Heilsíðumynd af �?nnu Maríu í erlendu tímariti

Heilsíðumynd af Eyjakonunni Önnu Maríu Halldórsdóttur prýðir nýjasta hefti tímaritsins Fit and Firm, sem gefið er út af WBFF líkamsræktarsambandinu. Anna María náði einmitt frábærum árangri í Evrópumóti WBFF sem fór fram á Íslandi í nóvember en þar sigraði hún í Female Diva Bikini Model flokki og endaði í þriðja sæti í Female Diva Fitness […]
Takk fyrir mig, Vestmannaeyjar

Ég vil þakka öllum þeim sem hafa styrkt mig og stutt mig í gegnum þessi erfiðu veikindi sem ég er að ganga í gegnum. Það er á svona tímum sem maður elskar það að vera Vestmannaeyingur. Maður finnur stuðninginn og finnur fyrir því hvað fólk styður við bakið á manni. Ég vil sérstaklega þakka Einari […]
TM og ÍBV stolt af Pæjumótinu

Eins og áður hefur komið fram, fékk ÍBV-íþróttafélag Grasrótarviðurkenningu Knattspyrnusambands Íslands á ársþingi þess fyrr í mánuðinum. Viðurkenninguna fékk félagið fyrir Pæjumót TM í Vestmannaeyjum en á dögunum kom Einar Friðþjófsson, mótsstjóri færandi hendi í útibú TM í Eyjum og afhenti starfsmönnum þar viðurkenningaskjalið. (meira…)
Sigur og tap í fótboltanum

Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék tvo leiki um síðustu helgi. Á laugardaginn lék liðið í Lengjubikarnum gegn ÍA en leikurinn fór fram á Akranesi. Leiknum lauk með 2:1 sigri ÍA en mark ÍBV gerði Víðir Þorvarðarson. Seinni leikurinn var svo daginn eftir, á sunnudag en þá lék ÍBV gegn 3. deildarliðinu KV eða Knattspyrnufélagi Vesturbæjar. […]
Áfallalaus vika hjá lögreglunni

Að vanda var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið en þó fór allt áfallalaust fram. Skemmtanahald helgarinanr fór þokalega fram en eitthvað var þó um óspektir sökum ölvunarástands gesta skemmtistaðanna. Þá var eitthvað um kvartanir til lögreglu vegna hávaða í heimahúsum. Tveir ökumenn voru stöðvaðir um helgina vegna gruns um að […]
Framkvæmdir á lóðinni stöðvaðar

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur stöðvað stækkun lóðar og viðbyggingu Ísfélagsins í Vestmannaeyjum meðan nefndin er með málið til meðferðar. Krafa um stöðvun var sett fram af Vinnslustöðinni. (meira…)
Snorri Jónsson vann Ástarljóðasamkeppni Sölku og Eymundsson

Eyjamaðurinn Snorri Jónsson sigraði í Ástarljóðasamkeppi Sölku og Eymundsson en keppnin var haldin í samstarfi við Bylgjuna. Á þriðja hundrað ljóða bárust í keppnina en sigurljóðið var kynnt og flutt í þættinum Í Bítinu á Bylgjunni. Ljóð Snorra heitir Ástarkveðja og má lesa hér að neðan. (meira…)
Nauðsynlegt að auka úthlutun í þorski, ýsu og ufsa

Stjórn Útvegsbændafélagsins Heimaeyjar og skipstjórnarmenn innan vébanda félagsins skora á sjávarútvegsráðherra að auka þegar í stað úthlutun í þorski, ýsu og ufsa. Það er mat stjórnar félagsins og skipstjórnarmanna að þessir stofnar séu sterkari en ástandsskýrslur Hafrannsóknastofnunarinnar gefa til kynna og þoli meiri veiði án þess að vikið sé frá varúðarsjónarmiðum. Þetta kemur fram í […]
Arnar, Kristín Rós og �?óra Guðný best í lestri

Stóra upplestrarkeppnin hefur verið haldin í mörg ár og þátt í henni taka nemendur í sjöunda bekk grunnskólanna. Tólf þeirra sem þóttu skara fram úr í Grunnskóla Vestmannaeyja mættu á svið í Bæjarleikhúsinu á mánudaginn fyrir viku síðan. Þar lásu þau upp fyrir dómnefnd sem skar úr um hvaða þrír nemendur keppa fyrir hönd skólans […]
Fá að byggja en í óþökk Vinnslustöðvar

Ísfélag Vestmannaeyja óskaði eftir stækkun lóðar til austurs og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við frystihús félagsins við Strandveg 102. Leyfið hefur fengist en það er í óþökk Vinnslustöðvarinnar, nágrannans í austri. (meira…)
Geta borið höfuð hátt þrátt fyrir tap

