÍBV Íþróttafélags og Flugfélagsins Ernis. Félögin hafa átt í góðu samstarfi síðastliðið ár og því lá beint við að framlengja samstarfssamninginn. Flugfélagið Ernir hóf áætlunarflug til Vestmannaeyja í ágúst 2010 og hefur Ernir kappkostað það að þjónusta Vestmannaeyjar sem best með miklum sveigjanleika. ÍBV Íþróttafélag er stærsti einstaki […]
Mælingar og væntingar stóðust ekki

Á fundi sjálfstæðismanna á laugardaginn upplýsti Árni Johnsen, alþingismaður að í viðræðum hans við Siglingastofnun hefði komið fram að þar á bæ er staðfest að útreikningar tengdir straumum og sandflutningi og þær væntingar sem menn höfðu til Landeyjahafnar hafi ekki staðist. Nýtt líkan af höfninni verði gert á árinu og í framhaldi af því verði […]
Albert hættur

Markmaðurinn Albert Sævarsson segir í samtali við Fótbolta.net að hann sé hættur og að markmannshanskarnir séu komnir upp í hilluna góðu. Albert hefur varið mark ÍBV síðan 2008 en þessi 38 ára markmaður gerði reyndar gott betur því um tíma var hann vítaskytta liðsins. „Ég hef ekkert verið að æfa. Þetta verður erfiðara og erfiðara […]
Aukaflug til Eyja

Eins og svo oft áður hefur Flugfélagið Ernir brugðist við eftirspurn á flugi til Eyja. Sett hefur verið upp aukaflug í dag, fimmtudag kl 14:15 til Eyja og frá kl 15:00. Einnig er nú þegar búið að setja aukaflug upp á sama tíma á morgun, föstudaginn 2. mars. (meira…)
U2 messa í Landakirkju

Sunnudaginn 4. mars nk. stendur Æskulýðsfélag Landakirkju og KFUM&K í Vestmannaeyjum fyrir kvöldpoppmessu í tilefni af æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar. Leikin verða lög írsku rokksveitarinnar U2 sem eins og flestir vita er ein af stærstu hljómsveitum veraldarinnar. Hver veit nema lög eins og Sunday Bloody Sunday, One og Pride (in the Name of Love) muni kitla hljóðhimnur. […]
Elísa spilaði sinn fyrsta A-landsleik í dag

Elísa Viðarsdóttir, leikmaður ÍBV lék sinn fyrsta landsleik fyrir A-landslið Íslands í dag þegar hún kom inn á undir lok leik liðsins gegn Þýskalandi í Algarve Cup í Portúgal. Elísa kom inn á á 89. mínútu og náði því að leik nokkrar mínútur við hlið systur sinnar, Margréti Láru, sem lék allan leik (meira…)
Vestmannaeyjabær stofnar hlutafélag um smíði og eignarhald á nýrri ferju

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti nú í hádeginu að stofna hlutafélag um smíði og eignarhald á nýrri Vestmannaeyjaferju. Auk Vestmannaeyjabæjar verður ríkinu, öðrum sveitarfélögum á áhrifasvæði Landeyjahafnar, lífeyrissjóðum og áhugasömum fjárfestum boðin aðkoma að félaginu. Í greinargerð sem fylgir afgreiðslu málsins segir að forsenda félagsins sé leigusamningur við ríkið til að minnsta kosti 10 ára, sem tryggir […]
Krafa um breytingu á niðurgreiðslu til dagforeldra

Þetta bréf er skrifað fyrir hönd foreldra sem eiga börn fædd 2011. Við mæðurnar erum saman í „mömmuhitting“ þar sem bæði leikskóla- og dagforeldramál eru mikið rædd ásamt ýmsu öðru. Okkur finnst að það sé ýmislegt sem megi laga í þessum málum og þá aðallega finnst okkur kominn tími til að endurskoða niðurgreiðslu til dagforeldra […]