Kvennalið ÍBV tapaði í dag fyrir Val í úrslitaleik Eimskipsbikarsins í Laugardalshöll. Lokatölur urðu 18:27 en ÍBV sá aldrei til sólar í leiknum, ef undan eru skilda fyrstu tvær mínútur leiksins. Þrátt fyrir tapið geta leikmenn ÍBV borið höfuðið hátt enda mikið afrek fyrir ÍBV liðið að komast alla leið í úrslitaleikinn. Síðasta hindrunin, Valur, […]
Bjarni Ben og þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins á opnum fundi í Ásgarði

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður frummælandi á opnum fundi Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja, í Ásgarði í dag kl. 15.00. Með honum í för eru þingmennirnir Ólöf Nordal, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Árni Johnsen. Á fundinum verður farið yfir stjórnmálaástandiðí landinu og gefst fundargestum kostur á að leggja fram spurningar. (meira…)
Krefjumst tafarlaust lausna á brýnum vandamálum

Drifkraftur sjávarútvegsins, dugnaður til sjós og lands, Veiðar, vinnsla og markaðssetning um árabil ráða úrslitum um það að Íslendingar standa ekki verr en raun ber vitni í kjölfar alþjóðlegs bankahruns með íslenskum vírus að auki. Sjávarútvegurinn hefur á undanförnum árum afrekað að rétta við til mun betri vegar fjárhagslega stöðu greinarinnar, fjöregg íslenska samfélagsins og […]
Bikarstemmning í Hallarlundi

Á morgun verður úrslitaleikur Eimskipsbikarsins en þar mætast ÍBV og Valur. ÍBV-íþróttafélag bauð upp á hópferð og þegar síðast fréttist voru örfá sæti laus þannig að stemmningin í Laugardalshöll verður vafalítið góð. En þeir sem ekki komast á sjálfan leikinn geta fengið stemmninguna beint í æð í Hallarlundi þar sem leiknum verður varpað upp á […]
Vilja rýmri siglingatíma og miðnæturferð

Hagsmunaaðilar í Vestmannaeyjum hafa sent Ögmundi Jónassyni, samgönguráðherra bréf vegna fyrirhugaðs útboðs á rekstri Herjólfs. Í bréfinu eru settar fram kröfur um ferðir skipsins, að sérstök kvöldferð verði farin um miðnætti og að gert verði ráð fyrir rýmri siglingatíma yfir sumarið. Þá er þess krafist að gámaflutningar hafi ekki forgang í nokkrum ferðum dagsins. Bréfið […]
Herjólfur siglir síðari ferð dagsins

Brottför frá Eyjum í dag kl 15:30 og Þorlákshöfn 19:15. Farþegar mæti 30 mínútum fyrir brottför. Farþegar eru sem fyrr hvattir til að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi. Nánari upplýsingar í síma 481-2800. (meira…)
Undirbúningurinn skiptir mjög miklu máli

Ingibjörg Jónsdóttir er án efa einn besti leikmaður sem kvennahandboltinn í Eyjum hefur alið af sér. Hún var enda fyrirliði ÍBV þegar liðið fagnaði fyrsta Íslandsmeistaratitlinum og fylgdi því svo eftir með bikarmeistara-, deildar- og Íslandsmeistaratitlum. Síðasta bikarnum fagnaði hún árið 2006 þegar ÍBV varð Íslandsmeistari. Ingibjörg þekkir því vel hvað leikmenn ÍBV eru að […]
Fínn leikur hjá �?órarni Inga

Ísland tapaði fyrir Japönum í morgun 3:1 en tveir Eyjamenn voru í byrjunarliðinu, þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson, sem leikur með ÍBV og Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem leikur með sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping. Þórarinn Ingi komst vel frá leiknum, barðist vel, tapaði varla návígi og átti nokkrar ágætar rispur upp vinstri kantinn. (meira…)
Valur er með betra lið

Kvennalið ÍBV leikur gegn Val í úrslitaleik Eimskipsbikarsins á morgun, laugardag klukkan 13:30. ÍBV hefur ekki leikið í úrslitum síðan 2006 þegar liðið tapaði fyrir Haukum 29:25 en síðast vann ÍBV bikarkeppnina 2004, eftir sigur á Haukum 35:32. Valsliðið er gríðarlega sterkt, með landsliðsmenn í hverju rúmi og líklega reikna flestir með sigri Valsliðsins. Valur […]
Gunnar Heiðar og �?órarinn Ingi báðir í byrjunarliðinu

Eyjamennirnir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson eru báðir í byrjunarliði íslenska landsliðsins, sem leikur gegn Japönum ytra nú fyrir hádegi. Þetta er jafnframt fyrsti landsleikur nýrra þjálfara, Svíans Lars Lagerbäck og Eyjamannsins Heimis Hallgrímssonar. Gunnar Heiðar hefur verið viðloðandi landsliðið á sínum ferli en þetta er í fyrsta sinn sem Þórarinn Ingi er […]